Heimsmynd - 01.06.1992, Side 92
Halla svaraði honum um hæl og sagði að
íbúðin væri kannski besti sjensinn hennar
hingað til. íbúðin væri alltaf til staðar
þegar hún þyrfti á henni að halda, íbúðin
rifist aldrei við sig og að auki hefði hún
ekki trú á því að íbúðin héldi framhjá
sér. Auk þess er íbúðin á sjöundu hæð, í
sjöunda himni eins og hún orðar það
sjálf. Reyndar var annað merkilegt að
gerast í lífi hennar. Hún var að losna úr
viðjum breytingaraldursins. „Ég skyldi
ekki hvað ég var alltaf kvíðin. f>að gat
ekki bara verið vegna þess að það voru
svona miklar veraldlegar breytingar í lífi
mínu. Kvíðinn hafði varað í þrjú ár.
Loksins þegar öll mín mál voru komin í
höfn vissi ég að það var ekki bara þetta
sem angraði mig. Mér leið eins og mig
langaði alltaf að hoppa út úr mínum eigin
líkama. Mér fannst þetta ekki eðlilegt
svo ég leitaði læknis.“ Hjá lækninum bað
hún um hormónalyf sem hann lét hana
tafarlaust fá. „Eftir aðeins fjóra daga á
hormónalyfjum voru fuglarnir farnir að
syngja og grasið að grænka. Mér hafði
aldrei liðið betur á ævinni.“
hún segir íslenskar konur
tala mikið um þessi mál sín
á milli. Það geri hins vegar
ekki konur í Kaliforníu.
Ástæðan fyrir því væri sú
að þar væru þær allar að
fela aldur sinn. „Það vilja allir vera svo
ungir í Bandaríkjunum, sérstaklega Kali-
forníu. Þar vill enginn viðurkenna aldur
sinn. Þess vegna tala konur ekkert um sín
mál nema við læknana sína og þeir hjálpa
þeim.“ Hún sagðist ekki vita betur en að
allar konur fengju hormónalyf sem vildu
í Bandaríkjunum, nema þær sem væru
með krabbamein.
Stóra húsið reyndist vera öryggisventill
Höllu þegar upp var staðið: „Húsið
hækkaði svo mikið í verði á meðan ég
beið með að selja það að það sér algjör-
lega fyrir mér í dag.“
Húsmunina og marga þá dýrmætu
muni sem þau Hal höfðu sankað að sér á
ferðum sínum um heiminn seldi hún á
uppboðum sem hún hélt heima hjá sér
skömmu áður en hún skipti um húsnæði.
Hátt í eitt hundrað manns mættu á upp-
boðin sem haldin voru tvo daga í röð á
heimili hennar. „Það var einkennileg til-
finning að sjá fólkið rífa myndir niður af
veggjunum og taka munina sem höfðu
verið húsbúnaður minn í mörg ár. Fólk
bókstaflega reif allt í sig.“ Skemmtilegt
fannst henni hins vegar að dýrindis
saumavél sem Hal hafði gefið henni -
þrátt fyrir að hann vissi að hún saumaði
aldrei - virtist ekki ætla að ganga út.
„Þetta var saumavél sem gerði nánast allt
nema að dansa tangó en ég hafði aldrei
haft not fyrir. Ég hataði þessa vél því mér
fannst það svo mikil peningaeyðsla af
Hal að hafa keypt saumavél handa konu
sem hann vissi að saumaði aldrei. Mér
var hins vegar kennt að ég ætti að taka
við öllu sem mér væri gefið og þakka fyr-
ir mig. Þess vegna sagði ég honum aldrei
hversu óánægð ég væri með saumavél-
ina.“
Á uppboðinu var hún í fyrstu sett á
tuttugu dollara en, enginn leit við henni.
Þá var hún lækkuð niður í fimmtán doll-
ara. Það var sama sagan enginn vildi
kaupa saumavélina. Það endaði með því
að saumavélin var seld á tíu dollara.
„Mér fannst það gott á helv. . saumavél-
ina“, sagði hún og púkinn virtist aftur
kominn upp í henni.
Ágóðann af sölu bókarinnar notaði
hún hins vegar til að festa kaup á þeirri
íbúð sem hún býr í nú. „/ am on an easy
street now. Þarf hvorki að vinna né hafa
neinar peningaáhyggjur. Ég geri það sem
mig langar til og kaupi mína samkvæmis-
kjóla. En auðvitað allt innan vissra
marka. Ég get til dæmis ekki farið í reis-
ur á skemmtiferðaskipi þrisvar ári. Það
leyfa peningarnir ekki. Én ég hef aldrei
haft það eins gott á ævinni og nú, bæði
fjárhagslega og andlega.“
Hún segir mannskepnuna þurfa að
hafa áhyggjur af tvennu í lífinu. Það sé
fjárhagurinn og heilsan. Hvorutveggja sé
í góðu lagi hjá henni. Því hafi hún yfir
engu að kvarta.
