Heimsmynd - 01.06.1987, Side 90

Heimsmynd - 01.06.1987, Side 90
RUT HALLGRÍMSDÓTTIR O G ÁHRIF HANS — hvaða skilaboðum vill fólk koma á framfœri? Fötin skapa manninn segir máltækið. Og fatnaðurinn, hvernig við erum til fara, hefur áhrif á okkur sjálf, á aðra, jafnvel líf okkar og frama. „Ef mér líður illa fer ég og kaupi mér ný föt,“ segir ung kona. „Til að ná langt í viðskiptalífinu er lykilatriði hvernig jakkafötin eru, bindið og skórnir," segir ungur forstjóri. „Að vera vel klæddur er að vera klæddur með tilliti til aðstæðna, að klæðast réttum fatnaði við rétt tækifæri," segir áhrifa- maður í tískuheiminum. „Að vera vel klæddur er jafnframt að hafa eigin per- sónulegan stíl, sem þó má ekki ögra um- hverfinu um of.“ Klæðaburður kemur mikið við sögu í daglegu lífi. Því hefur löngum verið hald- ið fram að fólki líði betur vel til fara, það verði sjálfsöruggara og hafi betri stjórn á umhverfi sínu, þótt allt sé þetta afstætt. Hins vegar benda nýlegar kannanir til þess að áhrif klæðaburðar séu mikil, bæði fyrir þann sem líður vel í fatnaði sínum sem og á þá sem í kringum hann eru. Fólk er félagsverur og föt eru félags- Litríkar andstæður í ys og þys dagsins. (Mynd úr Austurstræti). leg uppgötvun. Fatnaður er vísbending um félagslega stöðu fólks, hvaða hug- myndir það gerir sér um sjálft sig og jafnvel vísbending um pólitískar skoðan- ir þess (hvort það er íhaldssamt eða vinstrisinnað), uppruna og síðast en ekki síst smekk. Fatnaður er ein leið til að tjá sig, um leið og klæðaburður miðlar upp- lýsingum um viðkomandi í allar áttir. Hver er maðurinn í Dior-jakkafötunum, hvaða mynd vill hann gefa af sér? Eða stúlkan í lopapeysunni og gulu regn- kápunni með bakpokann sinn? Hvaða skilaboðum vill hún koma til umhverfis- ins öðrum en að hún vilji hlífa sér við veðri og vindum? Maður skyldi aldrei vanmeta fyrstu hughrif hefur oft verið sagt. Af því tilefni vanda ólíklegustu menn oft klæðnað sinn þegar þeir eru að sækja um atvinnu, al- veg eins og unga stúlkan sem er að fara á fyrsta dansleikinn. Og þótt fyrstu hughrif við að hitta nýjan einstakling geti oft verið villandi vísbending um hvern mann viðkomandi hefur að geyma sýna rann- sóknir að þau virðast oft vara lengi. Það er staðreynd að eitt hið fyrsta sem fólk tekur eftir þegar það hittir einhvern er klæðaburðurinn og á nokkrum sekúnd- um dregur fólk iðulega ályktanir út frá honum. Hvort er fólk businesslike eða sexy. Líttu á fötin! Þegar engar upplýsingar liggja fyrir um starf einstaklings, ættir, bakgrunn, fjár- ráð og menntun eru fötin fyrsta vísbend- ingin. Ung pönkdrottning í afar stuttu pilsi kallar fram allt önnur viðbrögð en maður með prestakraga. Allt er þetta táknrænt. Vel klæddur maður í jakkafötum kall- ar á meiri virðingu en úlpuklæddur mað- ur í gallabuxum. Það er ákveðin viður- kenning umhverfisins á því sem er rétt, sem þykir við hæfi. Ekki það að hann eigi það skilið en rannsóknir hafa sýnt fram á þetta. Svo tekið sé dæmi gerðu tveir bandarískir sálfræðingar könnun á þessu 90 HEIMSMYND
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.