Heimsmynd - 01.06.1987, Page 120

Heimsmynd - 01.06.1987, Page 120
Sveinn Björnsson heilsar upp á Roosevelt í Hvíta húsinu, eins og lýst er í viðtalinu við Gígju. Roose- velt var sem kunnugt er lamaður neðan mittis og tók því á móti forsetanum sitjandi í sæti sínu. var réttsýnn og ákaflega góður maður. Nú segir fólk kannski: Hún var alltof nákomin honum til að nokkuð sé að marka hana, en ég er fullviss um að ég hef rétt fyrir mér. Sveinn var ekki laus við að vera strangur en hann var afar réttlátur og í stuttu máli mjög mikil pers- óna. Eitt var mjög ákveðið einkenni hans, og raunar mannsins míns líka, ef út í það er farið: Peir voru aldrei hræddir. Ef þeir voru vissir um að þeir væru að gera rétt voru þeir aldrei hræddir við að standa við sinn málstað. Þeir hefðu aldrei fyrir vinskap manns, vikið af vegi sann- leikans.“ „Nú fylgdist þú grannt með Sveini í forsetatíð hans, þeim tíma þegar segja má að forsetaembættið hafi verið mótað. Hvernig leit hann á þetta embætti?" „Fyrst og síðast leit hann á það sem þjónustustarf. Hann taldi að forsetinn ætti að vera tákn þjóðarinnar sem hún gæti borið virðingu fyrir og litið upp til, en mikilvægast af öllu var þjónustan við þjóðina.“ „Finnst þér forsetaembættið hafa breyst síðan Sveinn gegndi því?“ „Auðvitað hefur það breyst. Það hefur allt breyst. Ráðherrarnir hafa breyst, embættismennirnir hafa breyst og að sjálfsögðu hefur forsetaembættið breyst. Þær breytingar eru heldur ekki allar vit- lausar. Annars hef ég Svein Björnsson í þvílíkum hávegum að ég á erfitt með að tjá mig um þetta. Ég er líka orðin 68 ára gömul og finnst náttúrlega að fortíðin hafi að sumu leyti verið glæsilegri en nútíminn; það er líklega ekki nema eðli- legt. Menningin hefur vissulega stór- aukist og dafnað svo ekki er hægt að líkja því saman við það sem þekktist í mínu ungdæmi, en ég get ekki neitað því að mér finnst pólitíkin hafa dalað. Það voru áreiðanlega meiri karakterar í þessu hér áður fyrr, með fullri virðingu fyrir öllum þeim ágætu mönnum sem nú fást við stjórnmál." En það var ekki forsetaembættið eitt sem Gígja sá beinlínis verða til fyrir augunum á sér, heldur utanríkisþjónust- an líka. Henrik Sv. Björnsson var einn þeirra ungu og atorkusömu manna sem fengnir voru til að skipuleggja utanríkis- þjónustu íslands eftir að sambandið við Dani rofnaði og lýðveldisstofnunin færð- ist sífellt nær. „Þeir voru fimm sem undirbjuggu þetta hvað mest. Auk Henriks voru það Agnar Klemens Jónsson, Stefán Þor- varðarson, Pétur Benediktsson og Gunn- laugur Pétursson, allt miklir ágætismenn sem höfðu verið í dönsku utanríkisþjón- ustunni og kunnu því til verka,“ segir Gígja. „Mér fannst geysilega intressant að fylgjast með þeim að störfum. Þeir gerðu svo litlar kröfur til allra nema sjálfra sín, töldu það hreinlega skyldu sína að vinna eins vandlega og nokkur kostur var á. Og þetta tókst vel. Það var velt forseta, en það var þegar Sveinn Björnsson faðir hans kom í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna. „Bandaríkjamenn urðu fyrstir til þess að sýna okkur þann sóma að bjóða þjóð- höfðingja okkar í opinbera heimsókn,“ segir Gígja, „og Henrik átti ein'u sinni erindi í State Department til þess að ganga frá einhverju varðandi heimsókn- ina. „Oh Mr. Björnsson,“ sögðu Amerík- anarnir, „any relation to the..?