Heimsmynd - 01.06.1992, Blaðsíða 24
HEILBRIGT
SUMAR
anni heyrist á
flestum að þeir
ætli að reyna að
leggja stund á heilsusam-
legt líferni og mikla úti-
vist í sumar. Ekki veitir af
eins rysjóttur og veturinn
var.
Við mælum með Kerl-
ingarfjöllum í júlí. Fyrir
þá sem ekki nenna á skíði
má benda á að taka með
smáfréttir
sér góða gönguskó auk
tjalds og viðlegubúnaðar
og ráðast síðan í fjöllin. A
kvöldin má kveikja varð-
eld og njóta stórkostlegr-
ar fjallasýnar. Við ætlum í
júlí.
Búðir á Snæfellsnesi
hafa verið afar vinsæll
staður undanfarin ár. Nú
er svo komið að takmörk
eru fyrir því hve margir
geta tjaldað á tjaldstæðinu
en sókn fólks í þennan
stað hefur verið óhemju
mikil. Pað er einnig frá-
bært að dvelja á hótelinu
að Búðum. Sigríður sem
rekur staðinn, opnar hann
með mikilli viðhöfn að
viðstöddum mörgum gest-
um í sumarbyrjun og
heldur síðan skemmtilegt
lokahóf þegar þessi allt of
stutta árstíð er á enda.
Sigríði hefur tekist að
skapa náttúrulega og
bjarta stemmningu á Búð-
um. Pað er frábært að
sitja í veitingasalnum þar
að kvöldlagi, borða
sveppi og grös, sem tínd
eru fyrir utan og fyllast
unaðslegri lotningu fyrir
staðnum undir jökli á
hjara veraldar.
Þá má ekki gleyma
Þórsmörkinni fyrir þá
sem kjósa einfaldlega
gönguferðir með nesti og
nýja skó í fögru um-
hverfi.B
KONANí
NÆTURLÍFINU
ynferðisleg
hvatning er
áfram alls-
ráðandi á þessum
vettvangi. Helst
verður að glitta í
geirvörturnar.
Þetta sýnishorn er
mynd úr Vogue
en gæti alveg eins
verið tekin í Ing-
ólfscafé. Þetta er
það útlit sem er
allsráðandi þar.
Glansandi hár og
þröngur fatnaður
og í lágmarki. Fal-
legt, kynþokkafullt
og yfirmáta
bjartsýnt.B
I
'm
1
„Það má kannski bjóða þér stöðu sýningarstjóra Stjórnar-
ráðsins?" Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra á tali
við óska(rs)barn þjóðarinnar, Friðrik Þór Friðriks-
son.
FEST Á FILMU
enntamálaráðuneytið og Kvikmyndasafn
íslands buðu til hófs þegar Halla Linker
ákvað að géfa safninu filmusafn þeirra Hal
Linkers. Áhugafólk um kvikmyndir, leikarar og
leikstjórar heiðruðu samkunduna.B
-ÍV.
m
'i\
m. i
Kvikmyndaleikstjórinn og verðlaunahafinn frá Rúðuborg,
Lárus Ýmir Óskarsson, Halla Guðmundsdóttir og nýjasti
styrkþegi kvikmyndasjóðs. Guðný Halldórsdóttir.
Edda Þórarinsdóttir leikkona, Gísli Alfreðsson, óskabarn 01
afs G. Einarssonar og Halla Linker.
Þorsteinn Jónsson, Halla Linker og Davíð Þór sonur hennar
við afhendinguna á gjöfinni.
24 HEIMSMYND