Heimsmynd - 01.05.1990, Page 22
gömul húsgögn sem þau fengu að láni og
myndir eftir Helga Þorgils á veggjum.
„Tippamyndir, eins og sumir segja,“ seg-
ir Asta brosandi af eðlislægri hreinskilni.
I hliðarherbergi sem Lýður kallar
„húsbóndaherbergi" eru myndir af for-
eldrum hans og honum sjálfum frá ýms-
um tímabilum, stundum með dætrunum.
„Þetta er sjálfshólsveggur,“ segir hann.
Á skrifborði hans eru fréttabréf til Ástu
um dulspekinámskeið, sem er mikið
áhugamál hennar.
Það er allt öðruvísi að tala við
Lýð í þessu umhverfi en við
fundarborðið á skrifstofunni
hans eða veitingahúsi. Þótt
klukkan sé orðin níu um
kvöld þamba hann og Ásta
kaffi og Lýður reykir sígar-
etturnar hennar þar sem
vindlarnir eru búnir. Þegar
sígaretturnar eru búnar sendir Ásta Lýð
út í sjoppu að kaupa meira tóbak. „Þú
getur þá talað um mig á meðan,“ segir
hann og Ásta talar ekki undir rós.
„Hann breyttist rosalega við að fara í
nám erlendis og varð mun frjálslegri í
framkomu,“ segir hún. „Ég fór eiginlega
ekki að hafa áhuga á fyrirtækinu fyrr en
Lýður hóf störf þar. Þegar ég var að al-
ast upp var pabbi mikið í golfi og við
vissum allt um golfið en minna um rekst-
ur fyrirtækisins. Með tilkomu Lýðs
breyttist þetta og þótt ég hafi engan
áhuga á viðskiptum prógrammera ég
hann í sambandi við mannleg samskipti.
Hann er góður við stelpurnar, duglegur
að fara með þær í sund og á skíði en
hann er alltaf í vinnunni og hann talar
um lítið annað en starf sitt. Hann hlýtur
að vera mjög vel gefinn hann Lýður,“
segir hún hlutlaust og bætir við, „hann er
svo fljótur að átta sig á hlutunum. Hann
SÍMI:V91 -24000
var mun stirðari í umgengni við fólk en
það hefur lagast. Við erum svo ólík á
þann hátt. Hann hefur slípast með árun-
um. Þegar við kynntumst hafði hann ver-
ið á sjónum og í löggunni og kom inn í
alveg nýjan heim. Hann á samt mjög erf-
itt með að taka gagnrýni,“ og í þann
mund kemur Lýður inn en Ásta heldur
áfram eins og ekkert hafi í skorist.
„Hann er nefnilega svo óöruggur hann
Lýður. Ef honum finnst hann verða fyrir
óréttmætri gagnrýni verður hann svo sár.
Við erum algerar andstæður,“ segir hún
og lítur á hann brosandi. „Þú ert allt sem
ég er ekki og ég er allt sem þú ert ekki.“
Hann horfir á hana en hún lítur á mig og
segir: „Samkvæmt stjömuspekinni á
þetta hjónaband alls ekki að geta gengið.
Hann er hrútur og ég er vog. Hann vill
framkvæma hlutina strax en ég hugsa
málin. Ef ég hefði hitt mann sem væri
líkur mér byggi ég í kjallara á Guðrúnar-
götunni. Ég vona að ég sé engan að
móðga en ég held að ég hefði alveg get-
að sætt mig við það líka. Ég á auðvelt
með að aðlaga mig.“
„Gagnrýndu mig bara, ástin mín,“
segir hann. „Þú gengur mjög illa um,“
svarar hún. „Segðu bara það sem þú seg-
ir við mig að ég sé skapvondur og hund-
leiðinlegur."
Lýður kveikir í vindli og hallar sér aft-
ur í sófanum. „Ég er bara ánægður með
hvað Guð var rausnarlegur þegar hann
skapaði mig og svo eldist ég fallega,"
segir hann brosandi. „Hann er hreinn og
beinn. Það má hann eiga hann Lýður að
fólk veit hvar það hefur hann. Það er
ekki til smeðja í honum,“ segir Ásta.
