Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Blaðsíða 32
hefur verið fram á að slíkir verkferlar draga
úr kostnaði fyrirtækja (McLaren, Reville og
Seabury, 2010).
Endurkoma til vinnu
auðvelduð
Verkferlarnir sem innleiddir eru á vinnu-
staðnum hafa það að markmiði að draga
úr eða koma í veg fyrir fjarveru starfs-
manna frá vinnustað vegna veikinda eða
slysa. Tilgangur þeirra er að stöðva þann
neikvæða vítahring sem verður oft við
slys eða sjúkdóma. Lögð er áhersla á að
viðhalda sambandinu milli vinnustaðar og
starfsmanns sem er með skerta starfsgetu
og er í hættu að missa vinnuna. Það er
vinnuveitandinn/vinnustaðurinn sem inn-
leiðir og sér um eftirfylgni þessara verkferla
en þeim fylgja einnig ákveðin tímamörk.
Innleiðing á slíku skipulagi kemur sér
vel bæði fyrir starfsmanninn og einnig
vinnuveitandann. Starfsmaðurinn kemst fyrr
aftur til vinnu, verður fyrir minna launatapi og
styrkist frekar í þeirri von að hann verði ekki
með varanlega vinnuskerðingu í framtíðinni.
Vinnuveitandinn fær starfsmanninn fyrr til
starfa og dregur þannig úr þeirri truflun sem
verður í framleiðni og þjónustu fyrirtækisins
auk þess að það dregur úr ýmsum bóta-
greiðslum sem starfsmaður á rétt á meðan
hann er óvinnufær. Árangursrík endurkoma
til vinnu byggist fyrst og fremst á því að
vinnustaðurinn sé viljugur og sveigjanlegur
til að koma til móts við starfsmanninn
þegar kemur að því að finna lausnir við að
aðlaga vinnuumhverfið að einstaklingnum,
hugsanlega gera breytingar á vinnutíma eða
verkferlum/verkefnum til lengri eða skemmri
tíma sem auðveldað geta endurkomu inn
á vinnustaðinn. Þetta ferli getur því gert
starfsmanninum kleift að framkvæma
vinnu sína á afkastameiri hátt í öruggu
vinnuumhverfi.
Mynd 1 sýnir þá þrjá undirstöðuþætti sem
eru mikilvægir og ákveðnir verkferlar á
vinnustað tilheyra sem stefna að því að
draga úr fjarveru starfsmanna frá vinnustað
vegna veikinda og slysa: forvarnir, aðlögun
og stuðningur til aukins bata (Government
of Canada, 2011).
Þróunarverkefni – Aukin
atvinnutenging í
starfsendurhæfingu
Rannsóknir hafa sýnt að því fyrr sem
einstaklingar reyna endurkomu til vinnu
eftir veikindi eða slys, því líklegra er að
Mynd 1. Þrír undirstöðuþættir sem eru mikilvægir til að draga úr fjarveru starfsmanna
frá vinnustað: Forvarnir, aðlögun og stuðningur til aukins bata.
Forvarnir
• Stuðnings- og
heilsuáætlanir fyrir
starfsmenn
• Sérstakar vinnuhagræðingar
• Eftirfylgni hvað varðar
vinnuverndarlög; aðbúnað,
hollustu og öryggi
• Áætlanir vegna neyðarvið-
bragða og til tryggingar á
starfsgrundvelli
fyrirtækja
Aðlögun
• Eftirfylgni með stöðlum
um aðgengi
• Tækifæri til aðlögunar á
vinnustað er skylda
• Hjálpartæki
Stuðningur
• Almennur veikindaréttur/
veikindaréttur vegna vinnuslysa
• Ýmsar bætur og skaðabætur vegna vinnuslysa
• Snemmbær inngrip, sérstakur ráðgjafi og
áætlanir tengdar áframhaldandi
veru í vinnu og endurkomu
til vinnu
þeir komist aftur til baka í vinnu (Royal
Australasian College of Physicians, 2010).
Það er því ávinningur bæði einstaklingsins
og þjóðfélagsins í heild að einstaklingum
sem hafa starfsgetu sé gefið tækifæri til að
komast í vinnu við hæfi, snemma í starfs-
endurhæfingarferlinu.
Þróunarverkefnið Aukin atvinnutenging í
starfsendurhæfingu er nýtt verkefni sem
VIRK ákvað að fara af stað með haustið 2015.
Það stefnir að því, með markvissum stuðningi
frá sérfræðingum í starfsendurhæfingu,
að auka líkur einstaklinga sem eru í starfs-
endurhæfingu, á endurkomu inn á vinnu-
markaðinn þrátt fyrir skerta starfsgetu.
Hugmyndafræði verkefnisins er í takt við
það sem fjallað er um hér fyrr í greininni (e.
Disability management) með megináherslum
á innleiðingu skipulags og verkferla sem
stefna að því að draga úr fjarveru starfsmanna
frá vinnustað, en tekið er mið af þeim þörfum
sem best hentar hverri starfsemi fyrir sig.
Þetta er því alhliða nálgun sem veitir bæði
stjórnendum og starfsmönnum stuðning og
fræðslu í endurkomuferlinu en samhliða því
á sér stað starfsendurhæfing með markvissri
aðlögun inn á vinnumarkaðinn.
Markmið þróunarverkefnis:
• Auka þekkingu á mikilvægi tengsla
vinnustaðar og starfsendurhæfingar
• Tryggja farsæla endurkomu til vinnu
hjá einstaklingum í starfsendur-
hæfingu
• Auka stuðning við einstaklinga með
skerta starfsgetu sem þurfa aðlögun
inn í vinnu
• Stuðla að því að einstaklingar
fái stuðning á vinnustað sam-
hliða starfsendurhæfingu
• Samhliða starfsendurhæfingu eigi sér
stað markviss aðlögun inn á vinnu-
markað
• Auka fræðslu og stuðning við vinnu-
staði sem auðveldar endurkomu til
vinnu
Í þessari þróunarvinnu mun VIRK leita
eftir samstarfi við fyrirtæki og vinnustaði
um þátttöku í verkefninu. VIRK mun hafa
samband við viðeigandi fyrirtæki og bjóða
þeim að vera þátttakendur í þróunarverk-
efninu. Fyrirtækin munu þá leggja til
hugsanleg störf fyrir hæfa einstaklinga í
starfsendurhæfingu sem eru metnir tilbúnir
til þess að reyna endurkomu til vinnu. Þau
fyrirtæki og vinnustaðir sem skrifað hafa
32 virk.is