„Ég er búin að fara í gegnum peninga-
leysi. Það var svo slæmt að ég vissi ekki
hvaðan næsta máltíð kæmi. Ég myndi
aldrei vilja vera í þeirri aðstöðu aftur.
Fáir vissu að við Hal hefðum svo litla
peninga handanna á milli og ég vildi ekki
vera að segja frá peningaleysinu því þá
hefði stolt mannsins mín sáluga særst svo
mikið.“
Hal hafði sagt við hana í upphafi sam-
bands þeirra að hann væri ekki ríkur en
hún segir svolítinn mun á því að vera rík-
ur og eiga ekki bót fyrir rassinn á sér.
„Það hvarflaði aldrei að mér að maður-
inn ætti bókstaflega ekki neitt.“ Það var
stundum svo að þau áttu ekki fyrir mat,
meira að segja ekki eftir að Davíð var
fæddur en hann fæddist tíu og hálfum
mánuði eftir að þau kynntust. Halla lét
aldrei nokkurn mann vita af peninga-
leysinu, ekki einu sinni móður sína.
Halla hefur svo að segja aldrei kennt
sér neins meins um ævina. Og varð því
hálf fúl yfir því að næla sér í kvef þegar
hún kom til íslands í febrúar síðastliðn-
um. En þá hafði hún ekki fengið kvef í
sautján ár: „Mér fannst leiðinlegt að geta
ekki lengur sagt að ég fengi aldrei kvef“,
segir hún og hlær. En þess má geta að
þegar hún fékk kvef fyrir 17 árum hafði
hún ekki fengið kvef í þrettán ár. Hún
þarf því ekki að kvarta yfir heilsuleysi.
En ástæðan fyrir því að hún kom til
landsins í febrúar var ekki gleðileg.
Móðir hennar sem nú er orðin áttatíu og
átta ára gömul þurfti að gangast undir
uppskurð og hefur ekki almennilega náð
heilsu aftur. „Hún er þrátt fyrir það sæl
og ánægð. Það skiptir öllu máli.
en ég hef allt til alls. Það
eina sem mig vanhagar um
er eiginmaður. En ég nenni
ekki að leita að honum.
Hann verður að finna mig.
Hann þarf ekkert endilega að vera ríkur
en hann má heldur ekki vera fátækur“,
segir hún með alvöruþunga í röddinni.
Það gæti eitthvað merkilegt verið að
gerast í hennar lífi nú því fyrir nokkru
hitti hún nokkuð álitlegan mann, að eig-
in sögn, í anddyri hótelsins þar hún hafði
verið að skemmta sér með vinum sínum
kvöldinu áður. Hún var í miklu galsa-
skapi þennan dag og reyndar allir vinir
hennar einnig. Hún gefur sig á tal við
þennan glæsimann og spyr meira að
segja að því hvort hann sé kvæntur.
Hann segir að svo sé ekki. Hún hafði
sömu sögu að segja. Og þau spjölluðu
saman: „Þetta var allt meira í gamni en
alvöru. Ég tek það fram að venjulega er
ég mikil lady í þessum efnum.“ Það
finnst blaðamanni ekki ótrúlegt svo
dömuleg sem hún er. Þau kveðjast og
hún fer með vinum sínum í borðsalinn.
Nokkru síðar birtist hann og spyr hvort
hann megi setjast við sama borð og þau.
„Ég hrópa upp yfir mig; í guðanna bæn-
um leyfið manninum að setjast við borð-
ið. Hann er ókvæntur!“ Þetta segir Halla
af þvílíkri innlifun að maður gæti haldið
að ástin væri komin í spilið. Fólkið ræddi
saman og skemmti sér vel. Eftir
skemmtilegan dag skiluðu sér allir heim.
Þegar Halla kemur heim til sín liggja fyr-
ir hana skilaboð frá glæsimenninu sem
hún var að skemmta sér með nokkrum
klukkustundum áður. Hann vildi endi-
lega bjóða henni í mat. Þau hafa nokkr-
um sinnum hist. „Það er svo mikið í
hann spunnið að ég sagði við son minn,
he is to good to be true. Allir vinir mínir
eru á sama máli, að ég hafi aldrei áður
hitt svona fínan mann. En maður veit
aldrei. Að minnsta kosti erum við enn að
hittast.“ Vonarglampi skín úr augum
hennar. Hún segist líka orðin hundleið á
því að vera ekkja í ræðismannsstarfinu
og þurfa alltaf að labba ein inn eftir
rauða dreglinum í veislurnar.
halla kunngerði í bók sinni
að eftir að hún varð ekkja
hafi hún átt í ástarsam-
bandi við leikarann Rick
Jason sem hafði komið
fram í vinsælum sjónvarps-
þætti í mörg ár. „Ég varð bálskotin í
honum.“ Hún átti í stormasömu sam-
bandi við hann í fjögur ár. „Ég sé ekki
eftir neinu í sambandi við hann en við
vorum alltof lengi saman.“ Upp úr þeirra
sambandi slitnaði þegar hann fór að
92 HEIMSMYND