Heimsmynd - 01.04.1992, Blaðsíða 66
AÐ LIFA LÍFINU LIFANDI
að er ekki hægt að neita staðreyndum, aldur-
inn er tekinn að færast yfir, en það er engin
ástæða til að hætta að lifa lífinu ef heilsan er í
lagi. Ágætir fulltrúar þessa aldurshóps eru
þau Audrey Hepburn, Sean Connery
og Margrét Thatcher. Öll eru þau glæsi-
leg, njóta aðdáunar og athygli og eru enn í
fullu fjöri. Vala Thorodd-
sen sem hélt upp á sjö-
tugsafmæli sitt síðastliðið
sumar er litinn öfundar-
augum af konum, jafnvel
helmingi yngri, þegar hún
mætir á mannfagnaði, há
og grönn með leggi sem
tvítugar stúlkur væru
hreyknar
af og
ávallt glæsilega klædd. Bára Sigur-
jónsdóttir er ekki síðra dæmi, andlit
hennar virðist heint ekki ætla að
eldast. Heyrst hefur að Bára stundi
ekki líkamsrækt og
borði ævinlega allt
sem hana langi í.
Galdurinn ku hins vegar vera sá að
hún rekur verslun sína af lífi og sál og
nýtur hvers dags. Á þessum árum er
það, auk líkamlegs atgervis, ef til vill
afstaða hvers og eins til tilverunnar, lífsgleðin og lífs-
þrótturinn sem ráða mestu um hvort viðkomandi hef-
ur þá útgeislun sem hrífur aðra.B
66 HEIMSMYND
Albert Guðmundsson
sendiherra. Albert var
fyrstl fslenskl
atvinnumaðurlnn í
knattspyrnu. Hann gegndl
tveimur
ráðherraembættum í
ríkisstjórn Steingríms
Hermannssonar 1983 -
1987. Sóttist eftir embætti
forseta árið 1980 og
stofnaði Borgaraflokkinn
1987.
Vala Thoroddsen fyrrverandi
forsætisráðherrafrú. Hún hefur alla tíð þótt
vera i hópi glæsilegustu kvenna landsins.
Jóhannes Norðdal Seðlabankastjóri. Hann
hefur setið í embætti bankastjóra í áratugi
og um hann hefur stundum verið sagi að
hann sé einhver valdamesti maður
þjóðarinnar.
Jón Múli Árnason, útvarpsmaður. Hann hefur unnið ötullega að
kynningu djasstónlistar
síðustu fimmtíu árin. Hann
samdi fjóra söngleiki
ásamt bróður sínum,
Jónasi Árnasyni, og
' 1 ’ margar af perlum
jfe?;.' átK dægurlagalónlistar.