Heimsmynd - 01.06.1987, Blaðsíða 94
HLHDUBl'JRI >XJI :1
segir heilmikið um stöðu fólks,“ segir
Mark H. McCormack, höfundur fyrr-
greindrar metsölubókar. „Almennt er
mun áhrifaríkara að vera íhaldssamur í
fatavali. Ef maður gefur sér þá forsendu
að geta dæmt fólk út frá klæðaburði er
það sjálfgefið að hið sama gildir um
mann sjálfan. Því íhaldssamari sem
klæðnaðurinn er og gefur minna til
kynna, því erfiðara er fyrir aðra að fella
dóm um mann. Ef karlmenn í viðskiptum
mæta á fundi í fráhnepptum skyrtum,
jafnvel með gullkeðjur um hálsinn, er
ljóst að margir munu draga af því vafa-
samar ályktanir.“
Coco Chanel sagði eitt sinn að ef kona
væri ósmekklega klædd tæki maður eftir
fötunum, en væri hún hins vegar óaðfinn-
anleg í klæðaburði tæki maður eftir kon-
unni. Það er hins vegar aðeins lítill hópur
kvenna um heim allan sem hefur efni á
að klæðast Chanel-fatnaði, svo dýr sem
hann er. Hins vegar ráðleggja markaðs-
fræðingar fólki í viðskiptum að vera það
óaðfinnanlega íhaldssamt til fara að við-
skiptaaðilar gefi klæðnaði þeirra engan
gaum að öðru leyti en ljóst sé að fötin
passi.
Það var einnig tískudrottningin Coco
Chanel sem sagði að fátt færi eins fljótt
úr tísku og tískan sjálf - hins vegar væru
persónulegur stíll og vandaður klæða-
burður sígildir. Samkvæmt skoðana-
könnunum á klæðnaði karlmanna í við-
skiptalífinu kjósa flestir að gefa af sér
ímynd stöðugleika fremur en að vera
álitnir glæsilega til fara eða jafnvel sam-
kvæmt nýjustu tísku. Það er hins vegar
komin mun minni hefð á klæðnað
kvenna í viðskiptum eða opinberu lífi.
Margar konur keppast við að klæðast
íhaldssömum drögtum og skyrtum með
slaufum í líkingu við jakkaföt og bindi
karlmanna. Þær klippa gjarnan hár sitt
stutt, eru dökkklæddar og íhaldssamar.
Dæmi um þessa týpu eru Lára Ragnars-
dóttir hjá Stjórnunarfélaginu og Ragn-
hildur Helgadóttir fyrrum heilbrigðisráð-
herra. Dæmi um hið gagnstæða eru þing-
konur Kvennalista og frambjóðendur. Á
Kaupkona í hjarta borgarinnar klæðir sig á
veraldlega vísu, afar kvenlega og glæsi-
lega.
s
9
<
Inga Bjarnason leikstjóri vill
vera öðruvísi til fara, grefur
gjarnan upp gömul föt frá
hinum og þessum og setur
saman eftir eigin smekk.
94 HEIMSMYND