Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Blaðsíða 59

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Blaðsíða 59
AÐSEND GREIN Aukið varnarleysi í tilvistar- legum breytingum Í því ferli sem þátttakendur fóru í gegnum, upplifðu þeir aukið varnarleysi þegar þeir þurftu að takast á við aðstæður sínar og samskipti við annað fólk, aðallega fagfólk. Stundum leiddi þetta til lélegrar eða neikvæðrar sjálfsmyndar. Einum þátttak- anda fannst „bara að ég væri ræfill og aumingi“ og „að ég væri einskis nýtur“. Annar fann að hann var ekki lengur álitinn „alvöru maður“ vegna þess að hann var ekki að vinna. Breytingar á lífi þátttakenda höfðu áhrif á sjálfsmynd þeirra. Þeir voru viðkvæmari fyrir viðmóti fagfólks. Góð ráðgjöf, stuðningur og umhyggjusemi efldu þá og dró úr varnarleysi þeirra. Þegar þátttakendur upplifðu umhyggjuleysi, skort á ráðgjöf og stuðningi, þá jók það á varnar- leysi þeirra og hafði neikvæð áhrif á bata. Í ráðgjöf skiptir „klapp á öxlina“ miklu máli, að styðja og hvetja ráðþega við mótun nýrra hugmynda um sig og möguleika sína og aðstoða þá við að finna nýjar leiðir (Patton og McMahon, 2006). Sýnileiki veikinda og sektarkennd Þátttakendum fannst mjög erfitt að takast á við ósýnileg heilsufarsvandamál. Einn sagði: „Vegna þess að ef þú ert að mæta fólki... Það sést ekkert á þér...“ Þeir voru viðkvæmari fyrir áliti annarra og upplifðu jafnvel að aðrir efuðust um veikindin. Þegar veikindin voru sýnileg var reynslan allt önnur: „Það var ekki neitt líkt. Vegna þess að þá... fer það ekki fram hjá nokkrum manni sem sér þig hvað er að þér.“ Það kom greinilega fram að einstaklingar sem upplifa aukið varnarleysi eru næmari á viðmót fólks, bæði yrt og óyrt. Þessar niðurstöður eru svipaðar niðurstöðum Hafdísar Skúladóttur og Sigríðar Halldórsdóttur (2011) um konur sem lifa við langvinna verki. Í frásögnum viðmælenda í rannsókn okkar kom fram sektarkennd þegar rætt var um hlutverk, ábyrgð og umhyggju fyrir fjölskyldunni, en einnig örlítill kynjamunur. Konunum fannst þær þurfa að vera til staðar fyrir fjölskylduna, en karlarnir virtust meira hafa áhyggjur af afkomu fjölskyldunnar, þeir vildu „standa sig í stykkinu“, eins og einnig kemur fram hjá Ingólfi Ásgeiri Jóhannessyni (2004). Viðmælendur í rannsókninni voru á aldrinum 40-60 ára. Því má draga þær ályktanir, miðað við þau kynhlutverk sem sú kynslóð ólst upp við, að ólíkur veruháttur kynjanna skýri þennan áherslumun. Þetta er í samræmi við rannsóknir Guðbjargar Vilhjálmsdóttur (2005; 2008). Mikilvægi þess að hafa hlutverk Þátttakendur í rannsókn okkar stóðu frammi fyrir skerðingu á starfsgetu og þurftu um tíma að takast á við missi starfstengds hlutverks, sem var viðbót við það verkefni að ná líkamlegum og andlegum bata. Áfallinu fylgdi óvissa og andleg streita, sem leiddi til depurðar yfir missinum, sem líkja má við sorgarferlið. Einn sagði: „Ég nennti ekkert að vera að fara á fætur. ... Af því að mér fannst ég ekki geta gert neitt.“ Hjá viðmælendum kom fram hversu dýrmætt það var að hafa hlutverk sem hafði þýðingu fyrir þá, svo sem það að hjálpa öðrum. Einn sagði: „... ég hafði engan tíma til að velta mér upp úr mínu.