Heimsmynd - 01.06.1987, Side 74

Heimsmynd - 01.06.1987, Side 74
fjarlægari heiminum en hún er nú. En hann komst að því að jafnvel ekki á íslandi var hægt að finna sér griðland. Um þetta yrkir hann meðal annars í frægu kvæði, Ferð til íslands, sem Magn- ús Ásgeirsson þýddi svo meistaralega: Pví Evrópa erfjarri, og einnig þá raun- veruleikinn. Við örœfa- og söguhefð landsins þeir kaupa sér dvöl, sem dreymir sitt líf vera í óþökk, til einskis, og andlitin fölu, sem böl of heitra tálkossa tœrði, á þess öræfum laugast. En tekst það? spyr skáldið og svarar sjálfum sér neitandi, því að alls staðar er spurt sömu spurninganna sem knýja svo fast á samtímann: Er hvergi trúnað að finria? Hvar er réttlætið? Hvers vegna er ég alltaf einn? Og samtíminn á ekkert griðland eins og Auden átti eftir að sann- reyna á íslandi. Hingað bárust honum fréttir um uppreisn fasista á Spáni gegn löglegum stjórnvöldum. Og á Hólum í Hjaltadal varð á vegi hans dr. Herbert Göring, bróðir Hermanns. Peir hittust við morgunverðarborðið og skiptust á nokkrum kurteisisorðum. Auden segir að Herbert líkist bróður sínum ekki vit- und og sé fremur menntamannslegur út- lits. Auden kom til Reykjavíkur í júní 1936 og var einn í bænum um hríð. Honum þótti Reykjavík lítt fýsilegur stað- ur, útkjálkabær af alverstu gerð og fátt við að vera annað en drekka sig fullan á Borginni fyrir of fjár, en þar var eini barinn í bænum. í Hressingarskálanum er þó hægt að fá þokkalegustu rjómakök- ur. Á Þjóðminjasafnmu, sem opið var á miðvikudögum og sunnudögum, sá hann gamla altaristöflu af kvöldmáltíðinni sem honum þótti merkileg og hann skoðaði safn íslenskra málverka sem þá var í Al- þingishúsinu. Safn Einars Jónssonar seg- ir hann ekki vera fyrir vandfýsnar sálir. Og síðan bætir hann við þeirri setningu sem fór víst einna mest fyrir brjóstið á mörgum: „Annað er ekki markvert að sjá í Reykjavík nema Óla Maggadon niðri við höfn, Odd Sigurgeirsson út um allt, málarann Kjarval og Árna Pálsson, prófessor í íslandssögu." Kristján tíundi Danakonungur var reyndar í opinberri heimsókn til þegna sinna um þessar mundir, kom til Reykja- víkur með fríðu föruneyti 18. júní. Auden sá hann koma út úr Ráðherra- bústaðnum í hóp innlendra fyrirmanna. Um þá segir Auden að hann viti að vísu að menn séu ekki upp á sitt besta í lafa- frakka með pípuhatt, en eftir útliti þess- ara manna að dæma mundi hann ekki treysta þeim fyrir silfurskeiðunum. Auden nefnir einnig að konungur hafi farið að skoða Geysi sem hafi neitað að gjósa fyrir hann og gangi um það sögur að ástæðan hafi verið sú að af þjóðrækni- sástæðum hafi hvernum verið gefin ís- lensk sápa í stað ensku Sunlight-sápunn- ar sem hann var vanur. Um þetta má raunar lesa í Morgunblaðinu 21. júní þar sem sagt er í löngu og alvörugefnu máli frá þeim djúpu vonbrigðum sem skortur Geysis á konungshollustu hafi valdið. í þeirri grein er getið um tvær ástæður fyrir gosleysinu. í fyrsta lagi hafi móttöku- nefndin lagt ríkt á við umsjónarmann hversins, Sigurð Greipsson, að hann léti hverinn ekki gjósa að minnsta kosti tvo daga áður en von var á konungi. Þessum fyrirmælum hafði Sigurður ekki sinnt, en í öðru lagi hafði hann látið í hverinn aðra sápu en Sunlight-sápuna sem venjan var að láta í hann. Lesendum skal látið eftir að geta sér til um hvatirnar sem lágu að baki þessari hegðun Sigurðar Greips- sonar. að voru fleiri á ferðinni þetta sumar. Sænsk vika var haldin í Reykjavík og Stockholms Studentsangförbund hélt tón- leika í Gamla Bíói 30. júní. Auden var viðstaddur og þótti tónlistin leiðinleg Skólapilturinn Michael Yates sem slóst í för með Auden og Mac- Neice um hálendið. bæði vegna þess að hún var ekki pólýfón- ísk og einnig vegna þess að hann þoldi ekki karlakóra. Einnig hófust tónleikarn- ir á sænska þjóðsöngnum og sænska fán- anum var veifað og allt þetta þótti Auden belgingslegt og asnalegt og líkjast fremur því sem búast mætti við af nasistum en hegðun skynsamra skandinavískra lýð- ræðissinna. „Annað er ekki markvert að sjá í Reykjavík nema Óla Maggadon niðri við höfn, Odd Sigurgeirsson út um allt, málarann Kjarval og Árna Pálsson, prófessor í Islandssögu." Þessa mynd tók Auden af Oddi. Auden hefur væntanlega verið því feginn að sleppa burt úr þessu voðalega plássi, Reykjavík, þegar hann hélt með rútunni norður á bóginn ásamt fylgdarmanni sínum, Ragnari Jóhannes- syni. Rútuferðir voru nokkuð ævin- týralegar á þessum árum. Auden segir um veginn fyrir Hvalfjörð að hann hefði verið býsna erfiður yfirferðar fyrir fót- gangandi mann. Auk þess voru íslend- ingar almennt bflveikir og ælutaumar á gluggum rútunnar. Þetta var þó bætt nokkuð upp með rútubílasöng en gullöld hans mun einmitt hafa staðið á fjórða áratugnum. Auden þekkti vel sum vin- sælustu lögin, svo sem eins og God save the King og Integer Vitae (Eldgamla ísaf- old og Hlíðin mín fríða). Ragnar hafði útvegað þeim gistingu í Norðurárdal, á bænum Hraunsnefi, og þar undi Auden sér afskaplega vel. Hann olli hins vegar fylgdarmanni sínum von- brigðum með því að vera lítt móttæki- legur fyrir dásemdum náttúrunnar og fegurð hin íslenska landslags. Þó segir Auden um Baulu að hún líti bara snotur- lega út úr fjarska, en feginn sé hann að þurfa ekki að klífa hana. Fossar vöktu lítt áhuga hans, honum fannst merkilegt hvað hver fossinn var öðrum líkur. Á 74 HEIMSMYND
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.