Heimsmynd - 01.03.1986, Page 137

Heimsmynd - 01.03.1986, Page 137
Hví ekki að láta „skáld hversdagslífsins" um menningarstarfsemina? ingum um allt land sem voru því miður allar byggðar með sama laginu, en hún hefur ekki efni á að búa svo um hnútana að í þessum húsum sé á boðstólum menn- ingarstarfsemi á grundvelli atvinnu- mennsku. Atvinnuleikhúsin halda áfram að vera í Reykjavík og á Akureyri, njörvuð niður af árlegum fjárframlögum ríkis og bæjar- félaga. Litlu hóparnir verða eftir sem áður húsnæðislausir eða ofurseldir leigumarkaðinum. Leikhús ljósvakans halda áfram um stundarsakir að vera til- þrifalitlar skrifstofur uns þeim verður lokað eftir að útvarp hefur breytt svo um svip að töluðu máli verðu nær úthýst þar fyrir erlendu efni, erlendri menningu. HEI, HVAÐ MEINARÐU? Hvað getur raskað þessari svartsýnu framtíðarspá sem gerir ráð fyrir hinu versta: Óbreyttu ástandi. Og eins má ætla að heyrist hljóð úr horni—er ekki 99 prósent von til þess að Alþýðuleikhúsið fái Gamla Sigtún og verður Borgar- leikhús ekki rétt bráðum tilbúið? Hverju breytir það þótt Alþýðuleik- húsinu verði afhent samkomuhús frá upphafi þessarar aldar sem er illa hentugt til leiksýninga með grunnu sviði, litlu gólfi og súlnaröðum um salinn endilang- ann? Á hvaða forsendu er það afhent Alþýðuleikhúsinu einu? Af hverju fá ekki fleiri svipaðir leikflokkar það líka til brúks? Og erum við miklu bættari þótt Leikfélagi Reykjavíkur sé loksins ætiuð viðunandi starfsskilyrði og Reykjavíkur- borg sjái loks sóma sinn í að byggja almennilegt samkomuhús sem getur hýst leiksýningar að ógleymdum öllum ráð- stefnunum. Það er nefnilega ekki nóg að marka nýjar menningarstefnur og kryfja gamlar til mergjar ef ekki er hugað að grundvelli þess markaðar sem menningin á að þríf- ast á —hvort sem hún er niðurgreidd á breiðum eða þröngum sviðum: Ef al- menningur býr við afleit lífskjör þá getur hann ekki veitt sér jafneðlileg og sjálf- sögð lífsins gæði og listir og aðrar lysti- semdir. Ef kúnninn er blankur kaupir hann ekkert. Það er sú blákalda stað- reynd sem íslenskt leikhúsfólk hefur mátt horfa upp á síðustu vikurnar. SVELTUR SITJANDI KRÁKA.... Vitaskuld hlýtur leikhúsfólk að ræða þessi vandamál á leiklistarþingi því sem haldið verður um miðjan mars. En á sama tíma og almenningur verður að horfast í augu við að lífskjör batni lítið, þá er hollt að skoða nokkra fleti sem gætu hjálpað stöðu leikhúsanna á kom- andi árum. Koma verður á skynsamlegra skipulagi á ráðningarmál leikara við leikhúsin, þannig að hreyfing sé meiri á þeim mann- afla sem þau hafa árlega yfir að ráða. Þetta er fyrst og fremst átak sem stéttar- félag leikara verður að beita sér fyrir. Það verður einnig að knýja á um að Ríkisútvarpið fái leyfi ráðuneyta til að bæta við stöðugildum við stofnanirnar svo þar megi reka leikflokka sem annist margskonar verkefni innan rásanna sem sent er út á. Ríkið verður á þennan hátt að koma til móts við skynsamlega nýt- ingu þess mannafla sem á undanförnum árum hefur verið menntaður á kostnað almennings til starfa í þessari listgrein. Gefa verður minni leikhópum færi á að starfa með starfslauna- og tækjastyrkj- um, sýnu myndarlegri en sú hungurlús sem nú er kreppt úr krepptum lófa ríkis- ins—að því tilskyldu að þessir hópar sinni ekki einungis þéttbýlissvæði suðvestur- hornsins heldur landinu öllu með far- andsýningum. Búa verður svo um hnútana að slíkir hópar geti notið lagalegrar verndar með nánari útfærslu á lögum um sjálfseignar- stofnanir sem sinni almannaheill án fjár- hagslegs ábata. Sveitarstjórnir verða að fara að sýna vott af skilningi á því að þær hafa skyldum að gegna við umbjóðendur sína á þessu sviði með skynsamlegum rekstri samkomuhúsa um allt land sem miðist við að hvetja leikhópa til ferða um landið. Félagasamtök eiga í vaxandi mæli að taka leikhúsferðir inn á starfsskrá sína og gera slíkar heimsóknir að föstum lið í starfseminni. Verkalýðshreyfingin á að taka sér til fyrirmyndar samstofna hreyfingar í Evr- ópu sem hafa um áratugaskeið skipulagt áskriftir á leiksýningar í samráði við stóra vinnustaði og leikhússtofnanir. Leikhúsin sjálf og leikflokkarnir eiga að horfast í augu við grundvöll sinn- eðlilegt og lifandi samband sitt við fjöld- ann í alþýðlegum leiksýningum— og hafa á að skipa starfsmönnum sem sinni ein- ungis því hlutverki að rækta það samband. Nokkur ráð fyrir leikhúsfólkið og menningarstefnuna í landinu. Því ef ekki breytist um, og sótt verður á markaðinn með öllum tiltækum ráðum markaðsafl- anna, þá verður leiksýningin brátt úrelt markaðsvara sem enginn vill lengur líta við, hvað þá kaupa.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.