Heimsmynd - 01.11.1990, Síða 72
Konan frá Arles. Á meðan
Gauguin teiknaði frú Gin-
oux, eiginkonu eiganda
„Kaffihúss næturinnar",
frá vinstri hlið málaði
Vincent hana frá hægri
hlið.
Sjálfsmyntl Emile Bernard tileinkuð Vincent. IVIynd af Gauguin hangir á
vegg í bakgrunni.
Læknirinn Paul Gachet. Gachet var
læknir, vinur og aðdáandi Vincents síð-
ustu mánuði lífs hans í litla þorpinu Au-
aði að mála og lögðu sitt af mörkum við að eyðileggja feril
hans sem listaverkasala, en hann hafði eytt sjö árum ævi sinn-
ar í að selja heimskum og smekklausum ríkisbubbum innan-
tóm konfektkassamálverk.
FRÁ FUGLAHREIÐRUM TIL SÓLBLÓMA
Vincent van Gogh fékkst við að mála í stutt tíu ár. Hann byrj-
aði í hollenskri hefð sem kennd er við borgina Haag. Ein-
kenni málverkanna í þessum skóla er hinn dökkbrúni jarðlitur
sem þjónaði vel fyrsta meistaraverki Vincents, Kartöfluœtun-
um: í sveita síns andlitis hafði fólkið ort jörðina og át síðan
brún jarðeplin moldugum fingrum í hálfgerðum moldarkofa
við örlitla ljósglætu. Á þessu fyrsta tímabili á listferli Vincents
málar hann einnig fuglahreiður í sama þung-
búna, dökkbrúna stílnum. Theo, bróðir
Vincents og fjárhaldsmaður, reyndi að upplýsa
hann um impressionismann, nýjustu stefnuna í
málaralist, og ljósu litina sem þar réðu ríkjum.
En Vincent vildi ekki hlusta á það sem bróðir
hans skrifaði honum frá París. Hann hélt sig
við sinn sveitastíl meðan hann safnaði kjarki,
reynslu og sjálfstrausti sem málari. Þegar hon-
um fannst hann hafa lært nóg dreif hann sig til
Parísar til að sjá með eigin augum hvað þar
væri að gerast í málaralistinni. Og ekki leið á
löngu áður en brúnu hreiðrin hans urðu að gul-
um sólblómum.
JAPAN í PARÍS OG ARLES
Vincent kærði sig ekki um að vera gamaldags.
Það var samt ekki líkt honum að segja já og
amen við nýjum stefnum og gleypa hugmynd-
irnar á bak við þær hráar. I dag er Vincent
gjarnan kallaður síð-impressionisti sem opnaði
leiðina að expressionismanum í myndlistinni.
En eftir Parísardvölina kallaði hann sjálfan sig
impressionista. Pað sem gerði það ekki síst að
verkum að Vincent gerðist impressionisti á síð-
ustu dögum þeirrar stefnu, var að litagleði imp-
ressionistanna mátti nálgast í gegnum japönsku
litagleðiáhrifin sem ríktu í París á þessum ár-
um. Með því að gera tilraunir í anda japanskra
skærlitamynda var hægt að halda þó nokkru persónulegu sjálf-
stæði og þurfti ekki að skrifa einhliða undir stefnuskrá
impressionistanna.
Það voru ekki bara skæru litirnir í japönsku verkunum sem
höfðu áhrif á málarana í París á níunda áratugnum heldur
ekki síður djúpfókusinn og rammaskurðurinn í japönsku
myndunum. Vincent stælir til dæmis japanska mynd þar sem
trjábolur hylur að miklu leyti forgrunn myndarinnar en lands-
lag er í baksýn. Aðra mynd gerir hann í japönskum stíl þar
sem tvívíð mynd af næturgreiðakonu hangir í lausu lofti í þrí-
víðu landslagi. Eftir Parísardvölina fór Vincent til Arles í
Suður-Frakklandi til þess að komast í suðrænna andrúmsloft
sem líktist meira í litum, því sem hann taldi vera japanskt. Þar
kom hann sér upp hinu fræga Gula húsi og málaði sína
japönskustu mynd Langlois brúna (1888) í björtum og heiðrík-
um stíl. Á þremur árum hefur hann ferðast langa leið frá ljót-
um og þungum, brúnum og svargrænum kartöfluætum til
vatnabláma, léttleika og fegurðar.
Vincent var að mörgu leyti táknsæismálari (symbólisti).
Hann glímdi lengi við að gera góða mynd af sáðmanninum og
tókst best upp þegar hann notfærði sér japönsku djúpfókus-
áhrifin og lét tré rísa upp í forgrunni myndarinnar við hlið
sáðmannsins góða sem ber geislabaug úr ekki minni hlut en
sólinni sjálfri.
vers, rétt norðan við París. Hann þjáðlst
af þunglyndi eins og frú Ginoux og er
því málaður í sömu stellingu og hún.
Þessi mynd er verðlögð hærra en flest
RAFMAGNAÐUR DEPLA-VINCENT
Ástæðan fyrir því að Vincent flúði suður á bóginn frá París ár-
ið 1888 var tvíþætt: Annars vegar var sukklífið í höfuðborginni
að gera út af við hann svo hann var nánast orðinn að drykkju-
Framhald á bls. 98
önnur málverk í heiminum.
72 HEIMSMYND