Heimsmynd - 01.04.1992, Blaðsíða 89
„Mér finnst
það vera
vi ðhorf
ásatrúarmanns
að hann sé
ekki
varnarlaus og
máttlaus
gagnvart
goðunum
heldur sé hann
fullgildur í
viðskiptum
sínum við þau.
Goðin eru ekki
almáttug og
það er
maðurinn ekki
heldur. En það
má sækja
ýmislegt gott
til goðanna.
Og ef menn
trúa ekki á
þau geta þeir
sótt til
þeirra
hugmyndir sem
trúin byggir
upp. "
<c
_i
•o
oo
o
s
>-
co
„TRU MIN
BYGGIST
Á LEIT“
SVEINBJORN BEINTEINSSONrZZ:
í hreyfingum þótt hann sé tekinn aö reskjast; skeggiö grátt og mikiö,
augun eru skær. Stundum sést í þeim glettnisglampi, stundum eru
þau fjarræn eins og þau horfi yfir í aðra heima; maðurinn er í senn
hlýr og fjarlægur.
En hver er hann? Áriö 1924 fæddist hann í Grafardal sem er uppi í
Botnsheiöi, hefur þó búiö lengst af á Draghálsi í Svínadal.
Foreldrar hans voru þau Helga Péturdóttir frá Draghálsi og Bein-
teinn Einarsson frá Litla Botni í Botnsdal. Hann er því Borgfirðingur í
húð og hár og segir flesta sína forfeöur hafa búið í námunda viö fjöll.
Sveinbjörn giftist Svanfríöi Hagvaag áriö 1964 og eignuðust þau tvo
syni. En skildu fáum árum seinna; síöan hefur hann búiö einn, ýmist á
Draghálsi eða suður í Reykjavík.
Hann er að mestu sjálfmenntaður, hefur meðal annars aflaö sér
víðtækrar þekkingar á íslenskum fornkvæöum og rímnagerð, og er
kvæðamaður góður. Telur föður sinn hafa kveðið lengur en tíðkaðist
á nálægum bæjum. Ort hefur hann talsvert, bæði lausavísur og
kvæði, og gefið út bækur; sú síðasta kom út árið 1989 og heitir Brag-
skógar.
Eins og alþjóð veit er hann stofnandi ásatrúarfélagsins og helsti
forvígismaður þess.
Maðurinn er í stuttu máli sagt: Bóndi, skáld og allsherjargoði;
sennilega þekktastur fyrir hið síðasttalda, jafnvel heimsfrægur ef út í
það er farið. Hingaö koma á hans fund fjölmargir útlendingar sem
leita að rótum menningar sinnar í heiðnum sið; í þeirra augum er
Sveinbjörn einskonar gúrú.
eftir BERGLINDI GUNNARSDÓTTUR
HEIMSMYND 89