Heimsmynd - 01.06.1987, Side 63

Heimsmynd - 01.06.1987, Side 63
hér verður kölluð Jónína og bar ættar- nafn. Bæði fullyrtu að ekki hefði verið um ástarsamband að ræða heldur aðeins vináttu. Sú vinátta stóð enn er þetta mál hófst. Frú Jónína með ættarnafnið bjó um hríð með manni sem kalla má Hans Hansson en er Gunnar Sigurður var myrtur var þeirri sambúð lokið. Hans bar við rannsóknina að laugardagskvöldið eftir að Gunnar leigubflstjóri var drepinn hefði hann farið á dansleik í Reykjavík og eftir dansleikinn haldið á heimili frú Jónínu. Hún hefði komið heim skömmu síðar, greinilega undir áhrifum áfengis og mjög hrædd. Hún sagði Hans að hún hefði verið í Klúbbnum að aðstoða rann- sóknarlögregluna við að hafa uppi á morðingja leigubflstjórans; hún hefði átt að dansa við hina og þessa menn sem lögreglan benti henni á og komast að því hvort þeir bæru á sér byssu. Hans kvaðst hafa tekið þetta sem tómt rugl úr henni. Hún hélt hins vegar áfram að tala um málið og bað hann nú að slökkva öll ljós í íbúðinni því maðurinn sem myrti leigu- bflstjórann myndi innan skamms koma í íbúðina en Hans þyrfti þó ekkert að ótt- ast; honum yrði ekkert mein gert. Hann sagðist þá hafa spurt hana hver hefði drepið bflstjórann og hún svarað að það væri frændi hennar en ekki nefnt nein nöfn. Eftir um það bil tvær klukkustund- ir róaðist svo Jónína og fór að sofa og daginn eftir kannaðist hún ekki við neitt og sagði raunar að Hans hlyti að vera ruglaður að segja hana hafa sagt þetta um nóttina. Seinna hefði hann svo öðru hvoru rætt morðmálið við hana og hefði honum þá stundum fundist að hún væri að því komin að segja honum frá ein- hverju en síðan ekki treyst sér til þess. Það var svo Hans sem í mars 1969 sagði frú Jónínu frá því að maður að nafni Jón Jónsson hefði verið handtekinn fyrir morðið á Gunnari Sigurði. Hann bar að hún hefði þá orðið „smáskrýtin við“ og sagt að það gæti ekki verið að hann væri morðinginn; hann væri stálheiðarlegur maður. Hún hafi þá einnig verið undir áhrifum áfengis. Þegar rætt var við frú Jónínu sagðist hún ekki muna eftir orðaskiptum sínum og Hans eftir umræddan dansleik í Klúbbnum en hafi hún sagt það sem hann fullyrti hafi það verið hrein vit- leysa, bull og ímyndun. Hún kvaðst raun- ar hafa hitt rannsóknarlögreglumann einn í Klúbbnum þetta kvöld en ekkert rætt við hann um leigubflstjóramorðið. Eftir að Jón Jónsson var handtekinn og grunaður um morðið kvaðst hún svo hafa hringt til rannsóknarlögreglunnar eða sakadóms og skýrt þeim sem hún talaði við frá því að hún teldi að Jón hlyti að vera saklaus. Dómsfulltrúi sá sem hún reyndist hafa talað við kannaðist við þetta símtal. Þetta mál var rannsakað svo ítarlega sem raun bar vitni vegna þess að eina konan sem vitað var til að Gunnar Sig- urður hefði átt nokkurs konar samskipti við virðist hafa verið alldrykkfelld frú sem hann mun stundum hafa keypt vín fyrir og farið með á heimili hennar. Systir Gunnars Sigurðar, sem bjó í Bandaríkj- unum, kom hingað til lands skömmu eftir morðið og þegar hún fór út að nýju fór faðir hennar, sem hafði sem fyrr segir haldið heimili með syni sínum, út með