Heimsmynd - 01.06.1987, Qupperneq 110
Ullarframleiðendur
tóku mini-tfskuna upp
á sfna arma. Pálína
Jónmundsdóttir feg-
urðardrottning is-
lands árið 1964 starf-
aði sem fyrirsæta í
Parfs f nokkur ár og er
hér f ullardragt 1968.
fslenskar Ijósmynda-
fyrirsætur skarta pínu-
pilsatískunni árið
1970. Matthildur (Lóló)
Guðmundsdóttir og
Henný Hermanns-
dóttir.
fslenskar fegurðardís-
ir 1968 létu stúdenta-
óeirðir og gallafatnað
ekki hafa áhrif á sig.
Þetta árið voru mini-
pils allsráðandi í
Reykjavík og í fegurð-
arsamkeppninni
kepptu þær í mini-
hanastélskjólum. Tal-
ið frá vinstri eru
Hrefna W. Steinþórs-
dóttir, Helen Knúts-
dóttir, Helga Jóns-
dóttir, Gunnhildur
Ólafsdóttir og sú sem
var kjörin ungfrú fs-
land, Jónína Konráðs-
dóttir.
MINI
RILS
innar Out of Africa.
Við fínni, þunna mini-kjóla eru aftur á
móti komnir skór frá síðasta mini-tíma-
bili, fínlegir skór með háa hæla og bandi
aftur fyrir hæl, gjarnan úr vöfðu leðri.
Slíkir skór voru oft kallaðir netaskór. Nú
er bara að vona að ráðamenn tískunnar
taki ekki upp á því að bjóða okkur þykk-
sóluðu eða platform-skóna sem fylgdu
mini-pilsunum hér í gamla daga. Það
muna ábyggilega einhverjir eftir sködd-
uðum ökklum frá þeim tíma.
Nú er tískan þó skynsamari en svo, og
það sem var vandamál fyrir tuttugu árum
verður líklega meira í ætt við krydd í
tilveruna fyrir týndu kynslóðina frægu og
auðvitað fleiri. Almennt heldur fólk sér
nú í mun betra formi en á síðasta mini-
skeiði, þannig að fleiri ættu að hafa efni á
að hækka pilsfaldinn. Konur í opinberum
störfum og í bönkum verða örugglega
ekki í mini-pilsum í vinnunni nema týpan
sem er undantekningin frá reglunni.
Sumar eiga kannski eitt stutt pils heima
til að vera í þegar það á við. Eða býst
einhver við að sjá miklu meira en hné-
skeljarnar á Salóme Þorkelsdóttur, Guð-
rúnu Helgadóttur, Guðrúnu Agnarsdótt-
ur eða Ragnhildi Helgadóttur? Enginn á
von á því að forseti okkar, Vigdís Finn-
bogadóttir, setji þing í mini-pilsi hversu
allsráðandi sem þau verða í tískunni
næsta haust. Bryndísi, konu Jóns Bald-
vins, má víst telja undantekningu frá
reglunni, hvað sem hún svo gerir í
málinu.
Varðandi mini-tískuna verður þó að
slá einn varnagla, það er mikið vatn
runnið til sjávar frá síðasta pínupilsa-
skeiði. Konur sækjast í auknum mæli til
áhrifa í þjóðfélaginu, sjálfstæðar, vilja-
sterkar konur sem láta ekki segja sér
fyrir verkum. Það er nefnilega eitt fyrir-
bæri sem ber höfuð og herðar yfir mini-
pilsin í tískunni nú og það er konur með
eigin stíl ...
110 HEIMSMYND