Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Síða 8
Þjónustuaðilar í
starfsendurhæfingu
Auk þeirra einstaklinga sem starfa hjá VIRK
og á vegum VIRK þá kemur mikill fjöldi
þjónustuaðila að því að veita þjónustuna
og stærsti hluti útgjalda VIRK fer í kaup á
ýmiss konar starfsendurhæfingarþjónustu.
Um er að ræða úrræði eins og þjónustu
sérhæfðra starfsendurhæfingarstöðva, sál-
fræðiþjónustu, sjúkraþjálfun, sjálfsstyrk-
ingu, námskeið, vinnuprófanir og ýmislegt
fleira. Fjöldi og fjölbreytni þessara úrræða
er sífellt að aukast sem er mjög jákvætt fyrir
þróun á starfsendurhæfingarþjónustu hér
á landi. Gerð er nánari grein fyrir samstarfi
okkar við þessa þjónustuaðila í umfjöllun
aftar í ársritinu.
Samstarf innan
velferðarkerfisins
VIRK gegnir í dag mikilvægu hlutverki innan
velferðarkerfisins og hefur lagt mikið afl
í að samþætta þjónustu atvinnutengdrar
starfsendurhæfingar við þjónustu annarra
stofnana. Áhersla er alltaf lögð á það að
finna einstaklingum réttan farveg í góðu
samstarfi við aðra fagaðila innan kerfisins.
VIRK leggur einnig mikla áherslu á að
leiðbeina einstaklingum um mögulegar
þjónustuleiðir innan velferðarkerfisins hvort
sem einstaklingurinn getur nýtt sér þjónustu
VIRK eða ekki. Nefna má nokkur dæmi
um það hvað VIRK hefur lagt fram í þessu
samstarfi:
• Ráðgjafar VIRK halda utan um
endurhæfingaráætlanir sem eru
forsenda þess að einstaklingar
geti fengið endurhæfingarlífeyri frá
Tryggingastofnun ríkisins. Mikill
meirihluti þeirra einstaklinga sem fær
greiddan endurhæfingarlífeyri frá TR
er í þjónustu hjá VIRK.
• Sérfræðingar VIRK bjóða upp á fundi á
heilsugæslustöðvum um allt land. Þar
gefst heimilislæknum tækifæri til að
fara yfir mál sinna einstaklinga og gott
upplýsingaflæði er tryggt.
• Ráðgjafar VIRK eru með aðsetur á
Hvítabandinu og á Kleppi einu sinni í
viku. Þessi viðvera hefur skipt miklu
máli fyrir einstaklinga sem glíma við
langvinna og alvarlega geðsjúkdóma
og hefur orðið til þess að tengja betur
saman þjónustu heilbrigðiskerfis og
atvinnutengdrar starfsendurhæfingar.
• Reglubundnir fundir eru milli sér-
fræðinga VIRK og sérfræðinga á geð-
deildum LSH – bæði á geðdeild LSH
við Hringbraut og á Kleppi.
• VIRK hefur verið í sérstöku samstarfi
við geðdeild LSH á Laugarásvegi sem
hefur byggt á hugmyndafræði IPS
(Individual Placement and Support).
VIRK hefur lagt til atvinnuráðgjafa í
verkefnið sem hefur aðstoðað unga
einstaklinga með alvarlegar geð-
greiningar við að finna starf við hæfi.
Þetta samstarf hefur nú þegar skilað
miklum ávinningi og fyrirhugað er að
efla þetta starf verulega á komandi
árum.
• Reglulegir fundir eru milli sérfræðinga
VIRK og Reykjalundar og milli VIRK
og Grensás þar sem markmiðið er að
tryggja samfelldan þjónustuferil fyrir
einstaklinga.
