Heimsmynd - 01.06.1992, Blaðsíða 30
SUÐ URRÍKJAKOKKUR
OG SVÆFINGALÆKNIR
Hjördís Smith er matcirgeröarmeistari á heimsmœlikvarda. Um
þessar mundir er hún stödd í cajunskri matargeröarlist.
Hjördís Smith het-
ur verið búsett í
Bandaríkjunum í
hátt í 7 ár. Hún fór
meðal annars í
pílagrímaför til
suðurríkjanna þar
sem hún kynnist
sérstöðu Cajun
búa.
Cajunar búa yfir matar-
gerðarlist sem fremur fáir
þekkja hér á landi að
minnsta kosti eins vel og
Hjördís Smith sem er
svæfingalæknir á sjúkrahúsinu í Kefla-
vík. Hún og maki hennar, Ólafur Þ.
Harðarsson lektor, hafa meira að segja
lagt í pílagrímaför til suðurríkja Banda-
ríkjanna, nánar tiltekið til Louisiana
þar sem rætur þessarar matreiðsluhefð-
ar liggja. Hjördís er þegar búin kynna
sér matargerð af margvíslegu tagi svo
sem indverska og kínverska matargerð,
mat frá miðjarðarhafslöndunum og svo
mætti áfram telja. Hróður hennar sem
áhugakokks berst víða enda er hún
matargerðarmeistari á heimsmæli-
kvarða, heldur stór matarboð allt að
tvisvar í mánuði þar sem hún bryddar í
hvert sinn upp á einhverri nýjung. Hún
er alltaf að koma fólki á óvart. „Ég er
haldin þeirri áráttu að geta aldrei hætt
að þreifa fyrir mér í nýjum matreiðslu-
hefðum“, segir Hjördís. Hennar helsta
lesning fyrir svefninn eru matreiðslu-
bækur- og blöð. Hún á líka býsna mik-
ið af matreiðslubókum sem prýða hill-
urnar í eldhúsinu hennar í Hafnarfirði.
Það eldhús er ekki bara eldhús þar sem
eldað er og etið. Þar má sjá að mikið er
landi til Nova Scotia og New Brunswick í Kan-
ada og helgaði sér svæði sem þá hét Acadian. I
nýlendustríði Breta og Frakka voru Frakkarnir
gerðir burtrækir frá Acadian því þeir vildu ekki
játast undir bresku krúnuna. Þeir fóru því ýmist
land- eða sjóleiðina niður til Louisiana og end-
uðu á fenjasvæði sem öðrum Bandaríkjamönn-
um þótti óbyggilegt. Þetta voru mestmegnis
bændur og fiskimenn sem lifðu á því sem land-
ið gaf. A þessu svæði var mikið um vatnafisk
sem þeir lifðu á og svo veiddu þeir sér einnig til
matar villisvín og ýmiss konar fiðurfé. I augum
Hjördísar áttu Bandaríkjamenn ekki spennandi
matreiðsluhefðir þegar hún fluttist þangað.
„En þar komst ég að því að allsstaðar er
hægt að borða vel, sérstaklega í suðurríkjunum.
Cajunar hafa þróað með sér alveg sérstakt eld-
hús. Það er einstakt og eitt af því fáa sérstæða í
bandarískri matargerðarlist. Það varð hins veg-
ar ekki sérstakt fyrr en þeir höfðu meðtekið
áhrif frá öðrum þjóðarbrotum sem bjuggu allt í
kringum þá. En það eru áhrif frá Kreólum - af-
komendum Frakka og Spánverja í Nýja heimin-
um- sem hafa helst verið kenndir við New Or-
leans-svæðið og frá negrunum sem komu með
krydd og grænmeti frá Vestur-Indíum.“
framhald á bls. 90
tímamót
einnig hugsað. Að minnsta kosti fimmtíu til
sextíu matreiðslubækur er þar að finna, krydd-
ilmurinn er megn enda á hún krydd í tugatali og
matjurtagarð í gluggakistunni - ógrynni af krydd-
jurtum sem hún ræktar sjálf - að ógleymdum
fjöldanum öllum af pottum og pönnum sem
Hjördís hefur sankað að sér í gegnum tíðina.
Aðeins rúmlega hálft ár er síðan Hjördís
fluttist hingað til lands frá Bandaríkjunum, þar
sem hún starfaði sem læknir
í Michigan. Þá festu þau Ól-
afur kaup á húsi þar sem þau
hafa hannað draumaeldhús-
ið, vinalegt eldhús þar sem
hugsað er fyrir öllu, þægindum jafnt sem útliti,
meðal annars liggja svalir út frá eldhúsinu þar
sem bæði er grillað og reykt í reykofni á góðum
dögum.
I Bandaríkjunum fékk hún smjörþefinn af
hefð þeirra Cajuna. Hún hefur ekki bara kynnt
sér matreiðsluhefð þeirra, heldur einnig menn-
ingu og sögu, eins hún gerir ætíð þegar hún
leggur inn á nýjar matreiðslubrautir. I þessu til-
felli kviknaði áhuginn á matreiðslunni í kjölfar
lesturs um sögu þeirra.
Cajun er stytting úr orðinu Acadian og vísar
til þjóðarbrots sem fluttist frá Norður-Frakk-
30 HEIMSMYND