Heimsmynd - 01.04.1992, Blaðsíða 97
blaðafrétt að aðaldansleikurinn eigi að
verða skemmtilegur þrátt fyrir það þó að
engin glaðning fáist lengur á hótelinu.
Saga skemmtanalífs í Reykjavík er að
mestu óskráð en vel mætti tala um tíma-
bilið 1908 til 1915 sem skautafélagstíma-
bilið í þeirri sögu.B
Hann er. . .
framhald af bls. 79
skapur að sögn Atla. Bjarni reyndist vini
sínum sérlega vel þegar ásakanirnar á
hendur honum komu fram árið 1961, ein-
mitt á þeim tíma þegar kalda stríðið var í
algleymingi. Þessu segir Atli föður sinn
ekki hafa gleymt og segir frá því hversu
innilega hann syrgði Bjarna þegar hann
dó. „Pabbi treysti sér ekki í jarðaförina
heldur grét hann heima í marga daga.
Það vita ekki allir hvað pabbi er við-
kvæmur maður. Til dæmis gekk hann
alltaf út þegar við vorum að horfa á
stríðsmyndir, hann gat ekki horft á menn
skotna. „Fólk skilur ekki hvað þetta er
fyrr en það hefur upplifað það,“ sagði
hann. Pabbi horfði upp á vini sína skotna
til bana á stríðsárunum. Nú fyrst er mað-
ur að gera sér grein fyrir því hvaða
hörmungar hann hefur upplifað. Það eru
50 ár síðan hann tapaði heimalandi sínu,
öll hans fjölskylda og flestir vinir hans
voru drepnir í stríði. Flver bar ábyrgð á
því? Það eru meðal annars þeir sömu
menn sem hafa verið að ofsækja hann.
Þetta eru mennirnir sem ætti að hafa upp
á.
„Eg trúi því ekki að það geti nokkurn
tímann komið að því að pabbi verði
framseldur. Eg get ekki einu sinni hugs-
að það til enda. Það eru fáir menn sem
ég veit um sem öllum þykir jafn vænt um
og pabba. Ffann hefur hjálpað fólki, allt-
af verið gjafmildur, jafnvel gefið sinn síð-
asta eyri þegar svo bar undir. Þessi mað-
ur getur ekki hafa breyst úr hreinu ill-
menni í algjört ljúfmenni bara við það að
flytjast hingað. Vissulega voru reglur
heima þegar við vorum lítil, en það var
engin kvöð á okkur og aldrei kom það
fyrir að hann legði hendur á mig, bróður
minn eða systur. Aldrei,“ segir Atli og
horfir beint í augun á mér. „Pabbi var
alltaf jákvæður og talaði ekki illa um
einn einasta mann, það var bara komm-
únisminn sem hann talaði illa um.“ Eð-
vald hefur alla tíð verið mikill hægrimað-
ur og gat fátt hugsað sér verra enn
kommúnista. Einn af félögum Atla úr
fótboltanum minnist þess hlæjandi að
orðið kommúnisti hafi alltaf vakið sterk
viðbrög hjá gamla manninum sem ann-
ars var Ijúfur sem lamb.
Það tekur á Atla að ræða þessi mál.
Stöðugt er verið að draga fram ný atriði
sem svo sannarlega vekja upp spurningar
en það er lítið um svör. Sjalfur kýs hann
að benda á þær vitnaleiðslur sem fram
fóru í máli föður hans þegar það var tek-
ið fyrir í Svíþjóð árið 1946. „Það er það
eina sem er marktækt. Þá voru þessir at-
burðir í fersku minni og hlýtur að vera
það næsta sem hægt er að komast sann-
leikanum,“ segir hann. Atli lítur í kring-
um sig, og þagnar um stund en bætir síð-
an við. „Einhvern tímann hlýtur þessu
að ljúka, en ekkert okkar gleymir þessu,
hvorki pabbi, ég, börnin mín né nokkur í
kringum þau. Það er búið að krossfesta
pabba og það mun loða við fjölskylduna
alla tíð. Svona lagað gleymist aldrei.“B
ESCORT
5 dyra hlaðbakur.
«•/
Hann er kominn,
Ford ESCORT bíllinn sem svo
margir hafa beðið eftir.
Ný og glæsileg hönnun. Sportlegt útlit
Ný innrétting. Meira innra rými.
Stærri hurðir (Betra inn - og útstig)
Gott útsýni og frábær aðstaða fyrir
ökumann og farþega.
ESCORT er fáanlegur í
eftirfarandi útfærslum:
CL 1.3, 3. dyra
CLX 1.3, 5. dyra
CLX 1.6, 5. dyra
Verð frá kr. 871.000,-*
Komdu og kannaðu málið !
*Miðað við gengi febrúarmánaðar '92 og án ryðvamar og skráningar.