„Ég er heppinn,“ segir hann, „að
áhugamál og starfið fara saman og ég er
öruggari en ég var.“ „Hann hefur góða
dómgreind," segir Ásta. „Ég verð foxill-
ur ef mér mistekst,“ segir hann. „Ef eitt-
hvað nagar mig ræði ég helst við Þórð
bróður minn og vin minn Jóa. Ég leita
ekki annað.“
„Hann ræðir aldrei tilfinningamál,“
segir Ásta. Lýður hlær. „Ef eitthvað
kemur upp á kvartar Ásta í mömmu sína
og hún í Pétur og síðan segir hann eftir
nokkra daga við mig: Heyrðu Lýður . . .
ef Sigga tengdamóðir mín er þá ekki
þegar búin að skamma mig.“
Sjálfur missti Lýður móður sína
skyndilega síðastliðið vor. Þau voru ná-
in. Hann horfir á kaffibollann og sígar-
etturnar á borðinu og segir: „Ég er sann-
færður um að það var þetta sem varð
henni að fjörtjóni.“ „Hún kvartaði aldrei
mamma hans Lýðs,“ segir Ásta. „Hún
hafði þjáðst af liðagigt í tólf ár án þess að
segja okkur það.“ En missir hennar varð
honum mikið áfall. Hann segist ekki
vera trúaður. „Ég ber virðingu fyrir trú
annarra en geri mér engar grillur um ei-
líft líf. Eins og einhver sagði þá er fyrst
jafnt á komið fyrir okkur öllum í kirkju-
garðinum. „En þú baðst nú heitt þegar
móðir þín lá fyrir dauðanum,“ segir
Ásta. „Já,“ segir hann og ræðir það ekki
frekar.
Hann segist staðráðinn í því að láta
ekki streitu eða kólesteról verða sér að
fjörtjóni. „Ég er í stjóm Máttar, nýju
heilsuræktarstöðvarinnar, og hef reynt
að reka eins mikið af mínu starfsfólki
þangað og ég get. Ég rek það líka á
reykinganámskeið," bætir hann við og
horfir á hálfbrunninn vindilinn. „Um
daginn mældi læknirinn þar í mér kólest-
erólið og það reyndist afar lágt enda
passa ég upp á mataræðið. Ég vakna
klukkan sjö á hverjum morgni og syndi
einn kílómetra áður en ég fer í vinnuna.
En þegar þangað er komið fæ ég mér
líka kaffi og vindil. Það er ekki fyrr en
nýverið að ég fór að passa upp á þyngd
mína. Hér áður fyrr fór ég með fólki á
veitingastaði og borðaði eins og hestur.
Á ferðalögum í útlöndum fékk ég mér
þríréttaðar máltíðir en nú er ég hættur
því. Ég var orðinn 95 kíló en hef tekið
mig taki og minnkað við mig í öllu þótt
ég borði enn óhollan mat eins og beikon
og egg, þá sleppi ég alltaf eftirréttum."
„Þú lætur eins og við séum alltaf með
deserta hér,“ segir Ásta hálfhissa og bæt-
ir við að þau séu hófsöm heima fyrir.
„Ég er hrædd við áfengisneyslu og tel að
alkóhólismi geti verið áunninn. Við fá-
um okkur aldrei vín með mat nema það
séu gestir hjá okkur og sleppum því al-
farið um helgar. Víndrykkja getur orðið
vani. Fólk er að fá sér vín með matnum
heima hjá sér og um helgar og einn góð-
an veðurdag hefur það enga stjórn á
drykkjunni lengur.“
En hveijir eru veikleikar Lýðs
Friðjónssonar. „Ég er upp-
stökkur,“ segir hann. „Starfs-
fólkið í Kók segist sjá það á
mér langar leiðir þegar ég
kem í vinnuna hvernig skapi
ég er í. Ég hef alltaf unnið
mikið og verið ósérhlífinn,
bæði í námi og starfi. Ég geri miklar
kröfur til sjálfs mín og annarra og er því
oft ekki nógu þolinmóður við fólk. Ég
læt fólk hikstalaust heyra það ef það fer
illa með verðmæti fyrirtækisins eða sinn-
ir sínu starfi ekki hundrað prósent. En
veikleikar mínir voru augljósari hér áður
fyrr. Ég er að vísu þekktur fyrir allt ann-
að en mýkt en meiri harka hefði hraðað
þeirri þróun sem ég hef stefnt að þó það
hefði haft í för með sér sársaukafullar
aðgerðir eins og uppsagnir.“
Ásta lýsir því svo að þegar mikið sé að
gerast hjá Lýði fái hún köfnunartilfinn-
ingu. „Þegar eitthvað stendur til hjá hon-
um í fyrirtækinu er heimilið undirlagt og
andrúmsloftið þrungið spennu. Það fylg-
ir honum mikill kraftur."
Þegar ég spyr hann hvernig hann haldi
að ímynd sín sé út á við svarar hann: „Ég
held að það sé almennt borin virðing fyr-
ir mér. Kannski óttablandin." Af dæmi-
sögu sem ég heyrði úr fyrirtækinu á hið
síðastnefnda við þar. Starfsfólk hans
virðist átta sig á því að hann getur verið
harður í horn að taka. Sjálfur segist hann
bera virðingu fyrir þeim sem geri hlutina
vel. „í viðskiptalífinu hér er misjafn
sauður í mörgu fé. Efnahagsástandið og
22 HEIMSMYND