Heimsmynd - 01.03.1986, Page 26

Heimsmynd - 01.03.1986, Page 26
ÁRIÐ1980 TIL1981 VAR RANGLEGA GEFLÐ MERKL UM KJARNORKUÁRÁS í 151 SKIPTI ÖRLÖG MANNKYNS ERU í HÚFI. . . Á síðasta ári var 800 milljónum banda- ríkjadala varið í vopnaskakið í heimin- um. Á sama tíma eru 800 milljónir ein- staklinga vannærðir dag hvern. Til sam- anburðar má nefna að bólusótt hefur nú verið útrýmt úr heiminum. Verkið var unnið á vegum Sameinuðu þjóðanna og tók tvo áratugi. Leiðangrar fóru um lönd og álfur, fjöll og dali til að bólusetja fólk. Kostnaðurinn var einn þúsundasti af því verði sem greitt er fyrir vopnaskakið í heiminum á ári. Fyrir verð einnar meðal- drægrar eldflaugar má bólusetja eina milljón barna í þriðja heiminum. Nú er verið að setja upp meira en 500 slíkar eldflaugar í Vestur-Evrópu og enginn ef- ast um að kostnaðurinn er engu minni austan járntjalds. Á hverri sekúndu deyr barn úr hungri eða sjúkdómum sem koma má í veg fyrir eða hlýtur ævilöng örkuml, á hverri sekúndu er varið einni milljón króna til vopnaskaksins. Tuttugu ára þróunaraðstoð við þriðja heiminn hvað varðar mat, vatn og nauðsynlegustu heilbrigðisþjónustu kostar minna en hálft ár í vígbúnaðarkapphlaupinu. Aldrei áður hefur verið mögulegt að fæða alla þá hungruðu, aldrei áður hefur verið unnt að hýsa alla þá heimilislausu, aldrei áður hefur verið mögulegt að kenna öllum ólæsum, aldrei áður hefur verið unnt að lækna svo marga þjáða. Verkefnin sem bíða eru óþrjótandi og möguleikarnir miklir. Albert Einstein sagði: „Kjarnorkan hefur breytt öllu í heiminum nema hugs- unarhætti okkar. Pví fljótum við sofandi að feigðarósi. Við þurfum nýjan hugsun- arhátt í grundvallaratriðum ef mannkyn á að lifa af.“ KJARNORKUSTRÍÐ ER STÆRSTA HÖRMUNG SEM BLASIR VIÐ MANNKYNINU En sprengjan sprakk og síðan er allt breytt, heimurinn er annar, viðhorfin önnur í stjórnmálum, menningu, vísind- um og listum. Vitneskjan um afleiðingar kjarnorku- stríðs eru svo ógnvekjandi að við neitum að trúa að til þess þurfi að koma. Nái þessi þekking til þeirra sem vopnunum ráða er líklegra að þau verði aldrei not- uð. Pessi vitneskja vekur því von um að vígbúnaðarkapphlaupinu megi snúa við. Órlög mannkyns eru í húfi. Albert Ein- stein sagði að friði yrði ekki viðhaldið með valdi, friði er einungis hægt að við- halda með gagnkvæmum skilningi. Andrei Sakharof skrifaði eitt sinn úr útlegð sinni í Gorky: „Þrátt fyrir allt sem hefur gerst, finnst mér að spurningin um stríð, frið og afvopnun sé svo afdráttar- laus að við verðum að gefa henni algeran forgang, jafnvel þótt það sé oft á tíðum erfitt. Hjá því verður ekki komist að leita allra hugsanlegra ráða til að finna lausn og leggja þannig grunninn að frekari ár- angri. Mikilvægast af öllu er að koma í veg fyrir kjarnorkustríð sem er stærsta hörmung sem blasir við mannkyninu.“ Ronald Reagan hefur sagt: „Ekkert verk- efni er brýnna en að koma í veg fyrir kjarnorkustyrjöld. Við vitum að slíkt stríð getur ekki unnist og má aldrei verða háð.“ Nikita Kruschef sagði ennfremur að eftir slík ragnarök gæti enginn séð muninn á kapítalískri og kommúnískri ösku. Árið 1985 hlutu Alþjóðleg samtök lækna gegn kjarnorkuvá friðarverðlaun Nóbels fyrir starf sitt. Við afhendingu verðlaunanna fjallaði Egill Arviik, for- maður Nóbelsnefndarinnar um kjarn- orkuvígbúnaðarkapphlaupið, sóun fjár- munanna og hörmulega neyð hundruða milljóna jarðarbúa. f lok ræðu sinnar sagði Egill Arviik: „Það er í ljósi alls þessa sem Alþjóðleg samtök lœkna gegn kjarnorkuvá hljóta nú friðarverðlaun Nó- bels. En verðlaunin lýsa einnig von, von um nýjan hugsunarhátt sem brúi hyldýp- ið sem nú orsakar ótta við framtíðina. Allt mannkyn í öllum löndum sameinast í þeirri von“. Það er siðferðilega rangt að sóa hugviti íþróun gjöreyðingarvopna, það er einnig siðferðilega rangt að sóa fé í vígbúnað- arkapphlaupið, fé sem sárlega vantar til mannlegra nauðþurfta. Kjarnorkueldflaug. Slíkt vopn kostar jafn mikið og kostar aS bólusetja milljón börn í þróunarlöndunum gegn helstu sjúkdómum. 26 HEIMSMYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.