Heimsmynd - 01.06.1987, Side 134

Heimsmynd - 01.06.1987, Side 134
Valdimar örn Flygenring hefur látið mjög að sér kveða á síðustu árum. Hann leikur eitt aðalhlutverkanna í Foxtrot. Steinar Úlafsson er óþekktur ungur leikari sem Frostfilm-menn fundu í Menntaskól- anum við Hamrahlíð og hafa mikla trú á. kvikmyndasmiðir fyrir bragðið; þeir leggi alltof mikla áherslu á snöggar klippingar, óþarfar hreyfingar og alls konar trix sem nauðsynleg eru til að ná eftirtekt áhorf- enda í þröngu formi örstuttrar auglýsing- ar. Þeir voru spurðir um þetta. „Þetta er náttúrlega eins og hver önnur þvæla. Pað má eins halda því fram að maður sem siglir hraðbát geti ekki verið á sjó. Við skulum athuga það að drama í kvikmynd byggist á myndmáli, ekki leikritsformi. Pað er einmitt einn helsti galli flestallra íslensku kvikmyndanna hversu lítt höfundar þeirra hugsa á mynd- máli, einfaldlega vegna þess að hér eru gerðar svo fáar myndir að menn fá litla þjálfun. Auðvitað munum við notfæra okkur ýmislegt sem við höfum lært af auglýsingagerðinni, annað hvort væri nú. Ef auglýsingarnar okkar eru skoðaðar kemur í ljós að þær eru ótrúlega fjöl- breyttar; við höfum tekist á við flest vandamál sem upp koma við kvikmynda- gerð og reynt að finna sem árang- ursríkast myndmál til að leysa þau. Foxt- rot verður engin artí-fartí mynd og við verðum áreiðanlega ekki með mikið af verulega löngum og flóknum skotum. Þar sem þetta verður spennumynd ætlum við að keyra hana á hraða og axjón og kvikmyndatakan, klippingin og annað mun auðvitað draga dám af því. Klipp- ingin — ætli hún verði ekki í einhverjum svona Mið-Atlantshafs-ryþma\ miðja vegu milli þess sem tíðkast í Evrópu ann- ars vegar og Bandaríkjunum hins vegar.“ í stúdíói Frostfilms við Grettisgötuna er heljarmikill krani sem þremenningarn- ir hafa látið smíða fyrir sig og ætla sér að nota óspart við kvikmyndatökuna. Svona kranar þykja nauðsynlegir í útlöndum en hafa lítið sést á íslandi áður. Efst í hon- um verða tveir menn og stjórna kvik- myndatökuvélinni og kranann er hægt að hækka og lækka og sveigja út á hlið. Pegar kraninn er kominn upp á bílpall verður unnt að ná alls konar skotum og myndrömmum sem ella væru tómur hug- arburður. Þeir eru greinilega dálítið montnir af krananum sínum og hyggjast nota hann óspart. Þá hafa Frostfilm-menn ekki síður lagt mikla hugsun í framleiðsluhlið myndar- innar. „Það sem hefur einkennt íslenskar kvikmyndir til þessa er að þær hafa að langmestu leyti verið verk eins manns. Leikstjórinn hefur yfirleitt skrifað hand- ritið sjálfur, hann hefur verið að vasast í fjármögnun, framleiðslunni, kynning- unni, kvikmyndatökunni, klippingunni og svo framvegis. Auðvitað er það varla á færi nokkurs manns að halda einn um alla þræðina í svo flóknu fyrirbæri sem kvikmynd er, en ýmsir hafa farið flatt á því að reyna það. Hinn dæmigerði ís- lenski kvikmyndaleikstjóri kemur með myndina sína til landsins að morgni frum- sýningardagsins, fúlskeggjaður orðinn og dauðþreyttur eftir vökur síðustu nætur en auðvitað himinlifandi enda verkinu lokið. Svo rennur upp fyrir honum mán- uði seinna að eitthvað er að, áhorfendur láta sig vanta og allt í voða.