Heimsmynd - 01.06.1992, Page 94
ið. Mikið var ég fegin,“ segir hún og
verður meira að segja alvöruþrungin á
svip. Hún vildi greinilega gera allt til að
losna við að hitta þennan mann.
ertu efst á gestalista marga í
Los Angeles? „Neihei",
segir hún og hlær, „en ég er
á listanum hjá mörgum.
Pað eru margir vinir mínir
sem halda mjög mikilli tryggð við mig.
Ég verð að teljast heppin því margar
konur sem verða ekkjur í Bandaríkjun-
um gleymast. I formlegum veislum þar
sem setið er til borðs vilja veisluhaldarar
hafa einn karlmann á móti einum kven-
manni. Kona sem er ein getur því ruglað
öllu borðinu. Oft er ég beðin um að
koma með herra með mér. Pess vegna er
gott að hafa kippu af karlmönnum í
kringum sig.“ Þú ert semsagt með kippu
af karlmönnum í kringum þig?, spyr ég
án þess þó að vera vantrúuð. „Já, svona
smákippu“, svarar hún um hæl.
Halla segist elska samkvæmislífið og
fari allt að fimm kvöld í viku út á lífið,
stundum með vinkonum sínum og stund-
um að hitta vinina.
í samkvæmislífinu hittir hún mörg
heimsþekkt andlit. Skemmtilegust fannst
mér lýsing hennar í bókinni á hinum
heimsþekkta kvikmyndaleikara Charls-
ton Heston sem var búinn að fá sér vel
neðan í því þegar hann mætti til veisl-
unnar sem haldin var í húsi Höllu og
Hal. Halla lýsir því að hann hafi verið
mjög merkilegur með sig, eins og honum
fyndist hann enn vera Móses að koma
með boðorðin tíu ofan af Sínaífjalli, rétt
eins og í kvikmyndinni. Hann var líka
hundleiðinlegur og vildi ekki tala um
annað en tennis, en hann var frægur og
óneitanlega fannst mörgum mikið til
hans koma. Skömmu síðar skrapp ein af
konunum við borðið fram en kom fljót-
lega aftur og hvíslaði að Höllu: „Halla,
þú verður að gera eitthvað í þessu, hann
Charlston Heston er dauður inni á snyrt-
ingu hjá þér!“
Nýlega lenti Halla í veislu með öðrum
heimsþekktum kvikmyndaleikara en það
var hjá James Stewart sem er vinur vina
hennar. Tilefnið var útkoma ljóðabókar
hans: „Petta er ekki í fyrsta sinn sem ég
hitti James Stewart en mér finnst hann
mjög viðkunnanlegur maður en það sem
kom mér á óvart er hversu grannur hann
er orðinn. Maðurinn er hreinlega að
detta í sundur. Lærin á honum eru eins
og handleggir á vel bústinni konu.“
engin önnur en Elísabet
Taylor varð á vegi Höllu
Linker á dögunum þegar
The American Cinema
Award hátíðin var haldin.
Mynd var tekin af Höllu Linker og Elísa-
betu Taylor saman sem vinur Höllu hef-
ur í fórum sínum: „Mér finnst alveg stór-
kostlegt hvað sú manneskja lítur vel út.
Hún sem var orðin svona feit,“ segir hún
og baðar út örmunum til þess að leggja
áherslu á mál sitt. „Það vita það allir að
hún er búin að fara í einhverjar aðgerðir
til að láta laga útlit sitt, engu að síður er
hún stórkostleg." Halla segir hana mjög
afslappaða og þægilega í viðmóti. Það
sama segir hún um Sophiu Loren, ítölsku
Amerísku „Sealy“ rúrpin eru alveg ómótstæðileg. Þau eru hönnuð í samróði við færustu
beinasérfræðinga Bandaríkjanna. Tvær þykkar dýnur, undir- og yfirdýna, sem fjaðra saman
og nó þannig að gefa þér góðan nætursvefn ón bakverkja að morgni. 5—15 óra óbyrgð.
Höfum einnig rúmgafla, nðttborð og rúmföt í miklu úrvali.
Marco,
Langholtsvegi 111, sími 680690.
Opið alla virka daga frá kl. 10-18
Laugardaga frá kl. 11-14
94 HEIMSMYND