Heimsmynd - 01.04.1992, Qupperneq 64
SAMKVÆMISLJÓNIN
Fimmtugsafmæli er ekki lengur ástæða til að
flýja land. Nú er blásið í lúðra, salur tekinn á
leigu og öllum skyldmennum, vinum og kunn-
ingjum boðið til herlegs hófs þar sem afmælis-
barnið mætir til leiks glæsilega búið, brosandi
út að eyrum líkt og á brúðkaupsdaginn. Sex-
tugsaldurinn er ekki aðeins undirbúningur
undir elliárin, heldur miklu fremur ástæða til að
fagna þeim blómlega tíma sem í hönd fer þegar börn-
in eru flogin, eða við að fljúga, úr hreiðrinu. Flestir
hafa komið sér vel fyrir og sjá sér færi á ný til að
njóta lífsins líkt og áður en barneignir og húsakaup
komu til sögunnar. Þetta er kjörinn tími til að taka
upp þráðinn að nýju við að sinna samkvæmislífinu og
margir láta einnig verða af því að fara út í heim og
skoða sig um líkt og þá hafði dreymt um en ekki látið
verða af. Síðan eru keyptar gjafir handa börnum og
barnabörnum því það er einmitt á þessum árum sem
þau koma til sögunnar.
Afar og ömmur eru nú unglegri en nokkru sinni
fyrr og eiga lítið sem ekkert skylt við þá ímynd af
konunni með prjónana og manninn með pípuna sem
lesa má um í sögubókum. Afar og ömmur í dag er
fólk í fullu fjöri, stundar vinnu, fer í bíó, leikhús og
stundar golf. Reyndar er gráu hárunum tekið að
fjölga hratt, og heimsóknum á hárgreiðslu stofur
einnig, en klæðaburður og fas segja meira um afstöðu
þessa hóps til sjálfs sín en flest annað. Hér er fyrst og
fremst um að ræða einstaklinga sem hafa komið ár
sinni vel fyrir borð og eru betur í stakk búnir en
nokkru sinni fyrr að njóta lystisemda lífsins. Reyndar
hafa breskar kannanir sýnt að framhjáhöld meðal
þessa hóps virðast hafa færst í aukana á undanförn-
um árum en ekki er vitað hvernig þessum málum er
háttað hér á landi.B
Sveinn Einarsson,
dagskrárstjóri
Ríkissjónvarpsins.
Hann hefur verið
leikhússtjóri hjá
Leikfélagi Reykjavíkur
og Þjóðleikhúsinu og
hann má jafnan sjá á
mannamótum þar sem
menning og listir eru
til umræðu eða
umfjöllunar.
Bryndís Schram, er án efa
eitthvert helsta kyntákn
sinnar kynslóðar. Hón
hefur starfað við
dagskrárgerð á
undanförnum árum, bæði í
ótvarpi og sjónvarpi. Hón
var ein þeirra sem hélt
upp á fimmtugsafmælið
með pompi og pragt þegar
hón bauð til heljarinnar
hófs á Hótel íslandi.
Guðrón Jónsdóttir arkítekt. Hón
barðist ötullega fyrir verndun
Bernhöftstorfunnar á sínum tíma
og má að vissu leiti rekja þann
gífurlega áhuga á verndun og
uppbyggingu gamalla hósa í dag
til þessa brautryðjenda starfs.
Atli Heimir Sveinsson,
tónlistarmaður. Hann
er einn af
brautryðjendum
nótímatónlistar hér á
landi og hefur hlotið
viðurkenningu
erlendis, meðal
annars
tónlistarverðlaun
Norðurlandaráðs árið
1976.
64 HEIMSMYND