“ Hjá Frostfilm verður farið öðruvísi að, segja þeir. „í fyrsta lagi verður enginn einn dómínerandi hjá okkur. Þetta er sameig- inlegt hugarfóstur fimm manna; okkar þriggja, Sveinbjörns og Lárusar Ýmis. Þannig er mun minni hætta á því að við María Ellingsen lék í mynd Hrafns Gunn- laugssonar, Okkará milli, en síðan hefurlít- ið farið fyrir henni. Hún mun leika aðal- kvenhlutverkið í Foxtrot. verðum blindir á einhver reginmistök sem við værum að gera, auk þess sem hver og einn getur náttúrlega einbeitt sér miklu betur að sínu sérstaka sviði. Það sem vantar hér á íslandi er raunverulegt kvikmyndaframleiðslufyrirtæki og við eigum okkur draum um að Frostfilm geti orðið slíkt fyrirtæki. Við myndum þá ekki endilega framleiða eingöngu okkar eigin verk heldur hjálpa öðrum að þróa og þroska hugmyndir sínar svo tæknileg gæði væru tryggð. Að minnsta kosti erum við ekki að tjalda til einnar nætur þó auðvitað sé verkefni númer eitt, tvö og þrjú að klára Foxtrot og gera hana eins vel úr garði og okkur er unnt.“ Metnaðurinn er sem sé nægur. Þeir Frostfilm-menn bæta því við að ef íslensk kvikmyndagerð komist raunverulega á fæturna megi allt eins búast við hverju sem er. „Ég held að orkan hér sé góð,“ segir Ásgeir. „Ég þekki til bæði í Noregi og Svíþjóð og við íslendingar erum töluvert kaldari, djarfari, en þessar þjóðir báðar. Ef við komumst til manns í kvikmynda- gerð er ég viss um að þessi íslenski pers- ónuleiki muni geta lagt ýmislegt til mál- anna; það eru, þegar öllu er á botninn hvolft, einkum þeir sem hafa eitthvað djarft og óhefðbundið fram að færa sem slá í gegn, eða meika það eins og maður segir.“ Þrír ungir leikarar fara með aðalhlut- verkin í Foxtrot. Þekktastur þeirra er Valdimar Örn Flygenring en hin tvö eru María Ellingsen og Steinar Ólafsson. María lék sem kunnugt er í mynd Hrafns Gunnlaugssonar, Okkar á milli, en Steinar er náttúrutalent sem þeir Frostfilm-menn fundu í Menntaskólan- um við Hamrahlíð. Aðrir leikarar eru til dæmis Sigurður Skúlason, Jón Sigur- björnsson, Hallmar Sigurðsson, Guðrún Ásmundsdóttir, Eyvindur Erlendsson, Guðrún Gísladóttir, Halldóra Björns- dóttir, Sigurður Karlsson, Vilborg Hall- dórsdóttir, Ágúst Hjaltason, Sigrún Waage og Stefán Jónsson. Aðrir sem við sögu Foxtrot munu koma og hafa enn ekki verið nefndir eru til að mynda Geir Óttar Geirsson leikmyndateiknari og aðstoðarmaður hans, Egill Örn; Þorbjörn Erlingsson annast hljóðvinnslu; Anna Gulla sér um búninga og Elín Sveinsdóttir um förðun; skrifta verður Jóna Finnsdóttir og í kvik- myndatökuhópi Karls Óskarssonar verða þeir Ólafur Rögnvaldsson, Hlynur Ósk- arsson og Ásgeir Sigurvaldason. Þá eru ótalin Margrét Björgúlfsdóttir næringar- fræðingur og Jóhann Sigfússon altmulig- maður. Að lokum var Jón Tryggvason, leik- stjóri Foxtrot, spurður hvernig hann sæi yfirbragð myndarinnar fyrir sér. Hann svaraði eins og véfréttin í Delfí: „Vindblásið, veðurbarið, fátækt, not- að, viðgert ...“ 134 HEIMSMYND
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.