Heimsmynd - 01.06.1992, Side 54

Heimsmynd - 01.06.1992, Side 54
NAFN INGIBJÖR G S TEFÁNSD Ó TTIR ALDUR 19 ára STARF Nemi, leikur í Veggfóðrinu og syngur í hljómsveitunum Ba ba Lú og Pís of keik og starfar sem módel STAÐA OG HAGIR Barnlaus en á kærasta, Júlíus Kemp leikstjóra Veggfóðursins. HÆÐ 173 sentímetrar ÞYNGD 55 kfló HVERT ER VIÐHORF ÞITT TIL LÍKAMA ÞÍNS? ,,Að halda honum í góðu formi og láta mér líða vel bæði andlega og líkamlega." HVERNIG HELDUR ÞÚ ÞÉR í FORMI? „Ég borða góðan mat og hreyfi mig. Ég var lengi í dansi en nú stunda ég leikfimi í skólanum og tek sundtarnir. Að auki heldur kærast- inn mér í formi.“ HVERNIG ER MATARÆÐI ÞÍNU HÁTTAÐ? „Ég get að minnsta kosti ennþá borðað allt en ég er ekki mikil kjötmanneskja. Pasta er í miklu uppáhaldi hjá mér svo tek ég fjölvíta- míntöflur og gingseng, þó það hafi aldrei virkað á mig þegar ég er í prófum." HEFUR ÞÚ ALLTAF VERIÐ í FÍNU FORMI? „Já, ég hef aldrei þurft að kvarta. Ég var helst til grönn sem barn en hafði aldrei áhyggjur af því.“ HVAÐ RÁÐLEGGUR ÞÚ ÖÐRUM? „Ég ráðlegg öllum að fara strax út að hoppa, skoppa og hjóla og hætta þessu eilífa súkkulaðiáti.“ Á HVAÐA HLUTA LÍKAMANS LEGGURÐU MESTA ÁHERSLU ÞEGAR ÞÚ ERT AÐ KOMA ÞÉR í FORM? „Maga, rass og læri.“ HVERJIR ERU VEIKLEIKAR ÞÍNIR? „Engir sérstakir, ég er sátt við sjálfa mig eins og ég er.“ HVAÐ ERTU ÁNÆGÐUST MEÐ í ÚTLITI ÞÍNU? „Heildarsvipinn.“ 54 HEIMSMYND

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.