Heimsmynd - 01.03.1986, Blaðsíða 31
Markús Á. Einars-
son, verður ekki í
framboði að þessu
sinni í Hafnarfirði.
F ramsóknarmenn
hafa enn ekki fund-
ið frambjóðanda í
staðinn. „Ætlaði
aldrei að gera að
ævistarfi mínu.“
Bjarni P. Magnús-
son, ruddi Sigurði
E. Guðmundssyni
úr fyrsta sæti á
framboðslista Al-
þýðuflokksins í
prófkjöri flokksins.
Sigurður brást
æfur við og fullyrðir
að Bjarni og Bryn-
dís Schram hafi
myndað kosninga-
bandalag gegn sér
en slíkt er bannað í
lögum flokksins.
mikill taugatitringur í kringum val á
framboðslistana. Þau Bjarni P. Magnús-
son og Bryndís Schram tóku efstu sætin á
lista Alþýðuflokksins og Sigurður E.
Guðmundsson, sem verið hefur borgar-
fulltrúi flokksins, fékk slæma útreið í
prófkjörinu.
Innan Alþýðubandalagsins var mikil
ókyrrð. Um fimm hundruð nýir flokks-
menn bættust í flokkinn og sögðu dag-
blöðin að þar hefðu aðallega verið náms-
menn sem gengu í flokkinn til að styðja
lýðrœðisöflin svokölluðu.
Lýðræðisöflin stefndu hátt eða á fyrsta
og annað sæti listans með þau Kristínu
Ólafsdóttur, varaformann flokksins, og
Össur Skarphéðinsson, ritstjóra Þjóðvilj-
ans. Urslitin urðu þau að Sigurjón Pét-
ursson, borgarfulltrúi, sat sem fastast í
fyrsta sætinu en Guðmundur Þ. Jónsson,
formaður Iðju, hrapaði langt niður list-
ann. í viðtali við Kristínu Ólafsdóttur
annars staðar í blaðinu er nánar fjallað
um lýðræðishópinn og baráttuna um
efstu sæti listans.
Það liggur fyrir að Kristján Benedikts-
son, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins
og framkvæmdastjóri þingflokks Fram-
sóknarflokksins, verður ekki í kjöri í
þessum kosningum og leita nú Fram-
sóknarmenn að nýjum frambjóðanda.
Þriggja manna nefnd, sem þau Sigrún
Sturludóttir, Magnús Ólafsson og Alfreð
Þorsteinsson mynda, hefur sent flokks-
mönnum Framsóknarfélaganna í Reykja-
vík bréf þar sem þau falast eftir hug-
myndum að frambjóðendum. Ýmis nöfn
hafa verið nefnd, svo sem Jón Ólafsson,
dagskrárgerðarmaður á Rás 2, Gestur
Jónsson lögfræðingur, Egill Skúli Ingi-
bergsson fyrrverandi borgarstjóri og Að-
alheiður Bjarnfreðsdóttir formaður
Sóknar.
En það er alls óvíst að nokkur ofan-
greindra gefi kost á sér og er því listi
Framsóknarflokksins með öllu óráðinn
enn sem komið er.
Pað eru ýmsar ástæður fyrir því að ég
ætla að hætta ,sagði Kristján Benedikts-
son, í samtali við HEIMSMYND. Mér
finnst ég vera búinn að vera talsvert lengi í
þessu, eða 24 ár.
Kristján sagði að mikil breyting hefði
orðið á starfsemi borgarinnar síðan hann
hóf afskipti af borgarmálefnum. Borgin
stæði í miklu fleiri verkefnum nú en áður
og til dæmis hefðu félagsmálin og málefni
aldraðra og barna varla verið til þá.
Hann sagði líka að umfjöllun um borg-
armál væru orðin opnari en var áður og
fjölbreyttari.