henni. Systirin kvaðst hafa séð nafn kon- unnar ritað í dagbók Gunnars en sú dag- bók gufaði síðar upp með einhverjum hætti. Hún mundi ekki nafnið en mundi þó að það byrjaði á sama staf og raun- verulegt nafn frú Jónínu. Á hinn bóginn taldi hún sig myndu hafa munað það ef konan hefði borið ættarnafn og því hefði svo líklega ekki verið. Faðir hennar - sem hafði látist í Bandaríkjunum áður en Jón Jónsson var handtekinn - sagði henni að konan hefði verið gift sjómanni og að Gunnar Sigurður hafi verið orðinn þreyttur á kvabbi konunnar og stundum sagt sér að hann skyldi segja að Gunnar væri ekki heima eða sofandi þegar hún hringdi. Einu sinni hafði konan komið á heimili þeirra feðga en ekki hafði faðir- inn lýst henni fyrir dóttur sinni. Hún mundi heldur ekki hvar konan hefði búið. Þegar rannsakaðar voru skýrslur um akstur Gunnars og kannað hvort skráðar væru ferðir hans á heimili frú Jónínu með ættarnafnið fannst eitt tilvik um slíkt en geta ber þess að hún bjó í stóru fjölbýlishúsi. Hún kvaðst heldur ekkert hafa þekkt til Gunnars Sigurðar né annað um málið vita. Þessi angi rann- sóknarinnar skilaði því engum árangri fremur en svo margir aðrir. Eftir að geðlæknir hafði úrskurðað að Jón Jónsson væri fyllilega sakhæfur í þessu máli, væri hann á annað borð meira við það riðinn en hann hefði þegar viðurkennt, var svo loks dæmt í málinu fyrir Sakadómi Reykjavíkur og dómur kveðinn upp 13. febrúar 1970. Ákæran var í fernu lagi: í fyrsta lagi var Jón sakaður um að ráðið Gunnar Sigurð Tryggvason af dögum; í öðru lagi var hann sakaður um hlutdeild í morði; í þriðja lagi var hann sakaður um stuldinn á byssu Jóhannesar á Borg, og í fjórða lagi var hann sakaður um að hafa haft byssu ólöglega undir höndum. Þrír dóm- arar kváðu upp dóminn en þeir urðu ósammála um niðurstöðuna. Tveir þeirra sýknuðu Jón Jónsson af ákæru um morð, enda þótt þeir tækju fram að framburður hans um það hvernig hann tapaði byss- unni á sínum tíma og fann hana svo aftur væri „mjög tortryggilegur". Þeir segja ennfremur að viðbrögð hans við við því er byssan gekk honum úr greipum í mars 1969 og handtökunni daginn eftir bendi fremur til sektar en sakleysis. Á hinn bóginn segja þeir að ekkert hafi komið fram sem bendi til þess að Jón hafi ekki verið sofandi á heimili sínu er morðið var framið og sé það stutt vætti dóttur hans og móður. Enginn hafi orðið var við Jón á ferli þessa nótt og enginn telji sig hafa orðið varan við neitt óeðlilegt í fari hans um þessar mundir. Þá hafi heldur ekkert komið fram sem bendi til þess að neins konar kynni eða tengsl hafi verið milli Jóns og Gunnars og sennilegar ástæður hægt að leiða fyrir því hvers vegna Jón hefði átt að ráða hinn síðarnefnda af dögum. Ekki vildu dómararnir heldur dæma Jón fyrir hlutdeild að morði því enda þótt þeir teldu frásögn hans um byssuhvarfið fjarstæðukennda „yrði ákærða ekki refsað, nema sannað þætti, að huglæg refsiskilyrði væru fyrir hendi, þ.e. að hann hefði látið byssuna í té, til þess að hún yrði notuð í þessu skyni, eða að hann hefði að minnsta kosti vitað eða HEIMSMYND 63
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.