Heimsmynd - 01.06.1992, Síða 53

Heimsmynd - 01.06.1992, Síða 53
NAFN ÁSDÍS SIG URÐARD Ó TTIR ALDUR 26 ára STARF Þjálfari í líkamsrækt STAÐA OG HAGIR Er í sambúð með Valdimar Erni Flygenring. Á tveggja ára dóttur og eitt á leiðinni. Er komin fjóra mánuði á leið. HÆÐ 171 sentímetrar ÞYNGD 55 kíló HVERT ER VIÐHORF ÞITT TIL LÍKAMA ÞÍNS? „Ég ber virðingu fyrir honum og reyni að halda mér í formi. Þá líður mér vel, ekki síst andlega." HVERNIG HELDUR ÞÚ ÞÉR í FORMI? „Ég fer í tækjasal og æfi létt í tækjunum. Þetta geri ég þrisvar, fjórum sinnum í viku. Ég verð að viðurkenna það að æfingarnar hjá mér gengu út í öfgar þegar ég æfði alla daga. Nú hef ég dregið úr þeim en stunda þess í stað sund og skíði og fæ meiri ánægju út úr því.“ HVERNIG ER MATARÆÐI ÞÍNU HÁTTAÐ? „Ég borða helst ekki kjöt en mikinn fisk og grænmeti auk ávaxta." HEFURÐU ALLTAF VERIÐ í FÍNU FORMI? „Já, það má eiginlega segja það. Ég var virk í leikfimi sem krakki og unglingur en fór að verða mjög meðvituð um þörfina á líkams- rækt innan við tvítugt. Um það leyti byrjaði ég að æfa vaxtarrækt með keppni í huga en árið 1987 varð ég íslandsmeistari í vaxtarrækt.“ HVAÐ RÁÐLEGGUR ÞÚ ÖÐRUM? „Að gleyma ekki líkamanum. Það tekur ekki mik- inn tíma að komast í þokkalegt form ef maður gerir það að lífsmynstri. Allir ættu að stunda einhverjar íþróttir eða æfa í klukkutíma þrisvar til fjórum sinnum í viku. Það borgar sig því manni líður betur og hefur aukna orku. Auk ánægjunnar sem hlýst af því að líta vel út.“ Á HVAÐA HLUTA LÍKAMANS LEGGUR ÞÚ MESTA ÁHERSLU ÞEGAR ÞÚ ERT AÐ KOMA ÞÉR í FORM? „Ég legg áherslu á rassinn, fótleggi, maga og brjóst. Auðvitað æfi ég alla vöðva líkamans en þessa sérstaklega.“ HVERJIR ERU VEIKLEIKAR ÞÍNIR? „Ég hafði tilhneigingu til að vera of grönn hér áður fyrr. Með æfingum hef ég bætt úr flestu því sem ég var áður óánægð með, hef styrkt fótleggina og barminn. Ég dett stundum í sælgætisát en reyni að hafa hemil á mér.“ HVAÐ ERTU ÁNÆGÐUST MEÐ í ÚTLITI ÞÍNU? „Augun og hárið.“ HEIMSMYND 53
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.