Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Page 34
HUGMYNDAFRÆÐI VIRK
ER GEFANDI
Ég hóf störf hjá VIRK vegna áhuga
míns á starfsendurhæfingu.
Ég hafði komið að þessum málaflokki
áður hjá Vesturgarði, sem er ein af sex
þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar.
Þar hóf ég störf eftir útskrift sem félags-
ráðgjafi frá Háskóla Íslands. Ég vann þar í
sjö ár eða frá árinu 2006 til ársins 2013. Hjá
Vesturgarði kom ég að flestum málaflokkum
félagslegrar þjónustu. Í fjögur ár vann ég
að málefnum áfengis- og vímuefnasjúkra.
Síðan vann ég í tvö ár við verkefni sem fólst
í að veita fólki í atvinnuleit aðstoð sem hafði
Í HÚSI VERSLUNARINNAR Í KRINGLUNNI 7 ERU MARGAR VISTARVERUR.
Í EINNI ÞEIRRA, Á FYRSTU HÆÐ, HEFUR ÞÓRARINN ÞÓRSSON RÁÐGJAFI
VIRK HJÁ VR AÐSETUR. HANN STARFAÐI ÁÐUR SEM FÉLAGSRÁÐGJAFI HJÁ
REYKJAVÍKURBORG.
notið fjárhagsaðstoðar hjá Reykjavíkurborg.
Síðasta árið mitt hjá Vesturgarði vann ég
með málefni fjölskyldna og að fá stuðnings-
þjónustu fyrir fatlaða einstaklinga.“
Hvaða málaflokkur reyndi mest á þig?
„Málefni áfengis- og vímuefnasjúkra er
flókinn málaflokkur. Flestir í þeim flokki
hafa aðrar geðrænar greiningar og stríða
oft við líkamleg veikindi vegna ofneyslu.
Aðstæður þessa fólks eru yfirleitt mjög
slæmar, hvað snertir fjárhag, atvinnu og
húsnæðismál. Stuðningur frá nærumhverfi
og fjölskyldu er oftast af skornum skammti.
Almennt ríkir fremur lítill skilningur á
veikindum þessa fólks í samfélaginu. Á
margan hátt er gefandi að vinna við þennan
málaflokk. Grettistak heitir átján mánaða
endurhæfingarúrræði sem er áhrifaríkt fyrir
þá sem hættir eru að nota vímuefni. Margir
hafa átt við þennan vanda að glíma í langan
tíma og ekki getað unnið bug á honum á
eigin spýtur. Ég var einn af þeim sem leiddi
þetta úrræði fyrir hönd Vesturgarðs.“
ÞÓRARINN ÞÓRSSON ráðgjafi VIRK hjá VR
34 virk.is