Heimsmynd - 01.03.1986, Blaðsíða 100
MERYL
STREEP
ég sá myndina fullgerða var hversu Den-
ys Finch-Hatton virtist vonlaus frá upp-
hafi. Næstum eins og hann vildi tortíma
sjálfum sér — en það hafði ég aldrei
upplifað meðan á tökum stóð. Þó held ég
að þessi seinni upplifun mín sé nær sanni
og Bob hafi gert sér grein fyrir því allan
tímann. Persónan Denys er miklu sorg-
legri en ég hafði gert mér grein fyrir.“
-En Karen Blixen í þínum meðförum?
„Á vissan hátt - í sambandi við Denys
— ég bara gat ekki ráðið við það — og
sagði nú er nóg komið! Og á einum stað,
í einnu senu, “hlær,“ erum við að rífast,
Karen og Denys — ég er að segja síðustu
orð mín við hann og þau hljóma svo
hallærislega, svo kerlingarlega og svo
ólíkt Karen. Mér fannst einhvern veginn
að ef hann hefði verið henni svona kær,
þá gæti hún ekki verið svona tilgerðarleg,
svona venjuleg. En síðar fór mér að
þykja svo vænt um hana einmitt á þessu
augnabliki. Og þegar ég fór frá Afríku
skyldi ég hana best, þá leið mér eins og
ég get ímyndað mér að henni hafi liðið.
Ég fór að hágráta...
Ef tækifæri gefst ætla ég að fara aftur
þangað. Áður en ég kom þangað fyrst
hafði ég einhverja óljósa ímynd af Sa-
hara eyðimörkinni og þurrkasvæðunum í
Súdan og Eþíópíu, svona eins og úr frétt-
um sjónvarpsins, auk þess sem ég sá fyrir
mér frumskóga á vesturströndinni og apa
í trjám. En almáttugur! Nairobi, borgin
minnir á Zurich í Sviss eða jafnvel Kaup-
mannahöfn. Og fari maður aðeins út
fyrir borgina er umhverfið eins og í
enskri sveit, há og tíguleg tré og gras-
lendi. Þetta er paradís á jörðu, jafn hiti
allt árið, sæt angan í loftinu, þetta er
mikið hálendi og landið svo frjósamt að
íbúar hafa ekki þurft að þróa með sér
mikla landbúnaðartækni. Dýralífið er
fjölskrúðugt og frábært að sjá gíraffa
spranga um á sléttunum. Ég hreifst ger-
samlega af þessu landi — því fór ég að
gráta þegar ég fór...“
-Rödd blaðamannsins er einnig orðin
klökk. Meryl Streep er sterkur persónu-
leiki. Fær hún fólk ekki til að fara hjá sér
í návist hennar?
„Það er mér að kenna,“ svarar hún
strax.“ Fólk er ekki vant mér öðruvísi en
á hvíta tjaldinu. Ég kem svo að segja
aldrei fram í sjónvarpi, í viðtölum og ef
þú ert feiminn við mig, þá get ég sagt þér
að ég er líka feimin. Ég er óörugg frammi
fyrir fréttamönnum og í sjónvarpi finnst
mér ég koma út eins og kjáni. Þar af
leiðandi veit fólk mjög lítið um konuna
Meryl Streep, það þekkir bara stjörnuna.
Ég held að Robert Redford sé eins að
þessu leyti. Persónulega finnst mér hann
einn aðgengilegasti einstaklingur sem ég
hef kynnst, en hann gerir sér grein fyrir
því að vilji maður eiga eitthvert einkalíf
verður maður að fylgja ákveðnum regl-
um vitandi það að fólk lætur hugarflugið
ráða þegar það ímyndar sér hvernig mað-
ur sé í raun. Þó er mér alveg sama þótt
fólk geri sér rangar hugmyndir um mig.“
-HEIMSMYND tjáir henni að al-
mennt virðist fólk nú gera sér góðar hug-
myndir um hana.
„Ókey,“ segir hún og hlær. Hún er
samt fegin að lesa ekki íslensku. „Það er
alveg sama hvað maður segir, þegar mað-
ur sér það á prenti, svart á hvítu virkar
það allt í einu svo óafturkræft og öðruvísi
heldur en maður hefði viljað. Þér að
segja hundleiðast mér viðtöl, allar þessar
spurningar, sérstaklega spurningar um
einkalíf manns. Ég fer hreinlega í kerfi
og bara flissa.“
-Við höfum ekki spurt einnar einustu
spurningar um einkalíf hennar...Er það
hvort eð er ekki svo slétt og fellt?
Hún flissar. - Meryl Streep er gift
myndhöggvara að nafni Don Gummer og
á tvö börn, sex ára son sem heitir Henry
og tveggja ára dóttur, sem heitir Mary
Willa. Hvernig finnst henni að vera
móðir?
„Mjög gaman, mjög gaman og mjög
ólíkt því, sem ég hafði ímyndað mér.“
-Hvernig tekst þér að sameina for-
eldarhlutverkið kvikmyndaleiknum?
„Þessi spurning er út í hött,“ segir hún.
„Enginn getur það, það er ekki í mann-
legu valdi. Ég er svo heppin að geta verið
í fríi milli þess sem ég vinn í miklum
skorpum. Ég er núna fyrst að jafna mig
Meryl Streep í hlutverki
sínu í Falling in Love
ásamt Robert de Niro.
100 HEIMSMYND