Heimsmynd - 01.05.1990, Side 59

Heimsmynd - 01.05.1990, Side 59
Estella Lefebure Milla Eva Herzigova Monica Bellucci Poulina Porizkova Stephanie Seymour Iman kynþokkafull og opinská, al- in upp hjá einstæðri móður í smábæ í miðvesturríkjunum. Estelle Lefebure er 23 ára, frönsk, ljóshærð með náttúr- lega fegurð. Hún er 175 sentímetrar á hæð og málin eru 92-62-90. Hún er langvin- sælasta franska fyrirsætan um þessar mundir. Paulina Porizkova hefur verið áberandi undanfarin ár. Fyrir utan fyrirsætustörfin hefur hún leikið í nokkrum kvikmyndum og getið sér góðan orðstír. Paulina er pólsk og uppáhaldsfyrirsæta Estée Lauder í snyrtivöru- og il mvatnsauglýsingum. Sænska stúlkan Tatjana Patitz er 23 ára og í hópi þeirra allra eftirsóttustu. Hið sama gildir um hina kanad- ísku Lindu Evangelista sem einnig er 23 ára. Hún er ein fárra fyrirsæta á toppnum sem er með hárið stuttklippt og er 177 sentímetrar á hæð en málin eru 86-68-88. Þær eru ekki margar ít- ölsku fyrirsæturnar sem hafa náð toppnum en ein þeirra er án efa Monica Belluci, 23 ára gömul. 170 sentímetrar á hæð og málin eru 89-60-89. Hún geislar af ítölskum kynþokka og er svo kvenleg að ljós- myndarinn Frederic Meylan sagði að orðið tíska gæti ekki hvarflað að nokkrum sem myndaði þessa þokkadís. Þær fyrirsætur sem virðast ná hvað mestum árangri í tískuheiminum nú eiga margt sameiginlegt. Þær eru allar mjög hávaxnar og barmmikl- ar, hárið sítt og munnsvipur- inn áberandi, augnabrúnir breiðar og húðin ólívulituð. Áhersla á kynþokka er mikil en sumar þeirra halda einnig í barnslega ímynd eins og Stephanie Seymour, 21 árs stúlka frá Kaliforníu sem er 178 sentímetrar á hæð. Þá eru að koma inn á sjón- arsviðið fagrar austantjalds fyrirsætur eins og Eva Herzigova, sautján ára tékknesk stúlka sem er tæpir 180 sentímetrar á hæð en við hana eru bundnar miklar vonir. Og sumar eru barn- ungar eins og hin þrettán ára gamla Milla frá Júgóslavíu sem þegar er orðin eftirsótt ljósmyndafyrirsæta og við það að stíga sín fyrstu skref á hvíta tjaldinu. HEIMSMYND 59

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.