Heimsmynd - 01.06.1992, Page 59

Heimsmynd - 01.06.1992, Page 59
Ævisaga hennar var metsölubók íyrir nokkrum árum. Aðrar eins játningar höíðu vart sést hjá hennar kynslóð. En Halla Linker er engin venjuleg íslensk kona. Hennar heimur er samkvœmislíí Los Angelesborgar og þar er hún enn í miðri hringiðunni glœsilegri en nokkru sirmi íyrr . . . hún trúir því að ævintýrin gerist enn, að það sé alltaf eitthvað að gerast hinum megin við sjón- deildarhringinn. Þetta er kona komin yfir sex- tugt, konan sem fór á vit ævintýranna fyrir fjöru- tíu og tveimur árum árum á þeim tíma er allar konur á íslandi héldu að lífið í Ameríku væri eins og sena úr mynd með Doris Day, konan sem stóð manni sínum við hlið í gegnum súrt og sætt í tuttugu og átta ár. Þetta er ævintýraprinsessa Islands Halla Linker, ræðismaður íslands í Los Angeles, sem tvítug lagði land undir fót með stjórnsöm- um manni sem hún elskaði í raun og veru aldrei en bar þó virðingu fyrir. Ameríski kvikmyndagerðarmaðurinn, Hal Linker, bað hennar aðeins þremur dögum eftir að þau hittust á Hótel Borg. Hún segist myndi loka dóttur sína inni ef hún játaðist manni eftir aðeins þriggja daga kynni. Hún lét hvatvís- ina ráða. Nú fjórtán árum frá láti Hal Linkers hefur henni aldrei liðið betur. Nú er hún komin yfir breytingaaldurinn, fer í samkvæmi allt að fimm sinnum í viku, hefur kippu, eins og hún orðar það sjálf, af karlmönnum í kringum sig sem hún á stefnumót við til skiptis en segist ekki enn viss um að hafa fundið þann rétta. Hún er í háskólanámi þar sem hún sækir tíma í frönsku, spænsku og fornleifafræði. Líf hennar hefur gjörbreyst - til hins betra. Hún er loksins að verða hún sjálf. Fimm ár eru liðin síðan bók Höllu Linker varð metsölubók á íslenska jólabókamarkaðnum. Hún segir Uppgjörið hafa breytt mörgu í lífi sínu. Þar lagði hún spilin á borðið. Sagði frá því sem raunverulega hafði drifið á daga hennar. Glanshúðin var tekin burt. Líf hennar hafði um margt verið gott en engin dans á rósum. Dans á þyrnirósum væri rétt lýsing. í kjölfar bókar sinnar var hún gagnrýnd fyrir að sverta minningu eigin- manns síns sáluga. Einhverjum íslenskum karlmanni var svo mikið niðri fyrir eftir útkomu Uppgjörsins að hann skrifaði lesendabréf í Dagblaðið Vísi undir fyrirsögninni; Til varnar Hal Linker. Þetta tekur Halla alls ekki undir: „Það fólk sem gagnrýndi mig fyrir að hafa ekki borið honum vel söguna var fólk sem ekki hafði lesið alla bókina. Ef einhver hefði átt að gagnrýna mig fyrir það sem ég sagði um eiginmann minn er það sonur okkar. En hann sagði við mig eftir að hafa lesið bókina; „Mamma, mér finnst þú hafa komið mjög heiðarlega fram við pabba í bókinni.“ Hann lifði einnig við ráðríki föður síns.“ Vinkonur hennar dáðust að hugrekki Höllu. Halla Guðmundsdóttir var nýútskrifuð úr Menntaskólanum í Reykjavík þegar fundum hennar og Hal Linkers bar saman. Hún segist hafa átt góða æsku. Foreldrar hennar þau Daðína Þórarinsdóttir húsmóðir og Guðmundur Þórðarson sjómaður skildu þegar hún var 11 ára gömul. Móðir hennar giftist aftur Stefáni Jóhannssyni sem var nokkru yngri en hún, en faðir hennar dó þegar hún var 17 ára. Sumarið sem hún útskrifaðist fannst henni hún hafa afrekað svo miklu að hún vann ekkert heldur stundaði hið ljúfa líf. Var meðal annars oft á Hótel Borg þar sem hún hitti Hal Linker í fyrsta skipti. Hún mundi eftir að hafa lesið um þenn- an kvikmyndagerðarmann í blöðunum. I hennar augum var hann bara karl, líkt og tvítugar stúlkur hugsa til þrítugra manna. Af einhverri ævintýraþrá sagði hún þó já þegar hann bað hennar eftir aðeins þriggja daga kynni. Hún var alla tíð viss um að auðmýkt hennar hafi heillað Hal, að hann sæi í henni konu sem hægt væri að stjórna. „Ég má þakka fyrir að Hal hafi verið heiðarlegur maður þó hann hafi verið ráðrík- ur.“ Fréttin um trúlofun þeirra barst eins og eldur í sinu um landið enda hafði Hal látið birta trúlofunarfréttina í blöðun- um. Hann hafði alltaf hraðar hendur við að koma öllu í blöð- in. halla var í augum vinkvenna sinna ævintýrastúlk- an í hópnum en vinkonur hennar úr mennta- skólanum voru ekki hæstánægðar með þennan ráðahag. Fordómar þess tíma hafa þarna átt hlut að máli, að minnsta kosti komu efasemdir upp í henni og hún hugsaði með sér eftir að hafa ját- ast Hal að allir myndu segja: „Þetta er bölvað skoffín, hún Halla. Ég vissi það svosem alltaf að það væri ekkert í hana eftir: GUÐRÚNU KRISTJÁNSDÓTTUR

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.