Heimsmynd - 01.04.1992, Side 76

Heimsmynd - 01.04.1992, Side 76
m að er ekki fast að orði kveðið þegar sagt er að landsmönnum hafi brugðið í brún þegar í hádegis- fréttum útvarps um miðjan febrúar síðastliðinn var lesin upp ásökun Simon Wiesenthalstofnunar- innar á hendur íslenskum ríkisborgara um þátt- I töku í stríðsglæpum í Eistlandi. Stríðsglæpir nas- ista í síðari heimstyrjöldinni eru einhverjir þeir hrikalegustu sem menn geta hugsað sér. Þessir at- V burðir áttu sér stað og það sem gerir þá ef til vill enn óhuggulegri er að þeir gerðust ekki í fjarlæg- um löndum heldur hér í Norður-Evrópu og það fyrir tiltölulega stuttu síðan. Hörmungunum hefur hvað eftir annað verið lýst á hrikalegan hátt í kvikmyndum og bókum þannig að flestir gera sér nú grein fyrir þeim óhugnaði sem átti sér stað. Þótt ofsóknir á hendur Gyðingum í síðari heimstyrjöldinni hafi verið hrikalegar eru þær því miður ekk- ert einsdæmi, starfsemi mannréttindasamtakanna Amnesty International hefur flett ofan af mörgum hrottafengnum at- burðum hin síðari ár. En því má ekki gleyma að menn hafa verið ranglega ásakaðir um glæpi, stóra og smáa. Má þar til dæmis benda á réttarhöld yfir nasistaforingjanum ívani Grimma sem hefur morð hundruða manna á samviskunni. Nú bendir margt til þess, þrátt fyrir vitnisburð fólks sem lifði af ofsóknir nasista, að maðurinn sem undanfarið hefur setið í fangelsi í ísrael fyrir þessa glæpi, sé ekki ívan Grimmi. Mál Eðvalds Hinrikssonar er frábrugðið máli þessa manns, því Eð- // Aldrei kom það fyrir að hann legði hendur á mig, bróður minn eða systur. Aldrei, " segir Atli og horfir beint í augun á mér. vald hefur aldrei neitað því að hann væri Evald Mikson. Hann hefur hins vegar neitað því að hafa framið þá glæpi sem hann hefur verið sakaður um, fyrst í vitnaleiðslum árið 1946 í Sví- þjóð, síðan af KGB árið 1961 og nú af Wiesenthalstofnuninni. Edvald flúði til Svíþjóðar frá heimalandi sínu Eistalandi ár- ið 1944, skömmu áður en Rauðiherinn hertók landið að nýju eftir fjögurra ára hernám Nasista. Svíar töldu ekki sannað að Eðvald hefði ekki gerst sekur um stríðsglæpi meðan hann starfaði í stjórnmálalögreglu landsins og því álitamál hvort bæri að veita honum landvistarleyfi. Að ósk Edvalds sjálfs var efnt til vitnaleiðslna í málinu þar sem þrjátíu vitni, að honum sjálfum meðtöldum, voru leidd fram. Ekki var um eiginleg réttarhöld að ræða því vitnaleiðslunum var einungis ætlað að auðvelda stjórnvöldum að taka ákvörðun. Engin eiginleg nið- urstaða fékkst í málinu, Eðvald var ekki framseldur en var vís- að úr landi skömmu síðar. Það var síðan nánast fyrir tilviljun að faðir Atla settist að á íslandi. Talið hefur verið að hann hafi ætlað að fara frá Svíþjóð til Venesúela en Atli ber það til baka og segir föður sinn hafa ætlað til Bandaríkjanna. Skipið sem hann sigldi með, Rosita, strandaði hins vegar í Innri Njarðvík á leiðinni. Eðvald varð íslenskur ríkisborgari árið 1955. Þegar einstaklingur er borinn jafn þungum sökum og þeim sem Eðvald er borinn nú, verður vart hjá því komist að skuggi falli einnig á aðstandendur hans. Atli segir gífurlegt álag hafa hvílt á fjölskyldum þeirra systkina þessar síðustu vikur. Sig svíði sárt undan því að þurfa að horfa upp á þjáningar sinna nánustu, því á þessum heimilum sé grátið meira og minna á hverjum degi. Stuttu áður en við tókum tal saman ræddi Atli við Önnu systur sína í síma en hún var grátandi eftir að hafa hlustað á hádegisfréttirnar. Níu ára sonur hennar brotnaði saman þegar hann heyrði ásaknir um fjöldamorð og nauðgun á hendur afa sínum í útvarpi daginn sem fréttin var birt. Jó- hannes sem er elstur þeirra systkina