Heimsmynd - 01.06.1987, Page 22

Heimsmynd - 01.06.1987, Page 22
HVERJIR ERU ÆVIRÁÐNIR kerfi er stirt og hefur marga ókosti. Meiri hreyfanleiki er æskilegur en það þarf vissan stöðugleika. í Bandaríkjunum tekur forsetinn að herfangi við kosningar um 250 þúsund störf og skiptir milli sinna manna, Þar af ræður hann í 750 toppstöð- ur. Núna eru til dæmis allir póstmeistarar áreiðanlega Reagan-menn. Þar er meiri hreyfanleiki, en svona herfangsráðning hefur sína ókosti. Hér er vissulega til að ráðherrar ráði svona herfangsráðningu, en ekki nema þegar stöður losna. Ráð- herra sem tekur við getur ekki skipt um í embættum þar sem menn sitja en hann getur sett sína menn í stöður þegar þær losna. Annars held ég að öll opnun sé til góðs og það megi liðka kerfið. Til dæmis með því að fjölga stöðum sem ráðið er í af einstökum ráðherrum, eins og er með aðstoðarmenn ráðherra, og í annan stað að ráða menn til fjögurra eða sex ára. Þetta færist í vöxt núna og það er til góðs. En ef það ætti að koma því á að skipt væri um allar toppstöður hjá ríkinu á fjögurra til sex ára fresti þá er engin trygging fyrir að ekki yrði um herfangs- ráðningu að ræða. Ekki nema sett yrðu ákveðin skilyrði í lögum um það hvernig að ráðningu væri staðið og hvers væri krafist af viðkomandi." Þórir benti ennfremur á að enn eldra kerfi í skipan yfirmanna væri svokölluð kollegial stjórnun eins og ennþá er við lýði í háskólanum. Þá kýs hópur manna einn úr sínum hópi til að fara með stjórn- unina til ákveðins tíma. Slíkt fyrirkomu- lag var í danska stjórnkerfinu til 1848. En það gengur ekki nema fyrir sé hópur þar sem ætla má að stjórnunargeta allra sé álíka mikil. Það er talið eiga við í Há- skóla þar sem reiknað er með að allir prófessorar, lektorar og aðrir kennarar séu færir um að skipa stjórnunarstöður. „En þetta kerfi hefur líka ókosti. Langtímasjónarmið tapast niður og deildarforsetar geta ýtt málunum á und- an sér og sagt: Ekki á mínum þremur árum. En þetta er jákvætt þar sem það getur gengið.“ Um köllun embættismanna sagði Þórir að það væri alltaf óáþreifanlegur hlutur. En hún er góð þar sem hún er til, eins og virðist oft vera í toppstöðunum í stjórn- kerfinu, þar sem menn væru „ótrúlega virkir“. En svo eru alltaf til heimaríkir hundar og það á ekki síst við um stofnan- ir. En Weber taldi að það eina sem ætti að virkja í embættismönnum væri köllu- Eiginlegum æviráðningum opinberra starfsmanna var hætt 1973 en áfram er skipað í verulegan fjölda af stöðum hjá ríkinu. Skipun þýðir í raun það sama og æviráðning og yfirleitt eru yfirmenn ríkis- stofnana skipaðir. Stór hluti kennara er líka skipaður. Annars staðar, svo sem í læknastétt, eru skipanir fátíðar nema á heilsugæslustöðvum. Allt að einu getur til dæmis sjúkrahúslæknir haldið stöðu sinni svo lengi sem hann vill meðan ekki kemur fyrir alvarlegt brot í starfi. Þar gildir hefðin fyrir því að opinberum starfsmanni er ekki skipt út fyrir annan betri! Ráðuneytisstjórar, skrifstofustjórar og deildarstjórar í stjórnsýslu eru skipaðir í sínar stöður og því æviráðnir. Utanríkis- þjónustan lýtur sömu grundvallarreglu, en þar er þó sá munur á að menn eru flutningsskyldir. Þannig eru bæði sendi- herrar og lægra settir menn í sendiráðum fluttir milli landa og starfa stundum í ráðuneytinu hér heima. Utanríkisráðu- neytið tekur ákvörðun um flutning ein- stakra manna og starfsmenn eru skyldir til að hlýða þeim boðum. Á síðasta kjörtímabili skipaði forsætis- ráðherra nefnd til að gera tillögur um hvernig gera mætti stjórnkerfið virkara og bœta stjórnarhœtti. Afraksturinn var frumvarp til nýrra laga um Stjórnarráð íslands, þar sem meðal annars var gert ráð fyrir afnámi æviráðninga í stjórnsýslu og að enginn yrði ráðinn lengur en sex ár í sama embættið. Þá var í upphaflegum búningi sett sú regla að enginn mætti starfa lengur en tólf ár í sama ráðuneyti en gæti að þeim tíma liðnum flust yfir í annað ráðuneyti. í endanlegum búningi var þessi hámarkstími átján ár með sér- stöku leyfi ráðherra. í upphaflegum bún- ingi var einnig gert ráð fyrir að svokallað- ur ráðherraritari, sem ráðinn væri eins og aðstoðarmenn ráðherra eru nú ráðnir, yrði æðsti embættismaður ráðuneytis en í endanlegum búningi var ráðuneytisstjóri færður til fyrri virðingar. Steingrímur Hermannsson sagði í samtali við HEIMSMYND að innan ríkisstjórnar- innar hefði verið samstaða um að afnema æviráðningar en ýmsar aðrar tillögur frumvarpsins hefðu verið útþynntar í meðförum stjórnar og þings. Þess vegna hefði hann ekki talið að frumvarpið í endanlegri gerð væri nógu róttækt til þess að rétt hefði verið að fá það samþykkt sem lög, en stjórnin lagði það fram til að kveikja umræður um málið. Málið dag- aði uppi á 108. löggjafarþingi. Aðspurð- ur um andstöðu við afnám æviráðninga sagði Steingrímur að hún hefði helst komið frá embættismönnum og meðal annars fyrir þrýsting frá þeim hefði leyfi- legur starfstími í ráðuneyti verið lengdur úr tólf árum í átján. Framkvæmdastjórar, forstjórar og sumir aðrir embættismenn í stjórnunar- störfum opinberra stofnana eru ævi- ráðnir með skipun í embætti. Á síðasta kjörtímabili var einnig flutt frumvarp til laga um afnám æviráðninga í opinberum stofnunum en náði ekki fram að ganga. Það var Ragnar Arnalds sem flutti frum- varpið og hafði flutt samhljóða frumvarp 1977. Ragnar var einn flutningsmaður þessa frumvarps, en svo virðist sem það hafi dagað uppi í þinginu 1983 og ekki komið fram eftir það. Prestar eru æviráðnir og því hefur oft verið hreyft innan kirkjunnar að þar þyrfti breyting að verða á. Um málið eru þó mjög skiptar skoðanir og flestir telja að prestskosningar, sem hafa verið við lýði fram undir þetta, hafi mjög dregið úr klerkum að færa sig til. Læknar á heilsugæslustöðvum eru ævi- ráðnir en sjúkrahúslæknar eru það ekki- Af heimildum HEIMSMYNDAR innan læknastéttar er þó ljóst að þar gildir sú al- menna regla í mannaráðningum hins opinbera að starfsmaður er ekki látinn fara meðan honum verða ekki á alvarleg glappaskot. Afnám æviráðninga, sem var almenna reglan í ráðningu allra opin- berra starfsmanna til 1973, hefur því haft takmörkuð áhrif, - sumstaðar alls engin. 22 HEIMSMYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.