Heimsmynd - 01.05.1990, Page 12
egar nafn Lýðs Friðjóns-
sonar ber á góma verða
sumir svolítið einkenni-
legir á svipinn. Hann er
aðeins 34 ára gamall og
stjórnar einu ríkasta fyr-
irtæki landins, Vífilfelli,
sem framleiðir Kóka
kóla fyrir íslenskan
markað. Hann hefur
ögrandi framkomu að
sumra mati, aðrir
mundu kalla það hroka.
Hann er rekstrarhag-
fræðingur að mennt, lauk framhaldsnámi
frá Imedeviðskiptaskólanum í Sviss. í
öllu falli er ljóst að menn hafa skoðanir á
þessum unga stjórnanda, hvort sem um
er að ræða keppinauta í drykkjarvöru-
iðnaðinum eða aðra í atvinnulífinu.
Lýður Friðjónsson er nýkominn til
valda í íslensku viðskiptalífi. Þegar hann
var ráðinn framkvæmdastjóri hjá Vífil-
felli fyrir nokkrum árum var allt logandi
í málaferlum milli eigendanna og það var
ekki fyrr en dómur var upp kveðinn í
þeim málum, forstjóranum Pétri Björns-
syni í vil, en hann er tengdafaðir Lýðs,
sem sá síðarnefndi gat siglt undir fullum
seglum sem skipstjórinn á þeirri skútu
sem hvað mestan meðbyr hefur á mark-
aðinum. „Við stöndum með pálmann í
höndunum núna,“ segir hann.
Undanfarna mánuði hefur borið mikið
á Lýði Friðjónssyni. Sjálft ríkissjónvarp-
ið kallaði þennan unga stjórnanda úr
einkageiranum til liðs við sig til að lýsa
yfir gildi þess að auglýsa í sjónvarpi. Það
er staðreynd að Kóka kóla er einn
stærsti auglýsandinn á markaðinum og
það er líka staðreynd, þótt hún sé kann-
ski umdeildari, að Lýður kemur vel fyrir
og þar spillir útlitið ekki.
Um það leyti sem andlit hans var
áberandi á skjánum var hann ásamt fjór-
um öðrum fyrirtækjastjómendum á kafi í
viðræðum við forsvarsmenn Stöðvar 2
um kaup á sjónvarpsstöðinni. Fimm-
menningamir, forsvarsmenn Hagkaups,
Odda, Heklu, Kók og bíókóngurinn
Ami Samúelsson, keyptu ekki Stöðina
eins og flestum er kunnugt en nokkrir
þeirra fjárfestu í þess stað í nýrri sjón-
varpsstöð, þeirri þriðju sem á að tröll-
ríða íslenskum markaði og hefur útsend-
ingar innan skamms.
Þá kom það eins og þruma úr heið-
skíru lofti, ekki fyrir öllum þó, þegar
Lýður Friðjónsson tilkynnti á útmánuð-
um að hann gæfi kost á sér í formanns-
kjör í Félagi íslenskra iðnrekenda gegn
sitjandi formanni, Víglundi Þorsteins-
syni. Víglundur vann kosninguna með
yfir 70 prósentum atkvæða en báðir lýstu
yfir sigri. Lýði fannst sínu markmiði hafa
verið náð með því að sýna fram á að
fjórðungur félaga styddi ekki núverandi
formann.
„Það að halda utan um peningakass-
ann hjá Kók gefur manni vægi í við- .<
skiptah'finu en bjóði sá hinn sami sig þi
fram til forystu iðnrekenda er annar ^
eftir HERDÍSI ÞORGEIRSDÓTTUR o
12 HEIMSMYND