Heimsmynd - 01.06.1987, Side 66
Þegar Gary Hart dró sig í hlé frá bar-
áttunni um forsetastólinn í Bandaríkjun-
um í síðasta mánuði bættist hann í fríðan
flokk stjórnmálamanna og leiðtoga sem
hafa látið kynhvötina hlaupa með sig í
gönur. Hér á íslandi þykja uppákomur af
þessu tagi líklega heldur kyndugar, enda
eru sögur um framhjáhald íslenskra
stjórnmálamanna í mesta lagi eins og
krassandi eftirréttur í saumaklúbbsum-
ræðum en hafa ekki sjáanleg áhrif á vin-
sældir viðkomandi. Þær aukast ef eitt-
hvað er, eins og dæmin sanna. Ég man
ekki betur en fólk hafi bara haft gaman
af því þegar ... Nóg! Meira en nóg! En
annars staðar eru kjósendur sem sé ekki
eins umburðarlyndir. Kynlífshneyksli
koma upp á yfirborðið með reglulegu
millibili bæði á Bretlandi og í Bandaríkj-
unum og listinn yfir þá stjórnmálamenn
sem hafa mátt draga sig í hlé með skömm
eftir að hafa lent á spríeríi er langur og
fjölskrúðugur.
En það er síður en svo nokkuð nýtt að
kvenlegur yndisþokki felli menn af stalli.
Eitt kunnasta dæmið um slíkt aftan úr
fortíðinni er að finna í sögu Rómaveldis
og snertir þau Marcus Antoníus og
Kleópötru Egyptalandsdrottningu. Eftir
að Júlíus Caesar einræðisherra hafði ver-
ið myrtur áttust þeir við um völdin, Ant-
oníus og Octavíanus, og mátti lengi ekki
á milli sjá hvor yrði ofan á. Octavíanus
var kjörsonur Caesars og naut því sér-
stakrar virðingar en hann var mjög ungur
að árum og vart jafnoki hins þrautreynda
Antoníusar. Ef Antoníus hefði gengið
beint til verks er lítill vafi á að honum
hefði tekist að ganga milli bols og höfuðs
á stráki áður en honum óx ásmegin um
Marcus Antoníusvildi ekki gefa Kleópötru drottn-
ingu upp á bátinn og missti af þeim sökum allan
stuðning. Hann fórnaði Rómaveldi fyrir konu.
John F. Kennedy naut ásta margra kvenna meðan
hann dvaldi í Hvíta húsinu. Ein þeirra gekk svo
naerri honum að það átti ef til vill óbeina sök á
dauða hans í Dallas.
of. En þá féll Antoníus kylliflatur fyrir
Kleópötru drottningu Egyptalands, sem
virðist hafa verið meira en lítið heillandi
kona. Hann eyddi eftir það flestum
stundum í Alexandríu, höfuðborg
Egyptalands, og hafði Kleópötru yfirleitt
með sér þegar hann fór í herferðir sínar.
Hann gekk og að eiga hana þó hann væri
þegar kvæntur systur Octavíanusar. Er
fram liðu stundir varð dálæti Antoníusar
á drottningu, og aukin áhrif hennar á
pólitík hans, til þess að áróðursstaða Oct-
avíanusar batnaði stórum. Flestir hinna
rómversku stuðningsmanna Antoníusar
yfirgáfu hann eftir að hafa reynt árang-
urslaust að fá hann til að gefa Kleópötru
upp á bátinn. í lokaorrustunni við Acti-
um hlupu stórir hópar hermanna Antoní-
usar til liðs við óvininn og hann varð að
hrökklast undan á flótta ásamt Kleópö-
tru. Þau frömdu síðan bæði sjálfsmorð
fremur en að falla í hendur Octavíanusar
sem varð þannig hinn fyrsti Ágústus.
Actium Gary Harts var hótelsvítan þar
sem hann dvaldi með smástirninu Donnu
Rice en ansi er hún tilkomulítil Kleó-
patra. Hún er bara ein í langri röð ungra
stúlkna sem laðast að áhrifamönnum á
öllum sviðum þjóðlífsins og breski rithöf-
undurinn Paul Bailey kallar bimbos, sem
má af hæfilegri léttúð nefna gellur á ís-
lensku. Bailey segir um gellurnar:
„Donna Rice er ein af þessum undar-
lega svipuðu konum sem virðast kunna
að meta félagsskap manna sem náð hafa
langt og líklega hefur hún sjálf náð þeim
merka áfanga að verða héðan í frá svolítil
neðanmálsgrein í mannkynssögunni.
Hún og hennar líkar virðast vera að leika
í sápuóperu með uppáhaldsstjórnmála-
manninum sínum. Ríkir og miðaldra
menn eru sérstaklega veikir fyrir gellu-
töfrum Donnu Rice og stallsystra henn-
ar. Þessar lúxuspíur eru, umfram allt,
sjálfstæðar en þó vanar því að karlmenn
eyði peningunum sínum í þær. Þær eru,
ólíkt hinum frægu hjákonum fyrri alda,
ekki viðhöld í hefðbundinni merkingu.
Þær búa í eigin íbúðum og stunda sína
vinnu en eins og allar hjákonur njóta þær
hins ljúfa lífs út í æsar.“
Það sem vakti fyrir Donnu Rice með
því að heimsækja Gary Hart á hótelsvít-
una hefur því varla verið ýkja flókið en
meiri spurning er um það hvað hann var
að hugsa. Hann vissi vel að fjölmiðlar
höfðu áhuga á einkalífi hans, og kynlífi
sérstaklega, og manaði meira að segja
fréttamenn til að fylgjast með sér. Eigi
að síður hélt hann sínu striki, rétt eins og
Marcus Antoníus fyrir orrustuna við Act-
ium, þó hann mætti vita að með því væri
hann að storka örlögunum. Hvers
vegna? Fór grái fiðringurinn bara svona
illa með hann? Annað eins hefur gerst en
samt er sjaldgæft að menn fórni vonum
sínum um forsetaembætti Bandaríkjanna
fyrir sæta stelpu. Kannski Hart sé sam-
mála Frakkanum Michel Foucault sem
sagði: „Það er þess virði að deyja fyrir
kynlíf ... Kynlíf er svo sannarlega þrung-
ið dauðahvötinni."
Ekki er gott að segja hvort John F.
Kennedy hefði tekið undir þessi orð en
hins vegar segja sumir að hann hafi
beinlínis látið lífið vegna lítt seðjandi
kynhvatar. Hann svaf hjá fjölda kvenna
meðan hann bjó í Hvíta húsinu - þag-
mælska blaðamanna um hann og fleiri
forseta kann að hafa fyllt aumingja Hart
fölsku öryggi - og ein þeirra virðist hafa
verið óvenju aðgangshörð. Kennedy var
veikbyggður likamlega, þó hann virtist
oftastnær geisla af lífsþrótti, og eftir
Gary Hart hefur löngum sóst eftir félagsskap fag-
urra kvenna. I kosningabaráttunni 1982 hafði
leyniþjónustan nokkrar áhyggjur af sambandi
hans og leikkonunnar Debru Winger.
66 HEIMSMYND