er búsettur í Skotlandi, en fylgist engu að síður mjög grannt með framvindu mála. „Sjálf- ur er ég ofsalega stressaður yfir því að geta ekki verið hjá pabba í öllum fréttatímum, því hann misskilur oft það sem sagt er og nær ekki að meðtaka allt. Ég reyni að hlusta á alla fréttatíma til þess að vera undirbúinn þegar hann hringir í mig til að fá skýringar á því sem sagt var. En það tekst ekki alltaf, lífið verður að ganga sinn vanagang, ég þarf að fara í vinnu og sækja æfingar. Á kvöldin fer ég til hans og held áfram að út- skýra. Ég get ekki neitað því að ég er hræddur um að pabbi kikni undan þessu oki, hann er hjartveikur og maður veit ekki hvort hann heldur þetta út. Hann er að brjóta heilann um þetta allan sólahringinn og hvílist mjög lítið. Hann langar til að geta komið fram í fjölmiðlum og tjáð sig um málið en hann á enga möguleika. Þeir eru ekkert að hlífa honum. Hvert orð sem hann segir virðist vera túlkað á neikvæðan hátt. Mestar áhyggjurnar hefur hann af því hvernig þetta komi niður á barnabörnunum og hvort þau verði fyrir áreitni í skólanum. Hann er ekki búinn að gleyma því hvað Jóhannes bróðir minn þurfti að ganga í gegnum þegar þessar ásakanair komu fram árið 1961 en þá var hann tíu ára. Sjálfur var ég bara fjögurra ára og vissi lítið hvað var að gerast.“ Sumir draga í efa réttmæti þess og tilgang að eltast við atburði sem gerðust fyrir hálfri öld þar sem líklegt sé að erfitt verði að sanna sekt eða sakleysi með óyggjandi hætti. Aðrir benda á að ásakanir um stríðsglæpi séu þess eðlis að þá beri skilyrðislaust að rannsaka. „Ég get ekki séð til- ganginn með því vera að taka mál- ið enn einu sinni upp, nú fimmtíu árum síðar. Annað hvort er þetta bara hreinn kvikindisskapur eða skortur á þroska. I upphafi var markmiðið með þessum rannsókn- um hjá Wiesenthalstofnuninni góður og gildur, meðan verið var verið tryggja að glæpir nasista gleymdust ekki, en nú virðast þeir fyrst og fremst vera að þessu til að halda stofnunni gang- andi þannig að hún hafi eitthvað að gera. Það eru síðan ís- lenskir fjölmiðlar sem taka málið upp. Hvað ætlast þeir fyrir með þessu? Ætlast þeir kannski til þess að fólk fari að mála hakakross á húsið hjá mér eða á peysurnar á litlu krökkunum mínum, barnabörnum pabba? Á hann að ganga með haka- kross á enninu? Þeir vilja stimpla hann og eru búnir að því. Sem betur fer hafa íslendingar svo mikinn viðbjóð á svona framkomu að flestir taka upp málstað okkar. Ég segi fyrir mitt leyti, hvað hefði gerst ef þessir sömu fréttamenn hefðu notað tíma sinn og peninga til að vinna að málum tveggja lítilla ís- lenskra ríkisborgara sem nú eru í Tyrklandi? Þær væru komn- ar heim. Þessir fréttamenn hljóta að trúa því að pabbi sé sekur því að þeir geta ekki unnið svona einhæft nema að trúa eða að minnsta kosti vona að hann sé sekur.“ Atla er mikið niðri fyrir þegar hann talar, enda vart við öðru að búast. Hann viður- kennir að það sé erfitt að tala af yfirvegun um þessi mál. Hann tekur sem dæmi sjónvarpsviðtal sem Stöð 2 átti við hann nokkrum klukkustundum eftir að ásakanirnar komu fram. „Ég var ennþá alveg dofinn eftir áfallið og mundi ekkert'hvað ég hafði sagt eftir á. En ég hefði ekki trúað því að óreyndu að þetta yrði eins og í bandarískri sakamálamynd, að ég yrði spurður að því hvort ég væri hundrað prósent viss um sakleysi föður míns. Hverju bjóst fréttamaðurinn við að ég myndi svara?“ Atli telur að rétt hefði verið að bíða með að hella þessum ásökunum yfir föður sinn þangað til mál skýrðust, búið væri að fjalla um það og hugsanlega dæma í því. „Þá gætu þessir 76 HEIMSMYND

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.