Heimsmynd - 01.03.1986, Blaðsíða 38
kvenna en nú þegar kvenfólkið hefur lagt
út á vinnumarkaðinn er enginn eftir til að
hlúa að þessum minnihlutahópum.
En það gekk ekki átakalaust að ná
öðru sæti í forvali Alþýðubandalagsins.
Kristín bauð sig sérstaklega fram í fyrsta
sæti listans en þar hafði Sigurjón Péturs-
son verið undanfarin ár og var einnig í
kjöri nú. Reyndar var Kristín ekki ein
um að skapa taugatitring meðal forystu-
manna flokksins, því hún tilheyrði hóp
sem er gjarna kallaður lýðræðishópurinn
innan Alþýðubandalagsins og er til dæm-
is Össur Skarphéðinsson, ritstjóri Pjóð-
viljans, í hópnum en hann gaf kost á sér í
forvalinu og stefndi á annað til fimmta
sæti listans.
Niðurstaða forvalsins varð einhvers
konar málamiðlun því Sigurjóni Pét-
urssyni varð ekki haggað úr fyrsta sæt-
inu. Hins vegar náði Kristín öðru sæti á
listanum og Össur því fjórða en á milli
þeirra er Guðrún Ágústsdóttir.
Pað verður því blanda af flokksforystu
og uppreisnaröflum sem Alþýðubanda-
lagið býður fram í næstu sveitarstjórnar-
kosningum. En um hvað snerist upp-
reisnin?
Lýðrœðisöflin standa fyrir breyttum
starfsháttum innan Alþýðubandalagsins.
Að ábyrgð verði dreift og pólitík mótuð af
fleirum en nú er gert. Við viljum ráðast á
miðstýringuna.
Rætur flokksins liggja að vísu nærri
miðstýringu, en Alþýðubandalagið, sem
var stofnað 1968, er samt ólíkt fyrirrenn-
urum sínum hvað varðar stjórn og af-
stöðu til miðstýringar. Samt finnast sprot-
ar innan um sem enn hafa þessar rœtur.
Uppreisnin snerist um lýðræði og vald-
dreifingu og sá sem verið hefur í forsvari
fyrir Alþýðubandalagið í borgarstjórn-
armálum vann sigur. Eru það ekki von-
brigði fyrir Kristínu Ólafsdóttur? Nei, ég
lít á úrslitin sem bestu hugsanlegu niður-
stöðuna og það sem gerir mig líka
bjartsýna á úrslit kosninganna í vor er
mikill samvinnuvilji allra og ekki síst af
hálfu Sigurjóns Péturssonar.
Landið hefur sumsé gengið saman eftir
jarðhræringar innan Alþýðubandalagsins
á meðan forvalinu stóð. Að vísu féll einn
af forystumönnum verkalýðshreyfing-
arinnar, Guðmundur Jónsson, núverandi
formaður Iðju, það langt niður að hann
vermir ekki bekki borgarstjórnar meira í
bili.
Kristín Ólafsdóttir 37 ára leikkona, olli miklum landskjálftum innan Alþýðubanda-
lagsins með því að bjóða sig í fyrsta sæti á lista flokksins til borgarstjórnar en þar
situr Sigurjón Pétursson; landið hefur gengið saman að nýju — alla vega á yfirborð-
inu. Ljósm.: Árni Sæberg.
REIÐI VEGNA
KÚGUNAR Á FÓLKI
- KRISTÍN ÓLAFSDÓTTIR, í ÖÐRU SÆTI
ALÞÝÐUBANDALAGSINS í REYKJAVÍK; ÞESS VEGNA
TEK ÉG ÞÁTT í STJÓRNMÁLUM
„Gremja og reiði. Reiði vegna kúgun-
ar á fólki.“ Þessar eru ástæður þess að
Kristín Ólafsdóttir, varaformaður Al-
þýðubandalagsins, tekur þátt í pólitík, en
hún er í öðru sæti lista flokks síns við
borgarstjórnarkosningarnar nú í vor.
Það sem brennur heitast á mér er að
gera fólk meðvitað um rétt sinn sem
manneskjur-að það standi keikt og upp-
rétt og láti til sín heyra og taki pláss í
tilverunni.
Kristín segist óttast þá hægri sveiflu
sem vart hefur orðið í þjóðfélaginu áð
undanförnu og sagði að það óttalegasta
sem hún hefði heyrt lengi hefði ungur
menntaskólanemi í Menntaskólanum í
Reykjavík sagt við hana fyrir skömmu:
„Survival of the fittest", það er það sem
gildir. Meðan mér og minni fjölskyldu
líður vel, varðar mig ekkert um aðra.
Og það er gegn þessu lífsviðhorfi sem
Kristín vill berjast, innan borgarstjórnar
og utan. Megináhyggjuefni hennar, segir
hún vera aðbúnað barna, unglinga og
gamalmenna.
Málefni þessara hópa tengjast kvenna-
baráttunni, segir Kristín, því áður fyrr
var umhyggja fyrir þessu fólki hlutverk
-38 HEIMSMYND