• VIRK vinnur markvisst með félags-
þjónustu víða um land þar sem
fagaðilar frá VIRK og félagsþjónustunni
fara sameiginlega yfir mál einstaklinga
sem eru á „gráu svæði“ með það að
markmiði að finna árangursríkar leiðir
að vinnumarkaði. Hér leggur VIRK
t.d. til aðgengi að fagaðilum sem geta
boðið einstaklingum upp á nánari
skoðun með það í huga að finna færar
leiðir hvort heldur sem er innan VIRK
eða á vegum félagsþjónustunnar.
• Reglulegir fundir eru með
Vinnumálastofnun þar sem þverfagleg
teymi fara yfir mál einstaklinga og
koma þeim í réttan farveg.
Þessi listi er ekki tæmandi og VIRK hefur
lagt mikla áherslu á gott samstarf við alla
aðila innan velferðarkerfisins með það að
markmiði að tryggja góðan og samfelldan
þjónustuferil fyrir einstaklinga.
Samstarf við lífeyrissjóði
VIRK er í samstarfi við flesta stærstu
lífeyrissjóði landsins. Samstarfið felst í því að
allar nýjar umsóknir um örorku eru rýndar
af sérfræðingum VIRK og einstaklingum er
boðið upp á starfsendurhæfingarþjónustu ef
metið er að hún sé raunhæf og geti skilað
árangri fyrir viðkomandi einstakling. Þetta
samstarf hefur verið í þróun undanfarin ár
og fleiri og fleiri lífeyrissjóðir hafa bæst inn í
samstarfið. Það kemur einnig í ljós að það er
mun algengara nú en áður að einstaklingar
eru komnir inn í þjónustu VIRK áður en þeir
sækja um örorkulífeyri og er það þróun í rétta
átt. Það er hins vegar verkefni bæði VIRK og
lífeyrisjóða um allt land að þróa samstarfið
áfram til enn meiri árangurs en nú er.
Einstaklingar í þjónustu
1794 nýir einstaklingar komu í þjónustu á
árinu 2015 og frá upphafi hafa komið 9288
einstaklingar í þjónustu VIRK ef miðað er við
stöðuna 31. desember 2015. Til VIRK leitar
fjölbreyttur hópur einstaklinga á öllum aldri
með mismunandi menntun og úr ólíkum
starfsgreinum eins og sjá má á bls. 16 og
17. Aðstæður allra þessara einstaklinga
eru misjafnar og krefjast þess að útbúin sé
starfsendurhæfingaráætlun sem sniðin er að
þörfum hvers og eins.
Upphaf þjónustu
Til að eiga rétt á þjónustu VIRK þurfa ein-
staklingar að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
• Að geta ekki sinnt starfi sínu eða tekið
þátt á vinnumarkaði vegna hindrana af
völdum heilsubrests sem rekja má til
veikinda eða slysa.
• Að markmiðið sé að verða aftur virkur
þátttakandi á vinnumarkaði eða auka
þátttöku á vinnumarkaði, svo fljótt sem
verða má.
• Geta og vilji sé til staðar til að taka
markvissan þátt í starfsendurhæfing-
unni og þjónustan sé líkleg til árangurs
á þeim tíma sem hún er veitt.
Almennt er miðað við að formleg tilvísun
frá lækni liggi fyrir áður en einstaklingur
fer í fyrsta tíma hjá ráðgjafa VIRK. Ef mál
einstaklings eru flókin og um er að ræða
langa fjarveru frá vinnumarkaði þá er
einstaklingum oft vísað í raunhæfimat
starfsendurhæfingar hjá VIRK áður en
þjónusta hefst. Markmiðið er að meta hvort
starfsendurhæfingarþjónusta sé raunhæf
og geti orðið árangursrík miðað við stöðu
viðkomandi einstaklings á þeim tíma sem
umsókn berst. Ef starfsendurhæfing er ekki
metin raunhæf þá er einstaklingi vísað í
önnur úrræði innan velferðarkerfisins og þá
oft í samstarfi við aðrar stofnanir.
8 virk.is