Heimsmynd - 01.03.1986, Blaðsíða 36
Davíð Oddsson, „Ég held að fólk líti á sveitarfélög sem fyrirtæki að vissu leyti og vilji
ekki setja allt í karp milli margra flokka, heldur treysta einum þeirra fyrir stjórninni.“
SAMKRULL
OG GLUNDROÐI
- NÁI VINSTRI FLOKKARNIR MEIRIHLUTA;
DAVÍÐ ODDSSON, BORGARSTJÓRI
Davíð Oddsson, borgarstjóri, er ekki í
vafa um hvaða valkostir bjóðast borgar-
búum í sveitarstjórnarkosningunum í
vor. Samkrull og glundroðastjórn fjög-
urra til fimm flokka, eða styrk stjórn
Sj álfstæðisflokksins.
Það er ekki víst að allir séu sammála
þessari mynd sem borgarstjóri dregur
gjarna upp í viðtölum, en víst er að í
skoðanakönnun DV fyrr í vetur kom
fram geysimikill stuðningur við Davíð og
borgarstjórnarflokk hans.
Svo ótvíræður stuðningur sem hann
hlaut í umræddri skoðanakönnun, þrátt
fyrir að hann sjálfur hafi allan fyrirvara á
hversu marktækar sh'kar kannanir séu,
sýnir ótvírætt að kjósendur Davíðs koma
víðs vegar að og þá ekki síður úr öðrum
landsmálaflokkum.
Pað er því skiljanlegt að Davíð hafi
ekki stórar áhyggjur af því að þróun
landsmála spilli fyrir kosningaúrslitum í
Reykjavík. Landsmálin hafa alltaf ein-
hver áhrif en tiltölulega lítil hér í Reykja-
vík, miðað við annars staðar.
Reykjavík er langstærsta byggðarlag
landsins og þar búa jafn margir og í
nítján stærstu sveitarfélögunum, að höf-
uðborginni undanskilinni. Pólitík og
stjórnun borgarinnar á því kannski meira
sameiginlegt með ríkinu en öðrum sveit-
arfélögum og má nefna að fjárhagsáætl-
un borgarinnar hljóðar upp á um 4
milljarða í ár, en síðustu fjárlög ríkisins
voru upp á 37 milljarða.
Davíð sagði í viðtali við HEIMS-
MYND að hann áliti að fólk kysi á annan
veg til sveitarstjórna en í alþingiskosning-
um og benti á að í Neskaupsstað hafa
Alþýðubandalagsmenn verið með
hreinan meirihluta í árafjölda. Eg held
að fólk líti á sveitarfélög sem fyrirtœki að
vissu leyti og vilji ekki setja allt í karp
milli margra flokka, heldur treysta einum
þeirra fyrir stjórnini.
Og það er sem fyrirtæki sem Davíð
rekur borgina. Hann heldur fundi með
æðstu yfirmönnum borgarinnar tvisvar í
viku og fer yfir þau mál sem verið er að
vinna. Annars segir Davíð að meðal
borgarstjórnarmeirihlutans sé mikil
valddreifing. Formenn nefndanna hafi
mikil áhrif þó svo það lendi oft á Davíð
að fylgja málum eftir.
En Davíð vill fylgjast vel með og má
þar nefna að þegar hann tók langt sum-
arfrí í fyrra, þá hringdi hann einu sinni í
viku og hélt þá stutta símaráðstefnu með
aðstoðarmönnum sínum. Þessu verður
ekki stjórnað nema með góðri yfirsýn því
borgin hefur um 7000 manns í vinnu og
mikla starfsemi með höndum.
Miklar persónulegar vinsældir Davíðs
eru gjarna útskýrðar af andstæðingum
hans sem byggðar á leikarahæfileikum og
mikilli fjölmiðlaathygli. Aðrir segja að
þar fari maður sem þori að stjórna-taka
ákvarðanir og standa við þær og benda á
að Sjálfstæðisflokkurinn hefur í raun
ekki átt sterkan Ieiðtoga, sem stjórnar í
krafti persónu sinnar, ekki málamiðlana
ólíkra skoðana, síðan á dögum Bjarna
Benediktssonar heitins. í Davíð sjái
Sjálfstæðismenn nýjan leiðtoga- og það
hafi áhrif út fyrir flokkinn eins og ofan-
greind skoðanakönnun ber vott um.
Sjálfur segist Davíð lítt taka þátt í
vangaveltum um persónufylgi sitt og seg-
ir að hann hafi ekki uppi nein áform um
að sækjast eftir til dæmis þingsæti. Mér
líður vel hérna, segir borgarstjóri. Ég er
sáttur við það sem ég er að gera og tel
okkur ná árangri.
Og það verður þessi árangur sem Dav-
íð leggur fyrir kjósendur í vor en hann
segir að Sjálfstæðisflokkurinn muni
leggja mikla áherslu á kosningabaráttuna
og segir að hún ætti að geta orðið nokkuð
skemmtileg því mótherjarnir séu ágætt
fólk.
Það vakti nokkra athygli í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins nú í vetur, hversu
lítið kjörfylgi konur fengu. Davíð sagði
að þrátt fyrir þessa staðreynd þá kæmu
konur til með að hafa mikil áhrif, því í
borgarstj órnarflokki Sj álfstæðismanna
eiga sæti bæði aðalfulltrúar og varafull-
trúar, allir jafnréttháir, og segir Davíð að
á þeim vettvangi geti konur komið sjón-
armiðum sínum á framfæri.
Hvað prófkjör varðar, segist hann hafa
verið fylgjandi þeim í upphafi en sé nú á
þeirri skoðun að heppilegast sé að nota
prófkjör og uppstillingarnefnd saman, til
dæmis þannig að stillt sé upp við þriðju
hverjar kosningar en prófkjör þess á
milli. Hann benti á að hann hafi átt þátt í
að koma Katrínu Fjeldsted inn á listann
fyrir síðustu kosningar, án þess að hún
hafi unnið sæti þar í prófkjöri og nú hafi
hún hlotið góða kosningu í prófkjörinu.
Og lokaspurningin til borgarstjóra á
afmælisári borgarinnar var hvernig verð-
ur Reykjavík framtíðarinnar?
Hún verður falleg borg og hrein. Þar
verður fólki boðið upp á betri hýbýli en
annars staðar, ytra umhverfið erfallegtog
það verður gott að búa hér.
Davíð Oddsson er kominn langan veg
frá því hann lék sér í úthverfi Reykjavík-
ur-Barmahlíðinni-og í njólabreiðunum
þar sem nú er Stigahlíðin.
36 HEIMSMYND