Heimsmynd - 01.04.1992, Síða 55

Heimsmynd - 01.04.1992, Síða 55
listarheiminum.“ Það sama segir hún um Todmobile og Syk- urmolanna: „Þetta er allt fólk sem er að gera mjög góða hluti og gæti alveg átt góða möguleika erlendis en það vantar bara fjármagnið til að koma þeim á framfæri. Helstu möguleikarnir /' felast í því að eitthvert stórt útgáfufyrirtæki fá trú á þeim eins | og gerðist með norsku hljómsveitina A-ha á sínum tíma. \ Frami þeirra byggðist á óbilandi trú útgáfufyrirtækisins.“ Sigríður á líka sína drauma. Hún er ákveðin í því að eldast sem söngkona og byrjaði ung að raula þó hugmyndir um sál- fræði- eða jafnvel viðskiptanám hafi einnig skotið upp kollin- um á unglingsárunum. Fjölmiðlafræðin hefur líka heillað hana: „Það blundaði alltaf í mér að verða söngkona. Ég var sídill- andi mér sem barn og syngjandi þótt enginn utanaðkomandi mætti í mér heyra. Ég lærði á píanó í þrjú ár en síðan fikraði ég mig sjálf áfram í tónlistinni enda hafði ég ekki eirð í mér til að vera undir þessum lærdómsaga." Hvorki systkini Siggu, sem eru alls sjö talsins, né foreldrar hennar þau Beinteinn Asgeirsson dúklagningamaður og Svava Markúsdóttir húsmóðir hafa lagt stund á tónlist. En það var píanó á heimilinu. Tónlistarrætur hennar má þó rekja til föð- urættarinnar. Þar er að finna nokkur skyldmenni sem hafa fiktað eilítið við tónlist: „Hvað sem bakgrunni mínum líður var mér greinilega ætlað að snúa mér að tónlistinni. Þar hefur allt gengið eins og í sögu. Frá því ég byrjaði að syngja opinber- lega 18 ára gömul er eins og ég hafi fengið allt upp í hendurn- ar, „ segir hún og virðist hissa á öllu saman. Ég skýt því að henni að það hljóti að vera hennar hæfileikum að þakka: „Það má kannski segja það,“ segir hún og setur upp hálf undarlegan svip eins og hún hafi ekki gert sér grein fyrir eigin hæfileikum fyrr og bara haldið að hingað til hafi velgegni hennar byggst á heppni. NO NAME COSMETICS- Sigríður er sannkallað náttúrubarn enda ljón í húð og hár en ljón eru meðal annars samansett af blíðu og metnaði, dugnaði og leti og svolitlum egoisma: „Eg er dæmigert ljón með alla þessa eiginleika. Þetta er besta merkið," fullyrðir hún. „Er ekki sagt að ljónin séu athyglissjúk? Vilji alltaf vera í miðj- unni. Nei annars, ég er ekki athyglissjúk. í bransa- um er sagt að maður þurfi alltaf að vera að láta sjá sig hér og þar til þess að fólk taki eftir manni. Ég hef aldrei verið fyrir það. Þetta er bara eins og hvert annað starf og þegar ég er ekki að vinna þá líður mér best heima hjá mér í ró og spekt.“ Að undanförnu hefur verið lítill friður heima hjá henni og þurfti hún nýlega að verða sér úti um leynisímanúmer: „Það var allskonar lið hringjandi í mig allan sólarhringinn, krakkar að biðja um þetta og hitt í tengslum við hljómsveitina og karl- ar að bera fram bónorð." Ein stúlka hefur til dæmis sent til hennar bréf á þriggja vikna fresti þar sem hún tjáir Sigríði raunir sínar. Og nýlega hringdi í hana sjómaður sem sagði hana ákkúrat sína týpu: „Hann vildi giftast mér og sagðist eiga nóg af peningum. Og ekki alls fyrir löngu fékk ég símhring- ingu frá virðulegum stórfyrirtækjaeiganda hér í bæ sem ég ætla ekki að nafngreina en hann vildi endilega fá að hitta mig. Hann sagðist hafa hugsað mikið um mig og við ættum örugg- lega vel saman.“ Hún segir hann hafa hringt frá kaffistofu á miðjum degi í miðri viku og vildi hitta hana í kaffi: „Hann var ekki fullur á einhverjum dansleik á laugardagskvöldi,“ bætir hún við. „Maður skilur ekki hvað sumt fólk er að hugsa. Og aumingja amma mín og nafna sem er orðin 78 ára gömul. Fólk er síhringjandi í hana haldandi að hún sé ég þrátt fyrir að í símaskránni standi Sigríður Beinteinsdóttir húsfrú. Ég er sko engin húsfrú,“ segir hún og hlær sem fyrr. A unglingsárunum vaknaði tónlistaráhuginn fyrir alvöru og þrettán ára gömul var hún búin að eignast sín fyrstu hljóm- flutningstæki enda byrjaði hún fljótlega að vinna sér inn aur hjá föður sínum sem er dúklagningamaður. Sigríður hefur einnig starfað sem dúklagningamaður um tíma þó hún hafi enn ekki lokið prófi í þeirri iðn: „Það var mjög þægilegt að framhald á bls. 93 FEGURÐ MEÐ h Is 1 HEIMSMYND 55
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.