“ „He happens to be my father,“ muldraði Henrik minn og þú veist hvernig Amerík- anar eru, léttlyndir og áhyggjulausir. Þeir sögðu bara við Svein, þegar honum var boðið í Hvíta húsið: „Why don‘t you take your son with you?“ Henrik fór þess vegna og hitti Roosevelt þó auðvitað hafi þeir ekkert talað saman; Roosevelt ræddi Eftir að Henrik og Gígja urðu sendiherrahjón íslands hjá NATO í Brussel kynntust þau vel framkvæmdastjóra banda- lagsins, Joseph Luna Þau hitt- usteinusinni af tilviljun ÍAþenu þar sem Henrik var jafnframt sendiherra og hélt kokkteilboð sem Luns frétti af. „Þið voruð ekki að hafa fyrir því að bjóða mér," sagði Luns brosandi, „svo ég bauð mér bara sjálfur." voðalega merkilegt hvað þetta tókst vel á þessum stutta tíma.“ Svo hringdi síminn einu sinni á Sjafn- argötunni og það var Ólafur Thors. „Hann sagði Henrik að það væri laus staða í hinu nýja sendiráði okkar í Was- hington. „Viltu fara?“ spurði hann blátt áfram. Við höfðum einn dag til að ákveða okkur og ganga frá okkar málum en við fórum. Þetta var á stríðsárunum og við fórum með convoy til Bandaríkj- anna og máttum fylgjast með skipunum sem var sökkt af kafbátum allt í kringum okkur.“ „Varstu smeyk?“ „Nei, ekki beinlínis, meira eins og lömuð. Þetta var fyrst og fremst óhugn- anlegt. Auðvitað hugsaði ég til þess hvað myndi gerast ef skipið okkar yrði fyrir tundurskeyti — við sáum fólk á flekum úr skipunum í kringum og það var enginn tími til að tína það upp - en sem betur fer gekk allt vel og við komumst heilu og höldnu til Bandaríkjanna. Þegar við fór- um svo frá Ameríku sigldum við Iíka í convoy en þá var komið nærri stríðslok- um og engar árásir gerðar.“ íslenska sendiráðið í Washington laut um þær mundir stjórn Thors Thors sendi- herra en Henrik var einn sendiráðsritara. Hann varð þó einu sinni svo frægur að vera boðið í Hvíta húsið að hitta Roose- náttúrlega bara við Svein. Henrik sagði mér svo frá því eftir á að þegar komið var með kokkteilana — Ameríkanarnir alltaf með þessa kokkteila sína! - hefði hann veitt því athygli að þegar lítið bar á hefði Roosevelt skvett úr kokkteilnum sínum í nálægan blómapott.“ Annars harðneitar Gígja að segja mér nokkrar sögur af öllu því fyrirfólki sem hún og Henrik kynntust í þeim ýmsu löndum þar sem utanríkisþjónustan setti þau niður. „Það væri namedropping\“ segir hún skelfingu lostin, „og slíkt er bara ekki í mínu eðli. Þar að auki voru þessir fyrirmenn yfirleitt ekki það fólk sem við kynntumst best; við hittum þá í veislum og við opinber tækifæri og mað- ur á ekkert að vera að gaspra um þess háttar kunningsskap. Á hinn bóginn eignuðumst við auðvitað ýmsa raunveru- lega vini í útlöndum og mér þykir æ vænna um það með árunum þegar þeir láta í sér heyra.“ Eftir að þau Henrik og Gígja sneru heim frá Bandaríkjunum voru þau á ís- landi um hríð en síðan lá leiðin til Evr- ópu. Lengst voru þau í París, eða í ellefu ár alls. „Það átti reyndar að senda Henrik aft- ur til Washington þegar við vorum búin að vera dálítinn tíma í París en sem betur fer varð ekkert úr því. „Það eru ótal margir ungir diplómatar sem vilja ekkert 120 HEIMSMYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.