Heimsmynd - 01.06.1992, Page 49
NAFN
ÁGÚSTA JÓHANNSDÓTTIR
ALDUR 35 ára
STARF Ljósmóðir og húsmóðir
STAÐA OG HAGIR Gift Ellert B. Schram ritstjóra og á tvö börn, tveggja ára dóttur og
fimm mánaða son.
HÆÐ 170 sentímetrar
ÞYNGD 64 kíló
HVERT ER VIÐHORF ÞITT TIL LÍKAMA ÞÍNS? „Ég elska hann. Maður verður að
elska þennan skrokk á sér því ekki fær maður annan.“
HVERNIG HELDUR ÞÚ ÞÉR í FORMI? „Síðustu tólf árin hef ég lyft lóðum og hlaupið.
Núna undanfarin tvö ár hef ég átt barn á sitthvoru árinu og nota þau sem tæki og lóð. Áður
hljóp ég um allar trissur en nú þramma ég með barnavagninn. Auk þess er ég í leikfimi
þrisvar í viku í Röskvu í Kópavogi.“
HVERNIG ER MATARÆÐI ÞÍNU HÁTTAÐ? „Ég borða allt, drekk mikið vatn en er
mikill sælkeri. Ég er vitlaus í rjómakökur og súkkulaði eða nammi í sjoppum."
HEFURÐU ALLTAF VERIÐ í FÍNU FORMI? „Ég var búttuð á aldrinum sextán til tutt-
ugu en hef verið í ágætri þyngd síðan þá. Ég hef alltaf verið virk, synti mikið sem krakki og
fór í alvöru að þjálfa mig um tvítugt. Og þá grenntist ég.“
HVAÐ RÁÐLEGGUR ÞÚ ÖÐRUM? „Að vera í stöðugri þjálfun hvort heldur það er einu
sinni eða fimm sinnum í viku. Pað er í lagi að taka sér þriggja vikna frí frá hreyfingu en láta
ekki líða marga mánuði. Mér virðist það alltof algengt að fólk sé að þeysa í leikfimi í ein-
hvern stuttan tíma og gefst síðan upp af því að þetta er svo erfitt. Hreyfing á að vera sjálf-
sagður hluti af daglegu lífi eins og að ganga í vinnuna, út í búð eða í heimsókn til vina.“
Á HVAÐA HLUTA LÍKAMANS LEGGURÐU MESTA ÁHERSLU ÞEGAR ÞÚ ERT
AÐ KOMA ÞÉR í FORM? „Handleggi, brjóstkassa og rass. Eftir því sem maður eldist
verða upphandleggir og rassvöðvar linir. Mér finnst mjög gaman að sjá á eftir einhverjum
með stinnan rass!“
HVERJIR ERU VEIKLEIKAR ÞÍNIR? „Of kraftaleg um axlirnar og fæ auðveldlega
undirhöku eftir sjoppuferðir. Ég er alltaf með fitukomplexa þó heilbrigð skynsemi segi mér
að ég sé ekki feit.“
HVAÐ ERTU ÁNÆGÐUST MEÐ í ÚTLITI ÞÍNU? „Ætli ég sé ekki ánægðust með
barminn ha ha,! Líkami minn er heilbrigður og sterkur og ég er ánægð með það að fólk virð-
ist upplifa mig glaðlega.“
HEIMSMYND 49