Fréttablaðið - 26.09.2015, Blaðsíða 45
|FÓLK
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin RIFF hófst á fimmtudag og stendur yfir til 4. október. Að venju
er glæsileg dagskrá í boði fyrir kvikmyndaunnendur þar sem m.a. er boðið upp á málþing
og fyrirlestra, tónleika og ljósmyndasýningar auk hefðbundinna kvikmyndasýninga. Einnig
verður boðið upp á fjölda ókeypis viðburða á meðan hátíðin stendur yfir.
Í dag fer fram verðlaunaafhending á Lofti Hosteli í einnar mínútu myndakeppni RIFF þar sem
valdar myndir verða sýndar og boðið verður upp á tónleika.
Á morgun, sunnudag, verður boðið upp á sundbíó í Sundlaug Kópavogs kl. 14 og 16. Miðinn
kostar að vísu 800 kr. en ókeypis er inn fyrir 10 ára og yngri. Myndin er sýnd við ylvolga og
grunna sundlaug. Gestir fá kynningu á múmínálfunum fyrir sýningu og boðið verður upp á
ókeypis drykki.
Viðburðurinn Haltu kjafti og skrifaðu handrit er á Lofti Hosteli á mánudag þar sem gestum
er boðið að koma hugmynd á blað eða skrifa handrit í þögn í eina klukkustund undir leiðsögn
Margrétar Örnólfsdóttur.
Fleiri ókeypis viðburði má finna á www.riff.is.
ÓKEYPIS VIÐBURÐIR Á RIFF
SUNDBÍÓ MEÐ MÚMÍNÁLFUNUM.
Mangó er sérlega hollur ávöxt-
ur, fullur af C-vítamíni en hefur
lítið fituinnihald. Hvað er betra
er hollur og góður drykkur á
laugardags- eða sunnudags-
morgni?
Þessi uppskrift miðast við
fjóra, hún er afar einföld en það
sem þarf er:
400 g vel þroskaður mangó,
afhýddur og skorinn niður í bita
2 dósir hrein mangójógúrt
250 ml léttmjólk
Safi úr einni límónu
4 ástríðuávextir, helmingaðir
og kjarni og safi tekinn úr
Mangó, jógúrt og mjólk sett
í blandara og hrært þar til
drykkurinn verður silkimjúkur.
Þá er límónusafa hrært saman
við. Setjið drykkinn í fjögur
glös og takið úr einum helm-
ingi af ástríðuávexti í hvert
glas. Hrærið smávegis áður en
drykkurinn er fram borinn.
ÁSTRÍÐUFULL-
UR DRYKKUR
Þessar karamellur eiga rætur
að rekja til Nígeríu. Þegar búið
er að blanda karamellunni
við kókosmjólkina er mikilvægt
að hræra stöðugt í pottinum
svo kókosmjólkin setjist ekki á
botninn og brenni.
2 tsk. kókosolía
1 dós kókosmjólk
3/4 bolli ljóst síróp
1 tsk. gróft sjávarsalt
1 og 3/4 bolli sykur
3/4 bolli vatn
Blandið saman kókosmjólk,
sírópi og salti á pönnu. Hitið
á meðallágum hita og hrærið
stöðugt í í um 2 1/2 til 3 mín-
útur þangað til blandan er volg
og kókosolían er laus við kekki.
Takið af hitanum og setjið til
hliðar.
Blandið saman sykri og vatni á
stórri pönnu og hrærið í þar til
sykurinn er uppleystur. Hitið
á meðalháum hita, án þess að
hræra í, þar til sykurinn verður
gulbrúnn. Takið þá strax af
hitanum og hellið sykrinum
varlega í kókosolíublönduna.
Setjið pottinn aftur á meðal-
lágan hita og hrærið stöðugt í
þar til sykurinn hefur leyst upp.
Hækkið hitann, hrærið stöðugt
í, og hitið þar til karamellan er
orðin þykk. Takið þá strax af
hita og hellið í smurt, eldfast
form. Látið kólna alveg og sker-
ið í litla bita. Njótið og bjóðið
öðrum að njóta með ykkur.
SALTAR KÓKOS-
KARAMELLUR