Heimsmynd - 01.04.1992, Side 23

Heimsmynd - 01.04.1992, Side 23
SAMKVÆMISLÍFIÐ Þau kynntust í sama mánuðinum fyrir hartnær tuttugu árum, þá bæði laganemar. Nú stýrir hann stórfyrirtæki, hún situr á þingi og börnin eru orðin þrjú. Sólveig, Kristinn og hluti gjafanna sem henni bárust. • Sólveig Pétursdóttir alþingismað- ur varð fertug þann 11. mars og hélt um hundrað manna hóf á heimili sínu í Fossvogi. Þarna voru mættir sam- starfsmenn og kunningjar í hanastél en síðar um kvöldið hélt hún nánustu vin- um sínum og fjölskyldu veislu. Sólveig er lögfræðingur að mennt, gift Kristni Björnssyni forstjóra Skeljungs og eiga þau þrjú börn. Geir Haarde formaður þingflokks Sjálfstæðisflokks flutti tölu í hanastéls- hófinu og þakkað Sólveigu vel unnin störf á þingi og færði henni að gjöf Sögu Reykjavíkur eftir Guðjón Frið- riksson frá þingflokknum. Auk Geirs voru mætt meðal annarra Salóme Þorkelsdóttir, Eyjólfur Konráð Jóns- son, Árni Johnsen, Ólafur G. Einars- son, Þorsteinn Pálsson og Björn Bjarnason, Einar K. Guðfinnsson, Árni Mathiesen, Sigríður Þórðardóttir, Lára Margrét Ragnarsdóttir, Friðrik Sóp- husson og Sigríður Dúna Kristmunds- dóttir og einhverjir fleiri samflokks- menn. Þarna voru einnig margir for- kólfar úr atvinnulífinu, meðal annarra Benedikt Sveinsson, Kristján Loftsson, Víglundur Þorsteinsson, Einar Oddur Kristjánsson, Brynjólfur Bjarnason en við höfum spurnir af því að í veislunni síðar um kvöldið hafi Davíð Oddsson og Ástríður Thorarensen verið mætt, Friðrik Pálsson forstjóri S.H. og kona hans Ólöf Pétursdóttir nýskipaður dómstjóri á Reykjanesi auk fjölskyldu og nánustu vina þingmannsins.B Ólöf Pétursdóttir nýskipaður dómsstjóri á Reykjanesi og Aðalbjörg Jakobsdóttir ritari rektors í M.R. Frændsystkinin, Hallgrímur Geirsson og Áslaug Björnsdóttir. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir og eiginmaður hennar, Friðrik Sóphusson. Pétur Hannesson, faðir Sólveigar, Ottarr Möller fyrrum forstjóri Eimskipafélagsins, Davíð Oddsson forsætisráðherra og Björn Hallgrímsson tengdafaðir afmælisbarnsins. Sólveig í hópi vinkvenna sinna, talið frá vinstri: Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari, Birna Hreiðarsdóttir lögfræðingur, Margrét Geirsdóttir bókasafnsfræðingur, Sólveig, Ástríður Thorarensen, Lára V. Júlíusdóttir lögfræðingur, Jónína Jónsdóttir og Karitas Kvaran. LAXNESSHA TIÐ Þjóðleikhúsinu í tilefni af níræðis- afmæli nóbels- skáldsins 23. apríl. Það verður mikið um að vera í húsinu, stanslausar uppá- komur í heila viku. Þór- hildur Þorleifsdóttir mun stýra leiklestri á Prjóna- stofunni Sólinni og Guð- jón P. Pedersen stýrir leiklestri á StrompleikM PLATFORMSKÓR éttið mér skeið svo ég geti kastað upp. Af hverju þarf nú áttundi áratugur- inn að taka við sem fyrir- mynd í tískunni á eftir þeim sjöunda - sixties- tískunni, sem allir eru orðnir hundleiðir á. Af hverju fylgir tískan svona hringrása-lögmáli en ekki eðlilegri framþróun? Þetta er svo marxískur hugsunarhátur. En skór með þykkum botnum! Þessir sem stelpurnar sem fóru til London keyptu í Biba við Kensington High Street upp úr 1970. Enginn var ónæmur fyrir þessum fáránlegu skóm. Sjálf Bretadrottning af þessari tísku og drottninga- móðirin líka. Þegar betur er að gáð myndu slíkir skór láta Davíð Oddsson virka háan og grann- an!B " smitaðist

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.