Heimsmynd - 01.06.1992, Page 46
HEIMSMYND/BONNI
NAFN
CALLIE GRACE MCDONALD
ALDUR 29 ára
STARF eróbikkkennari
STAÐA OG HAGIR Hálfíslensk, alin upp í Bandaríkjunum, búsett í Reykjavík síðan 1987.
A þriggja ára son.
HÆÐ 180 sentímetrar
ÞYNGD 64 kfló
HVERT ER VIÐHORF ÞITT TIL LÍKAMA ÞÍNS? „Ég er mjög ánægð með mig eins og
ég er og sátt við útlit mitt. Mér finnst ég heppin að geta sinnt líkama mínum með stöðugri
þjálfun og jákvæðu hugarfari.“
HVERNIG HELDUR ÞÚ ÞÉR í FORMI? „Ég er alltaf að æfa mig, sex daga vikunnar,
bæði þegar ég er að kenna og einnig tek ég tíma í það sjálf að halda mér í formi. Þá fer ég í
nudd sem er bráðnauðsynlegt fyrir þá sem æfa svona mikið vegna álagsins á vöðva og blóð-
rás.“
HVERNIG ER MATARÆÐI ÞÍNU HÁTTAÐ? „Ég borða aðeins þegar ég er svöng,
aldrei annars. Ég borða ekki seint á kvöldinl því það er stórhættulegt. Að öðru leyti borða ég
venjulegan, góðan mat og gæti þess að hann sé nægilega fjölbreyttur og hollur. Nema þegar
ég fæ pizzu-kast. Sem betur fer gerist það ekkert oft.“
HEFURÐU ALLTAF VERIÐ í FÍNU FORMI? „Nei, ekki í eins góðu formi og ég er
núna. Ég hef alltaf verið hraust og stundað íþróttir frá unga aldri. Mér hætti til að fitna þeg-
ar ég var yngri. Ég lagaðist mjög í vextinum við að eiga barn.“
HVAÐ RÁÐLEGGUR ÞÚ ÖÐRUM? „Það er nauðsynlegt að vera jákvæður og sáttur við
sjálfan sig óháð því hvernig formi maður er í. Það er oft erfitt að koma sér í form og breyta
um lífshætti. Það þekki ég af eigin raun. Lykilatriðið er að þrauka og halda áfram að æfa sig
þótt maður sjái ekki árangurinn strax því hann skilar sér ef maður heldur sig við efnið. Það
er mikilvægt að byrja hvern dag á góðum morgunverði og æfa sig að minnsta kosti í eina
klukkustund þrisvar í viku.“
Á HVAÐA HLUTA LÍKAMANS LEGGURÐU MESTA ÁHERSLU ÞEGAR ÞÚ ERT
AÐ KOMA ÞER I FORM? „Ég er kona og vil vera kvenleg í vextinum. Ég legg áherslu á
æfingar fyrir mjaðmir og læri án þess að vilja missa kvenlegan vöxt.“
HVERJIR ERU VEIKLEIKAR ÞÍNIR? „Ég vil styrkja efri hluta líkama míns, handleggi,
bak- og brjóstvöðva. Ég hef frekar þykka fótleggi að upplagi en mér hefur með æfingum
tekist að koma þeim í það form sem ég er ánægð með.“
HVAÐ ERTU ÁNÆGÐUST MEÐ í ÚTLITI ÞÍNU? „Hárið, það er heilbrigt og ég hugsa
vel um það með því að láta særa það á sex vikna fresti. Ég er ánægð með tennurnar mínar en
það kostaði líka foreldra mína þrjú þúsund dollara að borga fyrir spangir upp í mig á sínum
tíma. Ég er hraust, líkamlega sterk og almennt jákvæð.“
46 HEIMSMYND