Heimsmynd - 01.06.1992, Page 54
NAFN
INGIBJÖR G S TEFÁNSD Ó TTIR
ALDUR 19 ára
STARF Nemi, leikur í Veggfóðrinu og syngur í hljómsveitunum Ba ba Lú og Pís of keik og
starfar sem módel
STAÐA OG HAGIR Barnlaus en á kærasta, Júlíus Kemp leikstjóra Veggfóðursins.
HÆÐ 173 sentímetrar
ÞYNGD 55 kfló
HVERT ER VIÐHORF ÞITT TIL LÍKAMA ÞÍNS? ,,Að halda honum í góðu formi og
láta mér líða vel bæði andlega og líkamlega."
HVERNIG HELDUR ÞÚ ÞÉR í FORMI? „Ég borða góðan mat og hreyfi mig. Ég var
lengi í dansi en nú stunda ég leikfimi í skólanum og tek sundtarnir. Að auki heldur kærast-
inn mér í formi.“
HVERNIG ER MATARÆÐI ÞÍNU HÁTTAÐ? „Ég get að minnsta kosti ennþá borðað
allt en ég er ekki mikil kjötmanneskja. Pasta er í miklu uppáhaldi hjá mér svo tek ég fjölvíta-
míntöflur og gingseng, þó það hafi aldrei virkað á mig þegar ég er í prófum."
HEFUR ÞÚ ALLTAF VERIÐ í FÍNU FORMI? „Já, ég hef aldrei þurft að kvarta. Ég var
helst til grönn sem barn en hafði aldrei áhyggjur af því.“
HVAÐ RÁÐLEGGUR ÞÚ ÖÐRUM? „Ég ráðlegg öllum að fara strax út að hoppa,
skoppa og hjóla og hætta þessu eilífa súkkulaðiáti.“
Á HVAÐA HLUTA LÍKAMANS LEGGURÐU MESTA ÁHERSLU ÞEGAR ÞÚ ERT
AÐ KOMA ÞÉR í FORM? „Maga, rass og læri.“
HVERJIR ERU VEIKLEIKAR ÞÍNIR? „Engir sérstakir, ég er sátt við sjálfa mig eins og
ég er.“
HVAÐ ERTU ÁNÆGÐUST MEÐ í ÚTLITI ÞÍNU? „Heildarsvipinn.“
54 HEIMSMYND