Heimsmynd - 01.06.1987, Page 20
eftir Bjarna Harðarson
ÆVIRÁÐNINGAR OG AÐRAR RÁÐNINGAR HJÁ RÍKINU:
HUHDAR!
Fyrir meira en hálfri öld setti þýski
lögspekingurinn Max Weber fram kenn-
ingar um ágæti skrifstofuveldisins þar
sem æviráðnir embættismenn héldu uppi
stöðugleika ríkisins. Þeirra starf væri
meira en venjuleg vinna, — það væri
köllun sem menn fórnuðu lífinu fyrir og
settu hagsmuni ríkis ofar eigin hagsmun-
um. Og ennþá eru æðstu embættismenn
ríkisins æviráðnir. Menn greinir á um
hvort það verði sett í nokkurt samhengi
við Weber og fæstir muna eftir að köllun
komi málinu nokkuð við. Stjórnmálafor-
ingjar eru á móti æviráðningum í ríkis-
stofnunum og ráðuneytum. Ráðuneytis-
stjórar og forstöðumenn stofnana eru á
móti því að æviráðningarnar víki. Og þær
hafa ekki vikið enn.
Jafnvel þar sem þær hafa vikið, svo
sem í lægri stöðum, almennum störfum
opinberra starfsmanna, gildir það allt að
einu að starfsmanni hjá ríkinu er ekki
skipt út fyrir annan betri, sama hvort
viðkomandi er hauglatur prestur, dug-
laus forstjóri eða geðillur ráðuneytismað-
ur. Heimildir HEIMSMYNDAR úr
röðum stjórnmálamanna og embættis-
manna herma að til þess þurfi annað
tveggja; fádæma alvarlegt brot eða laga-
breytingu sem leggur niður viðkomandi
stofnun. Ella verður úr heil frœðslu-
stjóra-þ ræta.
...LAUNANNA VEGNA
Rökin með æviráðningum eru líka
sterk og styðjast ekki einasta við gulnuð
blöð Max Webers. Laun í opinbera geir-
Max Weber, — guðfaðir skrifstofuveldisins.
anum eru lægri en gerist á almennum
markaði og ein helsta röksemdin fyrir
láglaunastefnu ríkisins er að þar sé starfs-
öryggi manna meira en í einkageiranum.
Eða með orðum Hannesar Hafstein
ráðuneytisstjóra: „Þetta kerfi hefur bæði
kosti og galla, — það hefur lengst af verið
talið að báðir aðilar hefðu nokkurn hag
af þessu, ríkið og starfsmennirnir. Peir
gjalda þessa í lægra kaupi en hafa betri
starfstryggingu.
Ef ríkið vill bara nýta sér starfskrafta á
besta aldri og skila þeim svo út eftir þrjú
til fimm ár þá þýddi það þreföldun á
kaupi manna ...“
Sé það rétt að launaþátturinn sé afger-
andi röksemd fyrir æviráðningum og
tryggingu í starfi erum við ekki fjarri
þeirri fullyrðingu að þetta kerfi sé til
starfsmannanna vegna. Þeir gjalda svo
fyrir það með laununum. Þeir sem tala
gegn æviráðningum viðurkenna að séu
þær teknar burt þurfi launahækkun að
koma til. f fyrrnefndu lagafrumvarpi um
Stjórnarráðið var reiknað með að fleiri
stöður færu undir kjaradóm en nú er og
hans þá væntanlega að meta röskunina til
launahækkana.
STÖÐUGLEIKI OG HERFANGS-
RÁÐNINGAR
Stöðugleiki í kerfinu er talinn annar
ávinningur ríkisins af æviráðningum.
„Það er ekki hægt að segja að annað
kerfið sé gott en hitt slæmt. En menn
hafa bent á kosti æviráðninga í stjórn-
sýslu þar sem er mikill pólitískur óstöð-
ugleiki, eins og í Frakklandi fyrst eftir
stríð þegar stjórnir komu og fóru og öllu
var haldið uppi af embættismönnum,"
sagði Þórir Einarsson, prófessor í við-
skiptafræði í Háskólanum, sem meðal
annars hefur stjórnunarfæði opinberrar
stjórnsýslu á sinni könnu í fræðunum.
„Þetta kerfi er viðloðandi í Evrópu og
Max Weber eiginlega andlegur faðir
þess. Hann sýndi fram á yfirburði þess
kerfis þar sem embættismenn sætu kyrrir
og sinntu sínu starfi af köllun. Til þess
þyrftu þeir líka að vera æviráðnir svo þeir
gætu sinnt köllun sinni óskiptir. En þetta
20 HEIMSMYND