Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Blaðsíða 33

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Blaðsíða 33
 VIRK undir samstarfsyfirlýsingu um verkefnið geta líka haft samband að fyrra bragði ef þeir eru með lausar stöður sem gætu hentað einstaklingum í starfsendurhæfingu. Sérfræðingur hjá VIRK vinnur að virkni- áætlun í samstarfi við einstaklinginn og ráðgjafa hans í starfsendurhæfingu sem taka mun mið af verkefnum, vinnuferlum, aðstæðum og vinnutíma á viðkomandi vinnustað (Mynd 2). Þessi virkniáætlun er síðan höfð til hliðsjónar þegar sérfræðingur frá VIRK í samstarfi við starfsmanninn, stjórnendur og vinnustaðinn vinna að samhæfingu hennar inni á vinnustaðnum. Eftirfylgni verður með einstaklingnum inni á vinnustaðnum í samráði við vinnustaðinn og mun sérfræðingur hjá VIRK aðstoða við úrlausnir vandamála og hindrana sem upp geta komið. Á þessum tíma er möguleiki á að kaupa einstaklingsmiðuð úrræði sem auðveldað geta endurkomu inn á vinnustaðinn (t.d. vinnuvistfræðilegt mat á vinnuumhverfi) auk þess sem í boði verður fræðsla og ráðgjöf fyrir stjórnendur og samstarfsmenn eins og þurfa þykir í gegnum allt endurkomuferlið. Stjórnendur þurfa að vera reiðubúnir að taka virkan þátt í verkefnum, s.s. að taka þátt í fræðslu, upplýsingamiðlun, innleiðingu verkferla á vinnustað og mögulegum breytingum. Mynd 2. Hvað ætlar VIRK að gera? Gera virkniáætlun Samhæfing á vinnustað Úrlausn hindrana Fræðsla á vinnustað Eftirfylgni með einstaklingi Ávinningur þess að taka þátt í verkefninu getur falist í: • Skýrum, samræmdum og mark- vissum vinnuferlum um endurkomu til vinnu eftir veikindi eða slys og eftirfylgni vegna þeirra sem geta nýst fyrirtækinu almennt • Styttri veikindafjarveru hjá starfs- mönnum sem eru fjarverandi vegna veikinda eða slysa • Virkum mannauði þar sem þekking starfsfólks helst innan vinnustaðarins • Góðri ímynd og auknum sveigjanleika sem sýnir samfélagslega ábyrgð fyrirtækisins • Aðgengi að stuðningi sérfræðinga í starfsendurhæfingu og fræðslu og ráðgjöf um, meðal annars, velferð, fjarvistir og endurkomu til vinnu Í lok verkefnisins er gert ráð fyrir að niður- stöður þess muni hafa marktæk áhrif á starfsendurhæfingarferil einstaklinga í starfs- endurhæfingu hjá VIRK sem auðveldar þeim endurkomu á vinnumarkaðinn eftir veikindi eða slys og fjölgi þar með atvinnutækifærum fyrir starfsfólk með skerta starfsgetu. Heimildir Black, C. (2008). Working for a healthier tomorrow: Review of the health of Britain’s working age population. The Stationary Office, London, UK. Conroy, M (2008) Supporting an injured worker return to work. Commissioned by the Workplace Safety Initiative, Ireland. Franche, R.L., Cullen, K., Clarke, J., Irvin, E., Sinclair, S., og Frank, J. (2005). Workplace- based return to work interventions: A systematic review of the quantitative literature. Journal of Occupational Rehabilitation, 15, 607–631. Government of Canada (2011). The Fundamentals of Disability Management. Hunt, H.A. (2009). The evolution of disability management in North American Workers’ compensation programs. Reported preparated for Victoria, British Columbia, Canada. Institute for Work & Health (IWH) (2007). Seven „Principles“ for Successful Return to Work, IWH disability prevention tools (rev 2014). MacEachen, E., Clarke, J., Franche, R.L., Irvin,E.; Workplace-based Return to work Literature Review Group (2006). Systematic review of the qualitative literature on return to work after injury. Scandinavian Journal of Work, Environment & Health, Aug; 32(4):257-69. McLaren, C.F., Reville, R.T. and Seabury, S.A.(2010). How Effective Are Employer Return to Work Programs? RAND, Centre for Health and Safety in the Workplace, Santa Monica, CA. The Royal Australasian College of Physicians, Australasian Faculty of Occupational and Environmental Medicine Policy on preventing work disability (2010) Helping People Return to work: Using evidence for better outcomes. Waddell, G., og Aylward, M. (2010). Models of sickness and disability: Applied to common health problems. Royal Society of Medicine Press, London, UK. Waddell, G., og Burton, A. K. (2006). Is work good for your health and well-being? The Stationary Office, London, UK. 33virk.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.