Kvennalistinn hefur ekki enn tilkynnt
formlega um framboð en samkvæmt
heimildum HEIMSMYNDAR stefna
þær á framboð í Reykjavík, Kópavogi,
Hafnarfirði, Selfossi og Akureyri og ef til
vill á fleiri stöðum.
Guðrún Jónsdóttir, starfsmaður
Kvennalistans, sagði HEIMSMYND að
það væri mál kvenna á hverjum stað
hvort þær biðu fram eða ekki. Hins vegar
gæti Kvennalistinn veitt aðstoð með því
til dæmis að miðla reynslu þeirra sem
starfað hafa að þessum málum.
Hún sagði að enn væri full þörf fyrir
sérstakan kvennalista þrátt fyrir að æðsta
markmið þeirra sem þar starfa sé að ná
þeim árangri að hægt verði að leggja
Iistann niður. Það eru meðal annars
launamál kvenna sem þær vilja berjast
fyrir og benda á að samkvæmt nýgerðri
athugun er launaskrið kvenna minna en
karla og að konur auka tekjur sínar með
lengri vinnudegi.
Við höfum sérmál að berjast fyrir,
kvennamál, sagði Guðrún. Við erum einu
samtökin sem gera kvennamál að for-
gangsmáli. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarfulltrúi Kvennaframboðsins, sagði
HEIMSMYND að enn væri óljóst hvort
hún gæfi kost á sér sem fulltrúi Kvenna-
listans, og sagði að á meðan ekki væri
jafnari kynskipting á listum hinna flokk-
anna væri full þörf fyrir sérframboð
kvenna.
Þær sögðu að konurnar gætu haft áhrif
þótt þær störfuðu ekki með meirihlutan-
um, því það eitt að kona sæti í nefnd
breytti störfum nefndarinnar og umræðu
þar þannig að sjónarmið kvenna væru
tekin með í reikninginn við afgreiðslu
mála.
Aðspurð um hvort framboð þeirra
yrðu ekki aðeins til að styrkja stöðu
stærsta flokksins, Sjálfstæðisflokksins,
víðast hvar, með aukinni dreifingu at-
kvæða, sagði Guðrún það ekki vera rétt.
Þær fengju líka atkvæði frá Sjálfstæðis-
flokknum og að auki væri fullt af konum
til dæmis í Reykjavík sem ekki myndu
kjósa aðra lista en Kvennalistann.
En framboð Kvennalistans gæti haft
nokkuð víðtæk áhrif í Hafnarfirði. Þar
hefur í nokkurn árafjölda verið starfandi
meirihluti Sjálfstæðismanna og Óháðra
borgara. Hins vegar er allt óvíst með
kosningarnar nú, því ekki er frágengið að
Óháðir borgarar bjóði fram að þessu
sinni. Vilhjálmur Skúlason, sem var í
efsta sæti listans við síðustu kosningar
mun vilja hætta, en Arni Gunnlaugsson,
meginforystumaður þessa lista hætti í
bæjarstjórn við síðustu kosningar. Þó
telja Hafnfirðingar möguleika á því að
Árni fari sjálfur á listann í þetta sinn.
Reyndar hefur lengi verið möguleiki á
hreinum meirihluta Sjálfstæðismanna í
bæjarstjórn og hafa þeir nú 5 fulltrúa af
11 en talið er að lunginn af fylgi Óháðra
borgara, bjóði þeir ekki fram, myndi fær-
ast yfir á Sjálfstæðisflokkinn.
Þá geta mannabreytingar sett strik í
reikninginn í Hafnarfirði. Allir flokkar
breyta til hjá sér. Þannig hverfur Hörður
Zóphaníasson, efsti maður lista Alþýðu-
flokksins af sjónarsviðinu, en í hans stað
kemur Guðmundur Árni Stefánsson,
sem hlaut allt að því stalínska kosningu í
prófkjöri flokksins. Þá hættir Rannveig
Traustadóttir, sem verið hefur fulltrúi
HEIMSMYND 31