Heimsmynd - 01.06.1992, Page 43
ÞÓRUNN LÁRUSDÓTTIR
varð númer þrjú í nýafstaðinni fegurðar-
samkeppni. Allt er þegar þrennt er. Þórunn
lenti I fyrsta sæti í fyrirsætukeppni í Banda-
ríkjunum, þar sem hún dvaldi í eitt ár og í
öðru sæti í Ford fyrirsætukeppninni hér á íslandi
í fyrra. Engum kemur á óvart að stúlkan sé góð
fyrirsæta svo leggjalong sem hún er. Og ekki
skemmir tramkoman, sem er lifandi og það kemur
heldur ekki á óvart. Hún hefur erft glaðlegt fas móð
ur sinnar, Sigríðar Þorvaldsdóttur leikkonu og ugg-
laust einhverja hæfileika hennar líka sem og frá töður
sínum, Lárusi Sveinssyni trompetleikara. Þórunn er
ein þriggja systra og þær spila allar á píanó og
trompet. Þórunni, sem er 19 ára gömut, standa
margar dyr opnar um þessar mundir. í haust
stendur hennjtil hoða að taka þátt í tveimur
fegurðarsamkeppnum erlendis í framhaldi af
Ungfrú íslandskeppninni. Þá býðst henni að
reyna fyrir sér sem fyrirsæta í Mílanó og hún
hefur fengið inngöngu í sama leiklistarskóla
og móöir hennar nam við torðum, á vest-
urströnd Bandaríkjanna.
Þórunn er ekki á leið í frumskóga Afr-
íku þaðan sem Jón Páll er nýkominn og
leið aúgsýnilega eins og Tarsan þegar
myndin var tekin.B
- Kristín Stefánsdóttir
LJÓSMYND: BONNI,
HÁR: ERLA í HÁR OG FÖRÐUN,
BIKINI: ÚTILÍF