Heimsmynd - 01.04.1992, Page 72

Heimsmynd - 01.04.1992, Page 72
annarra skyldra stofnana var lokað og sjúklingarnir sendir út í lífið með lítið annað í veganesti en lyfseðil í næsta apótek. Þetta folk er meðal þeirra sem fylla flokk heimilislausra. Geðsjúkir ein- staklingar hafa í sumum tilvikum framið hroðalega glæpi. I annan stað hefur neysla fíkniefna aukist svo á síðastliðnum áratugum að réttara er að tala um plágu en vandamál. Þegar fólk er bókstaflega á valdi fíkni- efna verður það gersamlega ófært um að hugsa um annað, og afleiðingin er sú að það getur hvorki hugsað um sjálft sig né aðra og verður því byrði á hinum. Við þetta bætist svo stórfelldur niðurskurður stjórnvalda á framlögum til húsnæðis- uppbyggingar af hálfu hins opinbera svo sífellt fleiri Bandaríkjamenn eiga engan annan samastað en götuna. I stjórnartíð Reagans voru fjárframlög til húsnæðis- mála skorin niður um áttatíu prósent. A sama tíma og framboð á leiguhús- næði fyrir láglaunafólk hefur bókstaflega hrunið, studdi ríkisvaldið með skatta- ívilnunum svonefnda enduruppbyggingu á borgarhverfum, kostaða af einkaaðil- um. Þessi enduruppbygging er í daglegu tali nefnd „gentrification", en það hug- tak mætti þýða lauslega „upparnir taka yfir“. Enduruppbyggingin felst í því að fasteignaeigendur hafa sagt fyrrum leigu- tökum upp, lagfært húsnæðið og leigt það síðan aftur á tvöfalt til þrefalt hærra verði. I New York er til dæmis ekki óal- gengt að þriggja herbergja íbúð sem fyrir enduruppbyggingu var leigð á 20 þúsund íslenskar krónur fari upp í 60 þúsund ís- lenskar krónur. Fyrir dæmigerða fjöl- skyldu sem er með árstekjur sem jafn- gilda opinberum fátækramörkum (tæpar í 60 þúsund íslenskar krónur. Fyrir dæmigerða fjölskyldu sem er með árstekjur sem jafngilda opinberum fátækramörkum (tæpar 700 þúsund ís- lenskar krónur) eða þaðan af minna, er erfitt að láta þetta dæmi ganga upp. Nú- verandi ríkisstjórn hefur fetað dyggilega í fótspor Reagans og haldið áfram niður- skurði til félags-, heilbrigðis- og mennta- mála og jafnframt lagt sífellt meiri byrð- ar á fylkis- og borgarstjórnir. Efnahags- kreppa undanfarinna missera hefur enn frekar ýtt undir þessa þróun. Gjaldþrot fyrirtækja og stórfelldur samdráttur hef- ur einnig leitt til stóraukins atvinnuleys- is. Síðan þessi yfirstandandi efnahags- samdráttur hófst hefur tala atvinnulausra aukist um 2,1 milljón og eru rétt tæpar níu milljónir Bandaríkjamanna nú at- vinnulausir eða sem nemur um 7 pró- sentum. Upp undir tuttugu og fimm milljónir manna drýgja nú afkomu sína með svokölluðum matarmiðum (food- coupons). Matarmiðar eru eins og nafnið bendir til eins konar gjaldmiðill sem ein- göngu er hægt að kaupa mat fyrir. Þetta form félagslegrar aðstoðar sem veitt er fólki undir ákveðnum lágmarkstekjum var til skamms tíma einungis notað af

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.