Heimsmynd - 01.04.1992, Blaðsíða 65
Guðrún Erlendsdóttir, forseti Hæstaréttar.
Guðrún kenndi um árabil við lagadeild
Háskóla íslands, fékk réttindi sem
hæstaréttarlögmaður, varð síðan fyrsta konan
til að setjast í stól hæstaréttardómara og er
nú sem forseti Hæstaréttar einn þriggja
handhafa forsetavaldsins í fjarveru hans.
•fm
Guðrún Ásmundsdóttir
leikkona. Hún hefur
starfað hjá Leikfélagi
Reykjavíkur um
áratuga skeið og
einnig fengist við
ritstörf, meðal annars
skrifaði hún leikritið
Kaj Munkáúd 1986.
Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri. Hún
hefur leikstýrt fjölda leikrita og einnig
verkum sem íslenska óperan hefur
sett á svið. Þórhildur sat um tíma á
þingi fyrir Kvennalistann.
Guðbergur Bersson rithöfundur.
Þekktasta verk hans er án efa
Reykjavíkurskáldsagan Tómas
Jónsson melsölubók frá árinu 1966.
Háð og ádeila eru aldrei fjarri í
verkum Guðbergs sem mörg hver
þykja afskaplega framúrstefnuleg.
Hann hlaut íslensku
bókmenntaverðlaunin árið 1991.
KÖTTUR í BÓLI BJARNA
Þú hélst þú yrðir síðust/síðastur til
að vita af því að maki þinn héldi fram-
hjá en í raun varstu fyrst/fyrstur. Vís-
bendingarnar voru þarna en þú kaust
að líta fram hjá þeim. Hljómar eittvað
af eftirtöldum atriðum kunnuglega í
eyrum?
IMaki þinn sem til þessa hefur aldrei nennt
að svara þegar síminn hringir, stekkur nú
upp úr hægindastólnum til að verða fyrri til.
2Pukur með greiðslukortareikninginn. Þeg-
ar þú færð loks að sjá hann rekur þú aug-
un í ótrúlega háa veitingahúsareikninga sem
maki þinn segir tengda vinnunni. Hvers vegna
þá allt þetta pukur?
3Hann var vanur að færa þér blóm mánað-
arlega, nú man hann varla eftir blómum
handa þér á konudaginn.
4Maki þinn beitir skyndilega nýjum ból-
brögðum af ótrúlegri leikni og af því er
virðist reynslu. Það sem verra er, hann er far-
inn að kyssa öðruvísi.
5Maki þinn sem áður var svo heimakær vill
nú ólmur fara á skemmtistaði föstudags
og laugardagskvöld þar sem þið rekist jafnan á
sama parið. Þú ert ekkert sérlega hrifin af
þessu fólki en maki þinn sýnir þeim mikinn
áhuga og verður tíðrætt um þau þegar heim er
komið.
6Þú finnur símanúmer vandlega skrifað í
minnisbók maka þíns en það er ekkert
nafn við númerið.
7Vinir þínir taka að sýna þér mikla athygli
og virðist mjög umhugað um þig. Spurn-
inguna „er allt í lagi“ ber jafnan á góma í þess-
um samtölum.
8Maki þinn verður skyndilega mun meira
krefjandi kynferðislega en hann hefur
verið um árabil.
Lætur þetta kunnuglega í eyrum? í þessari
stöðu er fátt annað að gera en að spyrja maka
þinn: hvenær ætlar þú að binda endi á þetta
kjánalega ástarævintýri, elskan?
HEIMSMYND 65