Heimsmynd - 01.04.1992, Blaðsíða 71
hún fór framhjá en af því fólki sem allra
verst er komið fyrir leggur stundum svo
megnan óþef að manni liggur við að
kasta upp.
Pað eru ekki allir sem betla heimilis-
lausir né heldur eru allir heimilislausir
sem betla. Aðstæður og ástand þessa
fólks er þó engu að síður bágborið svo
ekki sé meira sagt. Ógerningur er að vita
hversu margir af þessum hópi eru smit-
aðir af HIV veirunni eða hverjir eru með
alnæmi. Hugsi maður um sjálfan sig er
óþarfi að örvænta um að smitast afþessu
fólki. Öllu alvarlegra er að þetta fólk fær
ekki þá hjálp sem það þarf á að halda.
Hins vegar hafa berklar stungið upp
kollinum aftur og eru þegar orðnir
vandamál. Berklasmit er erfiðara að var-
ast.
AFHVERJU ERU SVONA
MARGIR HEIMILISLAUSIR?
Heimilisleysi er engan veginn vandamál
sem bundið er eingöngu við New York
borg því það nær yfir gjörvöll Bandarík-
in. Petta vandamál er heldur ekki nýtt af
nálinni en var næsta hverfandi þar til fyr-
ir rúmum tíu árum að það fór að gera
vart við sig aftur og hefur fjöldi heimilis-
lausra aldrei verið eins og nú. Það er
ákaflega erfitt að henda reiður á tölu
heimilislausra en áætlað er að í öllum
Bandaríkjunum sé fjöldinn rúmar þrjár
milljónir. í New York mun hópurinn
vera jafn fjölmennur og hálf íslenska
þjóðin, sennilega gott betur.
Meginorsök húsnæðisskorts og fjölda
heimilislausra í Bandaríkjunum má í
raun skilja út frá tveimur grundvallarlög-
málum. Annars vegar því lögmáli sem
ræður framboði og eftirspurn og hins
vegar út frá félagslegum Darwinisma,
þar sem hinir hæfustu komast af. Sam-
fara aukinni eftirspurn á húsnæði á við-
ráðanlegu verði hefur framboðið minnk-
að stórlega og það hefur aftur leitt til
mikillar samkeppni um það húsnæði sem
í boði er. Þeir sem líklegastir eru til að
tapa í þessari viðureign og verða að lok-
um húsnæðislausir eru þeir sem minnst
mega sín sökum fátæktar eða annarra fé-
lagslegra annmarka. Þetta eru konur,
börn, gamalmenni, fólk úr minnihluta-
hópum, innflytjendur, fatlaðir, eiturlyfj-
aneytendur og geðsjúkir. Þessi hópur er
langt frá því að vera einsleitur og hér er
misjafn sauður í mörgu fé eins og jafnan.
Þó flestir heimilislaus-
ir séu meinlausir leynast
innan um einstaklingar
sem ekki eru heilir á
geðsmunum. Sumir
þeirra hafa aldrei gengið heilir til skógar
en aðrir hafa af einhverjum ástæðum bil-
ast. Það þarf líka oft minna til að tapa
glórunni en að standa uppi slyppur og
snauður á götunni svo varla kemur á
óvart að margt fólk sem finnur sig í
þeirri aðstöðu hreinlega truflist. Því má
heldur ekki gleyma að á áttunda ára-
tugnum leiddi tröllatrú á lyfjameðferð til
þess að hundruðum geðsjúkrahúsa og
HEIMSMYND 71