“ Það er í samræmi við áherslur Amundson (2005) og Blustein o.fl. (2008) um að einstaklingurinn nýti bjargráð sín og sé sjálfur virkur í að finna sér verkefni og nýjar leiðir. Með því að vera virkur og íhuga og endurskoða möguleika sína eflir einstaklingurinn aðlögunarhæfni sína til starfa (Jacobs og Blustein, 2008). Mikilvægt hlutverk ráðgjafa er aðstoð við að para saman starfsmann og starf, þannig að bæði starfsmaður og atvinnurekandi öðlist það sem þeir leita að (Neault og Pickerell, 2011). Mikilvægi félagslegra tengsla Rannsóknin leiddi greinilega í ljós að tengslin við aðra og þá sérstaklega fjölskylduna skiptu einstaklinginn meginmáli. Einn sagði: „Á meðan maður hefur fólkið sitt í kringum sig þá skiptir ekkert annað máli.“ Allir þátttakendur töldu félagslegt net mikilvægt og skynjuðu mikilvægi þess þegar þeir voru án þeirra tengsla. Þetta er í samræmi við niðurstöður Koch o.fl. (2005). Þátttakendur í rannsókninni upplifðu félagslega einangrun og einmanaleika. Einn þátttakenda okkar lýsti því hve „hættulegt það var að missa tengsl við umheiminn“ og það að vera bara heima það væri „svo erfitt að brjóta það upp“. (Heinrich og Gullone, 2006). Þátttakendur voru sammála um mikilvægi stuðnings annarra; fagfólks, fjölskyldu og ekki síst stuðningi jafningja. Einn sagði hversu gagnlegt það hefði verið „…að hitta fólk sem er svipað ástatt fyrir… og ræða við fagfólk...“. Þetta rímar við rannsóknarniðurstöður Smithson o.fl (2006). Í rannsókn okkar komu fram vísbendingar um að skortur væri á samfelldum stuðningi. Þátttakendur sögðu frá góðum stuðningi í endurhæfingunni en það virtist vanta samvinnu milli kerfa og samfellu milli þess stuðnings sem boðið var upp á í bataferlinu „...þá var eiginlega klippt á allt... Skortur var á eftirfylgni. Einn sagði: „þó að það væri ekki nema bara hringt í mann” þegar hlé var á meðferð eða eftir útskrift. Áðurnefnd rannsókn Ebberwein (2004) sýnir fram á gildi heildstæðrar þjónustu og að einstaklingurinn fái aðstoð við að gera sér áætlun um næstu skref. Á síðustu árum hefur verið í boði starfsendurhæfingarþjónusta, s.s. VIRK, sem felur í sér samfellu og stuðning á endurhæfingartímabilinu (Ingi- björg Þórhallsdóttir, 2010) líkt því sem þátttakendur rannsóknarinnar töldu skorta. Mikilvægi jákvæðni og bjartsýni Frásagnir einstaklinganna endurspegluðu baráttuna við að ná aftur valdi yfir lífi sínu og aðstæðum. Afgerandi var hversu hvetjandi það var þegar þeir fóru að trúa því að þeir myndu ná bata. Einn sagði: „... það er ótrúlegt hvaða styrk þú færð til að taka á móti svona.“ Það kom greinilega fram í rannsókninni hversu trúin á bata og jákvæðni voru eflandi og batahvetjandi en neikvæður hugsunarháttur að sama skapi niðurbrjótandi. Einn sagði: „Þó að það sé komið kvöld núna...þá skín sólin í fyrramálið. Hún kemur alltaf upp... sama hvað á gengur.“ Svipaðar niðurstöður komu fram í eigindlegri rannsókn Jónínu Sigurgeirsdóttur og Sigríðar Halldórsdóttur (2007) um upplifun fólks af endurhæfingu. Viðmælendur í rannsókn okkar tiltóku sérstaklega hversu gleði og húmor gerði daglegt líf léttara. Einn sagði: „það var gert grín að sínum veikindum og annarra...“ Jákvæð áhrif húmors og hvatningar er meðal annars lýst í áðurnefndri rannsókn Koch o.fl. (2005). Ennfremur kom það fram í viðtölunum að miklu skipti að einbeita sér að því sem er, „að geta notið augnabliksins“, sem er í samræmi við það sem fram kemur hjá Jacobs og Blustein (2008). Þetta hugarfar er í samræmi við kenningar hugsmíðahyggjunnar um að einstaklingurinn noti hugræna færni sína og taki stöðugum breytingum í gagnvirku samspili við umhverfi sitt og aðra einstaklinga. Þar er einstaklingurinn sjálfur við stjórnvölinn og velur sér bæði viðhorf og viðfangsefni (Patton og McMahon, 2006). 59virk.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.