Heimsmynd - 01.06.1992, Blaðsíða 42
HIÐ
LJÓSA
MAN
förðun á ljóshærðu
brúðinni eru augun
höfð mátulega áber-
andi. Litir eru ljósir, ljós-
bleikir og dökkfjólublár litur
notaður til að skyggja og
draga fram augun. Maskar-
inn á augnhárin má ekki vera
yfirþyrmandi. Áhrifin eiga að
vera blíðleg og mjúk og því
er notaður dökkblár litur
(navy) en ekki svartur.
Áherslan er á munninn. Var-
irnar eiga að vera málaðar í
björtum lit, jafnvel sterkum
rauðum lit ef húðliturinn
leyfir.
Ljósa hárið fær að njóta
sín með stórum karmen-
krullum í frjálslegri og fal-
legri greiðslu.
HIN
DÖKKA
FEGURÐ
förðun dökk-
I hærðu brúðarinn-
HJi ar fá dökk og
leiftrandi augun að njóta
sín með brúnum, grænum
og gulum augnskuggum,
sem blandað er rétt sam-
an. Hér eiga hlýir jarðlitir
betur við en skærir og
bjartir eða kaldir. Varirn-
ar eru málaðar með
hreinum rauðum lit til að
ná fram Mjallhvítaráhrif-
um þar sem andstæðurnar
í andlitinu njóta sín við
hreinan, hvítan kjólinn.
Fyrir nokkrum árum
var brúðarförðun í mjög
daufum litum og bleikum
tónum en nú er öldin
önnur. Áherslan er á
skarpar andstæður andlits
og hinnar hvítu heildar-
myndar sem kjóllinn
skapar.B
GÓÐ RÁÐ - GÓÐ RÁÐ - GÓÐ RÁÐ - GÓÐ RÁÐ •
AUGNSKUGGARÍ
ru aftur komnir í tísku. Það er vandi að setja augn-
skugga á augnlokin því oft vill duftið hrynja úr
burstanum niður á kinn. Gott ráð við þessu er að
dusta mesta litinn úr burstanum á handarbakinu áð-
ur en hann er settur á. Auk þess er gott að taka púð-
og setja laust púður undir augun sem síðan er burstað
af þegar augnskugginn er
kominn á. Alveg eins og það
er fallegt að skyggja augnlokin
er fátt ljótara en skuggar undir
augunum. Hver vill meiri
bauga?B
- GOÐ RÁÐ - GÓÐ RÁÐ - GÓÐ RÁÐ •
MATARÆÐIFEGURÐARDÍSANNA
atrín Hafsteinsdóttir sem þjálfar fegurðardís-
irnar fyrir Ungfrú íslandskeppnina leggur
þeim strangar reglur um mataræði. Hér eru
nokkrir punktar sem Katrín leggur mikla áherslu á
jafnt fyrir fegurðardrottningar og annað fólk sem
vill ná árangri eins og fegurðardísirnar.
• Drekkið mikið vatn. Sex til átta glös á dag.
• Setjið ykkur takmark og látið ekki munnbita inn
fyrir ykkar varir eftir kvöldmat.
• Borðið fisk og grænmeti í miklum mæli.
• Minnkið kjötát.
• Sleppið öllum sykri, gosdrykkjum og fitu.
• Hreyfið ykkur reglulega á þann hátt sem þið kjósið.
SPURT ER
Hver er eftirminnilegasti einstakl-
ingur sem þú hefur tekið mynd af?
BONNI
LJÓSMYNDARI
„María Ellingsen leik-
kona er mér mjög minnis-
stæð. Hún sýndi svo mikil
svipbrigði, grét, hló, gretti
sig og sýndi fimmtán and-
lit á fimm mínútum. Hel-
ena Jónsdóttir dansari
hefur mikla útgeislun og
dásamlegar hreyfingar
fyrir framan myndavél-
ina.“
MAGNÚS
HJÖRLEIFSSON
LJÓSMYNDARI
„Halldór Laxness.
Hann var svo brosmildur
og öruggur fyrir framan
myndavélina. Honum
fannst gaman að láta
mynda sig. Jóna Björk
fyrirsæta. Það er heims-
konubragur yfir henni.“
GRÍMUR
BJARNASON
LJÓSMYNDARI
„Uppáhaldsmódelið
mitt eru Unnur Steinsson.
Hún hefur svo sérstaka
framkomu og hreyfingar.
Mikil fagmanneskja.
Baldvin Halldórsson leik-
ari. Hann er svo sterkur
persónuleiki.“
BRAGIJÓSEFSSON
LJÓSMYNDARI
„Bubbi Morthens.
Hann hafði allt á hreinu
þegar ég myndaði hann.
Vissi sjálfur hvernig hann
liti best út á mynd. Kristín
Káradóttir. Hún myndast
svo vel.“
42 HEIMSMYND