Heimsmynd - 01.04.1992, Síða 57
ÞAÐ SEM ÞÓTTI ÁHUGAVERT í GÆR GETUR
RGUN. TÍÐARANDINN ER í STÖDUGRI MÓTUN
AÐ SEM GEFUR HVERSDAGSLÍFINU LIT.
þegar hún talar, hún brosir og hlær óspart og segir frá líkt og
hún sæti yfir kaffibolla með bestu vinkonu sinni. Þá hefur
kvikmyndargerðarmaðurinn Friðrik Þór Friðriksson, heldur
betur hrist upp í landanum. Þar er kominn kvikmyndagerðar-
maður sem lætur verkin tala, en lætur eigin persónu nægja aft-
ursætið í ökuferðinni um lönd frægðarinnar. Samverkamaður
hans tónlistarmaðurinn Flilmar Örn Hilmarsson hefur ekki
síður komið róti á hugi manna því þrátt fyrir alþjóðlega viður-
kenningu hefur hann ítrekað lýst því yfir að sjálfur taki hann
sig mátulega alvarlega sem listamann. Án efa á afstaða þess-
ara tveggja listamanna sem hafa náð svo langt eftir að setja
mark á þá sem á eftir koma. Þá áttu margir erfitt með að
kyngja því hversu ólík síðari alheimsfegurðardrottning okkar
Islendinga á síðasta áratug var þeirri fyrri. Linda féll ekki að
þeirri fjallkomuímynd sem Hóffí hafði skapað, en seldi samt
fisk á báða bóga engu síður en hún. Linda var ekki eins
stefnuföst og óskeikul en hún átti sinn þátt í að breyta kven-
ímyndinni þannig að nú þykir í lagi að línurnar séu mjúkar og
kvenlegar. Önnur kona sem hefur haft talsverð áhrif á kven-
ímynd líðandi stundar er Vigdís Grímsdóttir rithöfundur. Hún
er svo sannarlega andans kona, en ólíkt mörgum öðrum kven-
rithöfundum hefur hún ekki talið þörf á að klæða af sér kyn-
þokkan til þess að vera tekin alvarlega. Þá hefur Ólafur Jó-
hann Ólafsson kippt stoðunum undan þeirri kenningu sem
segir rithöfunda og listamenn sjaldnast hafa nokkuð peninga-
vit. Það er ekki ólíklegt að einhverjir ungir menn á framabraut
taki hann sér til fyrirmyndar og snúi sér að listsköpun í
tómsstundum í staðinn fyrir að stunda veggjatennis. Allt hefur
þetta fólk og svo ótal margir fleiri haft áhrif á skoðanir al-
mennings, um hvað þyki viðeigandi og hvað ekki. Nú orðið
þykir til dæmis ekkert athugavert við það þótt einstaklingur
kominn yfir fertugt ákveði að venda sínu kvæði í kross og setj-
ast á skólabekk til að læra eitthvað alveg nýtt og hyggist að
því búnu hasla sér völl á nýjum starfsvettvangi. Fyrir tíu til
fimmtán árum þótti slíkt nánast óhugsandi og í augum margra
fyrst og fremst eyðsla á almannafé. I dag þykir slíkt ekkert til-
tökumál, dæmin hafa sannað að hægt er að eiga blómlegan
starfsferil eftir að á miðjan aldur er komið.
Hver kynslóð á sínar fyrirmyndir. Sumar eru langt að
komnar og nánast alþjóðlegar, sem dæmi má nefna tónlistar-
manninn John Lennon sem í hugum margra samtímamanna
sinna var nánast eins og rödd samviskunnar en hafði jafnframt
geysileg áhrif á tísku í klæðaburði og tónlist síns tíma. Leik-
konan Audrey Hepburn hefur verið konum sem nú eru komn-
ar yfir miðjan aldur fyrirmynd allt síðan hún sló í gegn í mynd-
inni Roman Holliday. Hún var þekkt fyrir látlausan klæða-
burð og glæsilega framkomu sem alltaf tryggði henni
sviðsljósið hvar sem hún fór. Enn í dag eru hún fyrirmynd
þessara sömu kvenna og einnig þeirra sem yngri eru því hún
hefur haslað sér völl sem sendiherra Barnahjálpar Sameinuðu-
þjóðanna og er nú ekki síður þekkt fyrir störf sín meðal fátæks
fólks í þriðjaheiminum. Kevin Costner er dæmi um stjörnu
sem ekki hefur látið heimsfrægð stíga sér til höfuðs, hann sést
sjaldnast nema í fylgd konu sinnar og stundum fylgja börnin
tvö með. Hann er glæsilegur, hefur öðlast frægð og frama en
er fyrst og fremst fjölskyldumaður, ágæt fyrirmynd á tímum
þegar kreppir að og áhersla á hófsemi og samheldni fjölskyldu
aukast. Þessir einstaklingar hafa verið andlit tíðarandans. Þau
hafa verið fólki fyrirmyndir og hafa ýmist blásið lífi eða breytt
skoðunum og gildum síns tíma.B
HEIMSMYND 57