Heimsmynd - 01.04.1992, Blaðsíða 24
smáfréttir
DROTTNING NÆTURLIFSINS
núlla. rauðhærða
þokkadísin sem er
þjónn á Café
Romance hafði veg og
vanda að samkvæmi sem
haldið var til heiðurs
Báru Sigurjónsdóttur
nýlega í tilefni af sjötugs-
afmæli hennar. Eins og
kom fram í síðasta blaði
var Bára stödd í St. Mor-
itz á afmælisdaginn en við
heimkomuna ákváðu vin-
krýnd drottning
næturinnar.
Leiki aðrir það
eftir. Bára
Sigurjónsdóttir
í hófinu á Café
Romance
ásamt
vinkonum
sínum og
tengdadætrum.
konur hennar að halda
boð fyrir hana sem kæmi
henni algerlega á óvart -
surprise party - eins og
það heitir á ensku. Bára
stóð víst í þeirri meiningu
að hún væri að fara út að
borða á Café Óperu (sem
er við hliðina á Café
Romance) ásamt nokkr-
um vinkonum sínum.
Búið var að skreyta sal-
arkynnin öll í stíl við
Báru, allt bleikt, bleikar
slaufur, bleik kerti og
skreytt hásæti fyrir Báru.
Ungur herramaður tók á
móti henni og færði henni
uppáhaldsdrykkinn henn-
ar, Chivas Regal, og í
þeim miði skáluðu vin-
konurnar við hana. En
ólíkt því sem ætla mætti
drekkur Bára ekki bleikt
kampavín, aðeins lífsins
vatnið whiskey. Þær
sungu afmælissönginn og
krýndu hana síðan með
pompi og prakt: Drottn-
ingu nœturlífsins. Bára
segir að næturlífið hafi
haldið henni ungri.
Karl Örvars söng
Bláu augun þín, Báru til
heiðurs og nokkur fleiri
lög. Því næst var sest að
borðum og snæddur þrí-
réttaður kvöldverður. Eft-
irrétturinn, glæsileg af-
mælisterta í formi bleikrar
barbídúkku á bleikum
botni, var krýnd stjörnu-
ljósum og kertum. Þá
kyrjaði starfsfólk hússins
afmælissönginn.
Fjörið var mikið. Þær
sem sátu til borðs með
Báru voru Ingibjörg
Dungal og dóttir hennar
íris, Ester í Pelsinum.
Hulda systir Báru,
Ástríður Andersen
sendiherrafrú, Birna
Hafstein, Dúa
Friöriks
Kristín kona
Rolfs Johansen,
Erna og Lóló
sem starfa hjá
Báru, Þóra
Hrönn og Dolla
tengdadætur
hennar, Svava í
Sautján. Lóló
og Hermína og
Brynja
Nordquist svo
flestar séu taldar upp.
Fleiri bættust síðan í hóp-
inn eftir borðhaldið, þar á
meðal synir hennar en
einn sonur hennar á að
hafa sagt í gríni:
„Mamma, það er ekkert
skrýtið að þú lítir svona
vel út það geymist allt svo
vel í vínanda."
Bára kunni svo vel við
kórónuna og borðan sem
hún skrýddist að hún lét
þau orð falla að í þessum
búningi vildi hún síðar
láta kistuleggja sig.
Söngvari hússins söng
að lokum frá Snúllu til
Báru: You are the Sun-
shine of My Life - lag
hins blinda Stevie Wond-
er - en gestir þessa skralls
voru með galopin og
glampandi augu fram í
morgunsárið.B
Sest að kvöldverði í
Saint Mortiz, Bára og
Þóra Hrönn.
Drottningin í hópi vina
sem fylgdu henni til
St. Mortiz til að halda
upp á afmælið þar.
Frá vinstri eru Brynja
Nordquist, Þóra Hrönn,
Bára, Karl í Pelsinum,
Ester og Dolla
tengdadóttir Báru.
nœstunni
24 HEIMSMYND
VIN OG FITA
ú má búast við því að fólk fari
að slaka á í mataræði. Islend-
ingar hafa ekkert farið of geyst
í þeim efnum eins og Ameríkanar, sem
vilja taka allt
með trompi,
tryllast úr stressi
yfir áhyggjum af
kólesteróli og
eiga met í
hjartasjúkdóm-
um. En undan-
farin ár, áratug,
hafa Bandaríkja-
menn reynt að
draga úr neyslu á kjötmeti og lagt
áherslu á aukna neyslu grænmetis - án
þess að heilsufar þeirra hafi tekið sýni-
legum breytingum. Nú opnar maður
vart bandarískt fréttarit án þess að tal-
að sé í öfundartón um mataræði
Frakka, ítala og annarra Miðjarðar-
hafsbúa. „Hverjir liggja í smjöri og osti
án þess að fitna? Hverjir háma í sig
gæsalifur og ná tíræðisaldri með eins
klingjandi kransæðar og kristal? Hverj-
ir drekka vín með hádegismat, kvöld-
mat og eru sælli og hraustari en nokkur
Kani?“, spyr Newsweek nýlega. Svarið
er Jean Q. Publique - hinn franski
Meðaljón. Forsaga þessa máls er að
stórblaðið New York Times fór að
velta upp fréttum
um að feitmeti á
borð við gæsalif-
ur væri hollt fyrir
hjartað. Sjón-
varpsþátturinn
'60 minutes (sem
er á Stöð 2) tók
til umfjöllunar
mataræði Frakka
og lága tíðni
hjartasjúkdóma þar, þrátt fyrir feitmeti
og rauðvínsdrykkju. I kjölfarið fór
gæsalifur að seljast í Bandarfkjunum
eins og kornflögur og hillur vínbúða
tæmdust?
Frakkar drekka næstum tífalt meira
vín á rnann en Bandaríkjamenn en
tíðni þeirra sem deyja úr hjartasjúk-
dómum er næstum helmingi minni.
Fjöldi Frakka sem deyja af völdum
krabba er hins vegar hlutfallslega mun
meiri. Svo fréttirnar um gæsalifrina og
rauðvínið má skoða í víðara samhengi.B